Morgunblaðið - 08.08.2017, Side 18

Morgunblaðið - 08.08.2017, Side 18
18 FRÉTTIRViðskipti | Atvinnulíf MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 8. ÁGÚST 2017 Viðarhöfða 1, 110 Reykjavík | Sími 566 7878 | rein.is silestone.com Bakteríuvörn Kvarts steinn frá Silestone er fáanlegur í fjölbreyttum áferðum og litum. Silestone bjóða einir upp á borðplötur með varanlegri bakteríu- og sveppavörn. Gefðu heimilinu ferskleika og líf á þínum forsendummeð Silestone. Blettaþolið Sýruþolið Högg- og rispuþolið Kvarts steinn í eldhúsið 8. ágúst 2017 Gengi Kaup Sala Mið Dollari 104.31 104.81 104.56 Sterlingspund 138.14 138.82 138.48 Kanadadalur 82.74 83.22 82.98 Dönsk króna 16.595 16.693 16.644 Norsk króna 13.177 13.255 13.216 Sænsk króna 12.847 12.923 12.885 Svissn. franki 107.49 108.09 107.79 Japanskt jen 0.9423 0.9479 0.9451 SDR 147.32 148.2 147.76 Evra 123.45 124.15 123.8 Meðalgengi/Viðskiptavog þröng 147.8738 Hrávöruverð Gull 1257.55 ($/únsa) Ál 1888.0 ($/tonn) LME Hráolía 51.97 ($/fatið) Brent Skannaðu kóð- ann til að sjá gengið eins og það er núna á Rafbílaframleiðandinn Tesla hyggst gefa út skuldabréf frekar en hlutabréf til að standa straum af kostnaði við að auka fram- leiðslugetu fyrirtækisins. Að sögn Wall Street Journal greindi Elon Musk markaðsgreinendum frá að fyrirtækið stæði frammi fyrir verulegum framleiðsluáskorunum og þyrfti á fjármagni að halda til að geta keppt við aðra fjöldafram- leiðendur bifreiða. Er fyrirhugað að gefa út skulda- bréf fyrir 1,5 milljarða dala, en við lok síðasta ársfjórðungs námu skuldir Tesla 9,67 milljörðum dala. Handbært fé á síðasta fjórðungi var 3 milljarðar dala en þar af verður búið að eyða 2 milljörðum á fyrri helmingi þessa árs. Ekki er enn búið að ákveða hvaða vexti nýju skuldabréfin munu bera eða hvert innlausnar- verð þeirra verður. Tesla kynnti á dögunum nýjan rafmagnsbíl, Model 3, sem er mun ódýrari en þeir bílar sem fyrirtæk- ið hefur framleitt til þessa. Standa vonir til að í lok næsta árs muni Tesla framleiða allt að 10.000 Model 3 bíla í viku hverri, en á síð- asta ári framleiddi fyrirtækið að jafnaði 2.000 bíla vikulega. ai@mbl.is Tesla gefur út skuldabréf fyrir 1,5 milljarða dala AFP Vinsæll Nýr rafbíll Tesla mun reyna á framleiðslugetu fyrirtækisins. Samkvæmt bráðabirgðauppgjöri júlí- mánaðar heldur sala hjá fyrirtækjum Haga áfram að dragast saman mælt bæði í magni og krónum. Er sam- drátturinn í júlí svipaður milli ára og mældist í mánuðinum á undan. Þetta kemur fram í tilkynningu sem send var fjölmiðlum á föstudagskvöld. Gera stjórnendur Haga núna ráð fyrir að rekstrarhagnaður fyrir af- skriftir og fjármagnsliði fyrir tíma- bilið maí til ágúst verði 20% lægri en á samatímabili í fyrra. Þegar rekstur sumarmánaðanna er borinn saman milli ára þarf að taka tillit til þess að verslunarmannahelgin lendir á ágústmánuði í ár en var í júlí í fyrra. Þá hefur lokun efri hæðar Hag- kaupsverslunarinnar í Kringlunni haft áhrif á veltu félagsins, og einnig hefur verslun Zara í Smáralind verið lokuð tímabundið vegna endurnýjun- ar með tilheyrandi kostnaðarauka og minnkun sölutekna. Samhliða hefur gengisþróun valdið verðhjöðnun, samkeppni harðnað og kostnaðarliðir hækkað, m.a. vegna kjarasamnings- bundinna launahækkana. ai@mbl.is Afkoma Haga versnar Bandaríska kaffihúsakeðjan Dunkin‘ Donuts hyggst opna útibú í borginni Pasadena í Kali- forníu með breyttu nafni. Nýi staðurinn mun einfaldlega heita „Dunkin‘“, en með því að fella burtu kleinuhringshluta nafnsins vonast stjórnendur keðjunnar til að tengja ímynd Dunkin‘ meira við kaffi og kaffi- drykki en við djúpsteikt, sykur- húðað og hitaeiningaríkt bakk- elsið sem keðjan er frægust fyrir. Gangi tilraunin vel er fyr- irhugað að fleiri „Dunkin’“- staðir verði opnaðir árið 2018. Í tilkynningu frá fyrirtækinu segir að í röskan áratug hafi kaffihúsakeðjan notað styttu út- gáfuna af nafninu í auglýsingum og slagorðum. ai@mbl.is Gera tilraun með nýtt nafn  Dunkin‘ án Donuts Afþreyingarrisinn Netflix hefur fest kaup á myndasöguútgáfunni Millar- world. Er það fyrsta yfirtakan í 20 ára sögu Netflix en Millarworld á m.a. heiðurinn að teiknimyndasög- unum sem kvikmyndirnar Wanted, Kick-Ass og Kingsman byggjast á. Greint var frá kaupunum á mánu- dag. Mark Millar stofnaði Millarworld fyrir 15 árum en hann hafði áður starfað hjá Marvel Entertainment. Að sögn WSJ er fáheyrt að svona stórar myndasöguútgáfur séu keypt- ar í heild sinni en árið 1968 keypti Warner Brothers DC Comics og Disney eignaðist Marvel árið 2009. Kaupverðið hefur ekki fengist uppgefið eða hvort aðrir kaupendur höfðu augastað á Millarworld. Kaupin tryggja Netflix eignarrétt á söguþráðum, söguhetjum og heilu söguheimunum sem gætu reynst góður efniviður í sjónvarsþætti og kvikmyndir. Almenningur virðist mjög áhugasamur um sögur Millar- world en tekjur af sýningum Wan- ted, Kick-Ass og Kingsman í kvik- myndahúsum námu samtals nærri milljarði dala. ai@mbl.is AFP Metnaður Sögur Millarworld gæti reynst Netflix efniviður í fjölda þátta. Netflix kaupir myndasöguútgáfu Rafmyntin bitcoin hækkaði mikið í verði um helgina eftir að hafa hald- ist tiltölulega stöðug frá 20. júlí til 3. ágúst. Hafði verð bitcoin sveiflast á 2.600 til 2.800 dala bilinu í um tvær vikur þar til að á laugardag að myntin skaust úr tæplega 2.900 döl- um upp í um 3.300 dali. Að sögn BBC var það í fyrsta skiptið sem bitcoin rauf 3.000 dala múrinn. Bitcoin náði nýju hámarki á mánudag þegar verðið fór hæst í tæplega 3.452 dali, samkvæmt verðskráningu bitcoin-markaðarins Coindesk. Eftir hækkun helgarinnar er heildarvirði allra framleiddra bitcoin-mynta samtals 56 milljarðar dala. Hefur bitcoin hækkað um 18% í ágúst og þrefaldast í verði frá árs- byrjun. ai@mbl.is Aftur rýkur bitcoin upp Dýrt Met var slegið á mánudag þeg- ar bitcoin fór í nærri 3.452 dali. Atvinna

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.