Morgunblaðið - 08.08.2017, Qupperneq 15
FRÉTTIR 15Innlent
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 8. ÁGÚST 2017
Glæsilegur veitingastaður á Hótel Örk. Vandaður matseðill og hlýlegt umhverfi.
Pantaðu borð í síma 483 4700 eða á hverrestaurant.is
Vistvænna prentumhverfi
og hagkvæmni í rekstri
Með Prent+ fæst yfirsýn, aðhald í rekstri
og fyrsta flokks þjónusta.
www.kjaran.is | sími 510 5520
Útihátíðin SPOT var haldin um
helgina í áttunda skiptið fyrir neðan
húsakynni skemmtistaðarins SPOT í
Kópavogi. Aðstandendur hátíð-
arinnar áætla að á þriðja þúsund
manns hafi mætt á viðburði hátíð-
arinnar yfir helgina. Bjössi trúbador
stjórnaði brekkusöng með aðstoð fé-
laga sinna úr Greifunum en áætlað
er að tólf til fimmtán hundruð manns
á öllum aldri hafi setið í brekkunni
og sungið með. Að brekkusöngnum
loknum var síðan ball á SPOT með
Greifunum og Sigga Hlö.
Aldrei stærri brekkusöngur
„Brekkusöngurinn hefur senni-
lega aldrei verið stærri,“ segir Krist-
ján Viðar Haraldsson, betur þekktur
sem Viddi Greifi, söngvarinn í Greif-
unum. „Stemningin var æðisleg.
Þetta er svo friðsamt að lögreglan
kemur varla við. Það eru allir óláta-
belgirnir úti á landi,“ segir Viddi og
hlær við.
Á þriðja þúsund manns
mætti á útihátíð SPOT
Um 1.500 manns mættu á brekkusönginn í Kópavogi
Stuð Það var stemning og einlæg gleði í brekkunni við SPOT um helgina.
Arnar Þór Ingólfsson
athi@mbl.is
Íslenskir keppendur náðu góðum ár-
angri á heimsleikunum í crossfit,
sem fram fóru í borginni Madison í
Wisconsin-ríki í Bandaríkjunum um
helgina. Annie Mist Þórisdóttir náði
bestum árangri Íslendinga og end-
aði í þriðja sæti í kvennaflokki.
Þetta er í fimmta sinn sem Annie
Mist nær verðlaunasæti á heimsleik-
unum, en hún hefur tvívegis unnið
leikana.
Ragnheiður Sara Sigmundsdóttir
og Katrín Tanja Davíðsdóttir voru í
fjórða og fimmta sæti og Þuríður
Erla Helgadóttir endaði í 18. sæti. Í
karlaflokki náði Björgvin Karl Guð-
mundsson sjötta sæti, sem er hans
næstbesti árangur á leikunum.
Hilmar Harðarson, sem keppti í
flokki karla 60 ára og eldri, endaði í
öðru sæti. Tvö íslensk lið tóku þátt í
liðakeppni heimsleikanna. Lið
Crossfit XY endaði í 28. sæti en lið
Crossfit Reykjavík neyddist til þess
að hætta keppni, þar sem einn kepp-
enda liðsins meiddist.
Peningaverðlaunin góð búbót
Heimsleikarnir eru stærsta
keppnin í crossfit-heiminum og pen-
ingaverðlaunin fyrir efstu sætin eru
há. Alls fengu Íslendingarnir rúma
21 milljón króna í sinn hlut.
„Þetta er alltaf að skána með
hverju árinu og það er alltaf verið að
borga fleirum. Þeir eru að borga
fyrir topp 20 núna. En verðlaunaféð
er bara eitt og svo eru það styrktar-
samningarnir. Mestallir peningarnir
í þessu koma úr styrktarsamningum
og í gegnum samfélagsmiðla,“ segir
Björgvin Karl Guðmundsson í sam-
tali við Morgunblaðið.
Hann segist þreyttur eftir mótið,
en þokkalega sáttur með sinn árang-
ur. „Ég stefndi auðvitað á pall, en ég
get ekki verið ósáttur,“ segir Björg-
vin. Hann segir frábæra stemningu
hafa ríkt á meðal íslenskra áhorf-
enda á áhorfendapöllunum í Madi-
son og að Bandaríkjamönnum í
sportinu þyki merkilegt hversu góð-
um árangri Íslendingar nái ár eftir
ár. Íþróttin sé í örum vexti í Banda-
ríkjunum. „Þetta er farið að breiðast
út og fólk er farið að vita af þessu þó
svo að það sé ekki að æfa íþróttina,“
segir Björgvin, sem ætlar að taka
það rólega í Chicago næstu daga.
Ljósmynd/CrossFit Games
Járn Annie Mist Þórisdóttir rífur í járnið á nýafstöðnum heimsleikum í
crossfit. Hún hefur endað á verðlaunapalli oftast allra kvenna.
Íslendingarnir
eru í fremstu röð
Heimsleikar í crossfit
» Annie Mist náði verðlauna-
sæti í fimmta sinn og hefur
náð því oftast allra kvenna.
» Hilmar Harðarson fékk silf-
urverðlaun í flokki karla 60 ára
og eldri.
» Íslendingarnir fengu rúma
21 milljón króna í verðlaunafé,
en féð er þó einungis hluti
tekna atvinnumanna.
Þrjár á palli Tvær ástralskar konur
háðu harða baráttu um gullið.
Annie Mist á palli í fimmta skipti