Morgunblaðið - 08.08.2017, Qupperneq 13

Morgunblaðið - 08.08.2017, Qupperneq 13
Ljósmynd/Team Zambía Hjálparstarf Hjúkrunarfræðinemarnir sjö glaðir á góðri stundu. Einstakt vinasamband myndaðist þegar þær létu draum sinn um að láta gott af sér leiða, ferðast og að öðlast dýrmæta reynslu rætast í ævintýraferð í Zambíu. um við sendar í lestrar- og stærðfræðikennslu, listasmiðjur og fleira. Það sem okkur fannst áhugaverðast voru verkefni sem kallast „Health Club“ og „Girl Impact“. Health Club fólst í því að fara í nálæga grunnskóla og kenna börnunum fæðuhringinn og mikil- vægi þess að drekka vatn,“ segir hópurinn og bætir við að það hafi verið gaman að sjá hvað krakk- arnir voru áhugasamir. „Girl Impact var verkefni sem hafði mikil áhrif á okkur. Girl Imp- act fólst í því að styrkja sjálfsmynd ungra stúlkna og kynna þeim rétt þeirra. Stelpurnar búa í samfélagi þar sem konur eru lítils metnar og njóta ekki sömu réttinda og karlar. Það er mikilvægt að gera þeim grein fyrir hvers virði þær eru og að þær eigi sig sjálfar,“ segja hjúkrunarnemarnir alvarlegir. Þeir segja sjálfstyrkingar- námskeiðið fjölbreytt. „Við rædd- um um óléttu, getnaðarvarnir og tíðarhringinn við ungar stelpur og kenndum þeim að þær væru ekki skyldugar að eignast börn. Þjálf- uðum fullorðnar konur í að skapa sér atvinnutækifæri. Til dæmis með því að fara með túrista í leið- söguferðir um bæinn sinn. Það var ómetanleg tilfinning fyrir okkur að geta veitt þessa hjálp.“ Hjúkrunarnemarnir eru ánægðar með hvernig ferðin hefur gengið. „Það hljómar kannski ótrú- lega en það hefur ekki verið neitt vesen að ferðast í sjö manna hópi. Sambúðin hefur gengið mjög vel. Við erum ólíkar en höfum lært að taka tillit til hver annarrar. Vin- áttan sem við eignumst á þessu ferðalagi er engu lík.“ Það er kostnaðarsamt að ferðast til Afríku og hópurinn var duglegur í fjáröflun. „Fjölskylda og vandamenn eiga hrós skilið fyrir allan þann lakkrís, hlaup, klósett- pappír og sjúkratöskur sem þau keyptu af okkur. Við vorum dugleg- ar að vinna í sjúkragæslu á mennta- skólaböllum, heldum bingó og næld- um okkur þannig í aukapening,“ segir hópurinn ánægður með að hafa safnað fyrir 1/3 af kostnaði ferðarinnar. Hjúkrunarfræðinem- arnir hvetja alla til þess að fara í svona ferð. Þær segja alla hafa gott af því að kynnast menningu sem stangast á við gildi vestrænnar menningar. „Við mælum sérstaklega með þjónustu African Impact. Það var tekið vel á móti okkur og utan- umhald gott. Aðstaðan var til fyrir- myndar, miklu betri en við þorðum að vona, segir team Zambía. Þær benda á að African Impact sé einn- ig með verkefni sem tengjast heil- brigðisþjónustu, kennslu-, íþrótta-, samfélagsuppbyggingu og um- hverfi. Hjúkrunarfræðingarnir eru nú á ferðalagi sem hófst í Zimbabwe og endar Namibíu. „Við erum bún- ar að sjá fjöldann allan af dýrum, gista á eyðieyju með engu rafmagn, vatni, klósetti eða munaði og eiga ótrúlega skemmtilegar stundir í tjöldum í afrískri náttúru,“ segja hjúkrunarfræðinemarnir sem hlakka til að koma heim í rútínuna en hefðu verið tilbúnar að vera lengur úti. Hlýja Hjálparstarfmenn eru oft eina von íbúa í Zambíu sem treysta á þá. DAGLEGT LÍF 13 MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 8. ÁGÚST 2017 TWIN LIGHT GARDÍNUM Betri birtustjórnun með Álnabær Allt fyrir gluggann… úrval, gæði og þjónusta. Síðumúla 32, Reykjavík. S. 588 5900 n Tjarnargötu 17, Keflavík. S. 421 2061 n Glerárgötu 32, Akureyri. S. 462 5900 n alnabaer.is Sendum frítt hvert á land sem er gegn staðgreiðslu Íslensk framleiðsla eftir máli Hringdu núna og bókaðu tíma í máltöku OPIÐ: VIRKA DAGA FRÁ 10-18 alnabaer.is Ríkjandi dragdrottning Íslands, Sig- urður Heimir Guðjónsson, öðru nafni Gógó Starr, og Margrét Erla Maack, Miss Mokki, hafa tekið höndum sam- an og stefna á ferð til Evrópu næsta sumar. Þar munu þau skemmta á fjöl- listasýningum, burlesque-sýningum, sveittum pöbbum, leynistöðum og dragsýningum. Tilgangur ferðalags- ins er, auk þess að sýna sig og sjá aðra, að mynda tengsl; fá listamenn til þess að skemmta og kenna í vax- andi drag- og burlesque-senu í Reykjavík og sýna þeim hversu góð íslenska senan er. Söfnun er hafin á Karolina Fund sem gengur vel. Ef nægt fjármagn fæst munu Gógó Starr og Miss Mokki bjóða þeim sem styrkja ferðalagið á sýningu áður en þau leggja af stað í ferðina. Sýningarferðalag Morgunblaðið/Árni Sæberg Gógó Starr og Miss Mokki safna Blátindur var reisulegt hús sem fór undir hraun í eldgosinu á Heimaey 1973. Hluti hússins stóð út úr hraunkantinum að gosi loknu og hefur laðað að fjölda ferðamanna. Í tímans rás hefur molnað undan rústunum og var því brugðið á það ráð að endurgera glugga- hlið Blátinds og svala- handrið. Í glugganum má nú sjá ljósmyndir sem segja sögu fjölskyldunnar og eldgossins 1973. Sama fjölskyldan bjó í húsinu frá því að það var byggt 1942 þar til það eyðilagð- ist í eldgosinu. Vert að skoða … Morgunblaðið/Ófeigur …Blátind, rústir húss við hraunkantinn í Vestmannaeyjum Hinsegin dagar í Reykjavík hefjast í dag, þriðjudaginn 8. ágúst, og standa til sunnudagsins 13. ágúst. Gleði- gangan á laugardaginn er hápunktur hátíðarhaldanna, en þá sameinast lesbíur, hommar, tví- og pankyn- hneigðir, transfólk, intersexfólk og aðrir hinsegin einstaklingar í einum hópi ásamt fjölskyldum sínum og vin- um til að staðfesta tilveru sína, sýni- leika og gleði, ásamt því að minna á þau baráttumál sem skipta hvað mestu máli hverju sinni. Uppstilling göngunnar verður frá kl. 11 á Hverfisgötu, milli Ingólfs- strætis og Klapparstígs. Gengið verð- ur niður Hverfisgötuna kl. 14, eftir Lækjargötu, Fríkirkjuvegi og endað á útitónleikum í Hljómskálagarðinum. Á vefsíðu Hinsegin daga eru upplýs- ingar um viðburði og annað sem tengist hátíðinni og gleðinnar göngu. Þar má t.d. hlusta á Liti regnbogans, lag Hinsegin daga 2017, í flutningi Daníels Arnarssonar. Vefsíðan www.hinsegindagar.is Morgunblaðið/Ófeigur Hápunktur daganna Gleðiganga Hinsegin daga er hápunktur hátíðarinnar. Allt um viðburði og gleðinnar göngu á einum stað Skannaðu kóðann til að fara inn á vefsíðuna.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.