Morgunblaðið - 08.08.2017, Page 22

Morgunblaðið - 08.08.2017, Page 22
22 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 8. ÁGÚST 2017 ✝ Jón Grétarfæddist á Seyðisfirði 21. september 1944. Hann lést á Land- spítalanum við Hringbraut 28. júlí 2017. Foreldrar hans voru Sigríður Jónsdóttir, f. 15. mars 1917, d. 24. febrúar 2008, og Vigfús E. Jónsson, f. 1. desem- ber 1903, d. 2. ágúst 1980. Systkini Jóns Grétars eru ember 1980, eftirlifandi kona hans er Jóhanna Sigurjóns- dóttir frá Siglufirði, f. 29. október 1951. Einkadóttir þeirra er Sigríður Jónsdóttir, f. 30. apríl 1980. Maður henn- ar er Konráð Þór Ólafsson, f. 10. janúar 1976. Börn hans úr fyrri sambúð eru Sóley Líf og Ísak Freyr. Jón Grétar bjó alla tíð á Seyðisfirði og stundaði sjó þaðan frá 15 ára aldri eða alls í 52 ár. Stærstan hluta starfs- ævinnar var hann á skipum Gullbergs hf. frá Seyðisfirði og vann þar þangað til hann hætti störfum í september 2011. Útför Jóns Grétars fer fram frá Seyðisfjarðarkirkju í dag, 8. ágúst 2017, og hefst athöfn- in kl. 14. Guðlaug Stefanía, f. 9. apríl 1940, d. 4. september 2016. Maður hennar er Gunnar Ragn- arsson. Borghild- ur, f. 12. júlí 1948. Maður hennar er Árni Arnarson. Ólafur, f. 3. sept- ember 1952, og Gunnar Árni, f. 4. janúar 1959. Kona hans er Ágústa Berg Sveins- dóttir. Jón Grétar kvæntist 26. des- -Ég ætla að giftast Grétari Fúsa, var svar uppáhaldsfrænku minnar þegar ég sem krakki spurði hana hverjum hún ætlaði að giftast. Það skoplega var að ég held ekki að hún hafi almennilega vitað hver hann var þá. En já, hún giftist honum Grétari, sem betur fer, því ég á þeirrar gæfu að gegna að hafa fengið að vera eins og aukadóttir þeirra hjóna. Húsið á Fjarðarbakkanum var mér eins og annað heimili og hef- ur alla tíð verið. Þar ríkir kær- leikur og góðvild sem dró mig til sín. Og þau eru ekki ófá skiptin gegnum árin sem ég hef setið við eldhúsborðið og drukkið kaffi, borðað súkkulaði og spjallað og hlegið langt fram eftir nóttu. Ég var alltaf velkomin og mér leið vel. En það er sko sannarlega stutt á milli hláturs og gráts í þessu lífi sem við svo oft tökum sem sjálf- sögðum hlut, því nú ert þú Grétar minn farinn á betri stað og það er ekki orðið veruleiki ennþá. Ég sat jú hjá þér bara nokkrum tímum áður og bað þig að fara til læknis því mér fannst þú svo fölur og svo hló ég með þér og fann þessa endalausu væntumþykju sem hjartað mitt alltaf fylltist af í ná- vist þinni. En víst strauk ég handlegginn þinn oftar en annars í þetta skipti. Ég bara þurfti þess. Og ég man svo margt og lang- ar að skrifa svo margt, en það er eins og hugurinn geti ekki sorter- að á þessari sorgarstund. En allt er samt þarna, alveg frá „er ljós í svítunni“, til flutnings ykkar í húsið sem mér fannst svo fallegt. Þegar Sigríður fæddist og öll skiptin sem ég passaði hana. Þeg- ar ég varð mamma og þú Grétar afi. Þegar ég og fjölskyldan mín fluttum til útlanda og þú og Anný mín tókuð mömmu gömlu undir verndarvæng ykkar. Þegar við komum sumar eftir sumar í heim- sókn og aldrei breyttist neitt og alltaf vorum við jafn velkomin. Ég man líka morgunspjallið okkar gegnum árin bæði á Fjarð- arbakkanum og í Svíþjóð, þá ræddum við hluti sem bara við ræddum og leystum ýmsa hnúta. Og aldrei mun ég gleyma sam- verustundum okkar síðastliðið ár og öllum þeim kærleik sem þið bæði umvöfðuð mig þegar lífið mitt varð brothætt og mig vant- aði skilning í þögninni. Auðvitað er þetta bara brota- brot af öllum minningunum um þig, en allar eiga þær sameigin- legt að vera ómetanlegar. Ég held því fram að maður læri eitthvað að öllu samferða- fólki sínu, af þér lærði ég meðal annars góðvild og jákvæðni og það hefur verið og verður áfram mitt veganesti. En ó, hvað ég á eftir að sakna þín mikið, elsku hjartans Grétar minn, og ljóssins sem alltaf fylgdi þér hvert sem þú komst. -Ég er sorgmædd en himinn- inn glaður og ég efast ekki um að þú flýgur um á vegum norðurljós- anna í fullri flugvél af páfagauk- um, með bros á vör og lítur eftir okkur öllum. Samúð mína alla eiga Anný og Sigríður og má það góða vernda þær í sorginni. Takk fyrir allt og allt, þú dásamlega manneskja. Guðmunda Jóna (Gúa Jóna) Er einhver heima? Þetta þýddi bara eitt! Grétar frændi var kom- inn í heimsókn. Elsku Grétar frændi, mikið finnst mér skrýtið að það verði aldrei aftur dinglað tvisvar og svo hljómi þessi spurning. Þú varst svo miklu meira en bara gamli frændi okkar þarna á Leirubakk- anum, frændi, afi og vinur var lík- lega besta útskýringin. Mér fannst þú alltaf einstaklega glæsilegur maður, samanber ef þú birtist hér eftir að hafa eitt- hvað verið að brasa í garðinum íklæddur köflóttri skyrtu, göml- um gallabuxum, garðskónum þín- um og með axlabönd, fannst mér þú samt alltaf vel til fara, kannski vegna þess að þannig varstu bara. Mér finnst það ómetanlegt að hafa fengið að kynnast þér og ykkur þarna á Fjarðarbakka 3 og ég get líklega seint þakkað það að hafa átt hjá ykkur bæði eyra og skjól. Ég á eins og sjálfsagt allir í þessari fjölskyldu ótal margar minningar um Grétar frænda, hann Daði leit mikið upp til þín og var alveg með það á hreinu að ef maður varð að vera fínn og í jakkafötum, þá var maður með bindi eða þverslaufu, eins og Grétar frændi. Ég er líka nokkuð viss um að mig sé ekki að mis- minna þegar ég segi að fyrstu bindishnútarnir sem bundnir voru fyrir Sindra og Daða voru bundnir af þér, það þótti væn- legra að fá þig til að græja þetta fyrir drengina heldur en að pabbi færi í það og endaði þá líklega með fingurna bundna fasta við bindið. Ég hafði mjög gaman af því að spjalla við þig um alla heima og geima og að hlusta á þig og pabba ræða fiskiríið á togaranum þessa stundina, yfir kaffibolla, ég er viss um að við systkinin vorum sjaldan jafnviljug að hella upp á kaffi og þegar þú varst mættur. Það er vond tilhugsun að ég eigi aldrei eftir að heyra sæl frænka og að þú sért ekki við endann á eldhúsborðinu, drekkir kaffi með okkur og hlustir á vit- leysuna sem vellur næst þegar maður verður í kaffispjalli á Fjarðarbakka 3, hristir svo haus- inn og glottir þegar vitleysan er orðin meiri en góðu hófi gegnir og færir þig inn í stofu í stólinn þinn til að kíkja á nýjustu frétt- irnar. Elsku frændi, það er stórt skarð hoggið í fjölskylduna við fráfall þitt. Takk fyrir allt og skil- aðu kveðju til allra þarna hinu- megin frá mér. Ég býst við að við sjáumst einn daginn aftur. Þín frænka, Guðlaug. Jón Grétar Vigfússon ✝ Birgir Matt-híasson fæddist í Reykjavík 9. októ- ber 1937. Hann lést á Hjúkrunarheim- ilinu Grund 25. júlí 2017. Foreldrar Birgis voru Matthías Þór- ólfsson bóndi í Ást- úni, f. 19. janúar 1900, d. 27. október 1961, og Steinunn Guðjónsdóttir húsmóðir, f. 7. september 1902, d. 15. júní 1995. Birgir átti eina systur, Hrafnhildi, f. 3. september 1936, maki Jón Hafsteinn Guðmunds- son. Hinn 5. júní 1994 kvæntist Birgir Guðrúnu Gerði Ásmunds- dóttur leikkonu, f. 19.11. 1935. Birgir ólst upp í Ástúni í Kópavogi og vann við búskap með föður sínum. Eftir lát Matthíasar tók hann við búinu. Samhliða bústörf- unum stundaði Birgir ýmsa aðra vinnu og seldi tún- þökur í samvinnu við Jón mág sinn. Þegar búskapur lagðist af í Ástúni fluttist hann að Hrafntóftum í Rangárvallasýslu og hóf þar trjárækt sem hann hafði mikla ánægju af. Einnig ráku þau Guðrún saman lítið ferðaþjón- ustufyrirtæki, Ferð og sögu, í nokkur ár. Útför Birgis fer fram frá Grafarvogskirkju í dag, 8. ágúst 2017, kl. 15. Ég sendi þér kæra kveðju nú komin er lífsins nótt, þig umvefji blessun og bænir ég bið að þú sofir rótt. Þó svíði sorg mitt hjarta þá sælt er að vita af því, þú laus ert úr veikinda viðjum þín veröld er björt á ný. Ég þakka þau ár sem ég átti þá auðnu að hafa þig hér, og það er svo margs að minnast svo margt sem um hug minn fer, þó þú sért horfinn úr heimi ég hitti þig ekki um hríð, þín minning er ljós sem lifir og lýsir um ókomna tíð. (Þórunn Sigurðardóttir) Hvíl í friði, Hrafnhildur Matthíasdóttir. Elsku Birgir frændi, ég og fjölskylda mín kveðjum þig með söknuði og þakklæti fyrir allt sem þú hefur veitt okkur. Það var alltaf svo notalegt að heim- sækja þig, hvort sem var til þín og ömmu í Ástúni, á Hrafntóftir og einnig til ykkar Guðrúnar á Grandaveginum. Þú varst hvers manns hug- ljúfi og ætíð tilbúinn að greiða götu vina og ættingja. Þú varst mjög handlaginn og bjóst til marga nytsama og fallega hluti. Mér eru minnisstæðir skíðasleð- arnir sem þú bjóst til fyrir okk- ur systkinin en þessir forláta sleðar voru með bremsum sem aðrir sleðar höfðu ekki í þá daga. Fallegu birkitrén og sólberja- runnarnir í garðinum mínum eru gjafir frá þér og minna mig á heimsóknir okkar á Hrafntóftir þar sem þú stundaðir ræktunar- störf síðustu þrjá áratugina eða svo. Það var alltaf jafn ánægju- legt að skoða með þér fallega skógarlundinn sem þú ræktaðir þar og fræðast um það sem þú varst að sinna. Við þökkum samfylgdina. Far þú í friði, friður Guðs þig blessi hafðu þökk fyrir allt og allt. (V. Briem) Matthildur og Gunnar. Við andlát Birgis Matthías- sonar er horfinn okkar besti vin- ur. Hann var búinn að glíma við erfið veikindi á síðustu árum og síðustu mánuðir búnir að vera honum mjög erfiðir og hann orð- inn þreyttur. Þá er gott að fá að sofna frá þessu öllu saman. Aldrei heyrði maður hann kvarta, sama á hverju gekk. Ég kynntist Birgi þegar ég var send til móður hans á vegum heimaþjónustu Kópavogs og í framhaldi af því fór ég sem ráðs- kona austur í Hrafntóftir til hans með tvo yngstu syni mína, þá fimm og tíu ára. Birgir var mikið ljúfmenni og mikill barnakall enda hændust strákarnir strax að honum. Hann talaði mikið við þá um lífið og tilveruna, vináttuna og um gildi samveru og samheldni. Hann var þeim góð fyrirmynd og óskaplega góður og gekk þeim svo sannarlega í föðurstað. Ég man eftir Birgi með drengina mína föðurlausa í fang- inu, allir að leggja sig eftir mat- inn eins og tíðkaðist þá í sveit- inni og allir undir sama teppinu. Þó að þeir væru stálpaðir strák- ar var ekki til umræðu að þeir lékju sér úti, þeir urðu að leggja sig eins og Birgir. Svo eltu þeir hann eins og litlir hvolpar hvert sem hann fór. Birgir var okkur einstaklega kær og þökkum við honum af öllu hjarta fyrir það sem skiptir okkur öll svo miklu máli í lífinu, ómælda umhyggju og yndislega vináttu. Hilmar Ingi og Anton Tjörvi þakka honum alla hjarta- hlýjuna og föðurumhyggjuna sem hann veitti þeim sem litlum drengjum og allar götur síðan. Við munum ávallt minnast hans með virðingu og væntumþykju. Blessuð sé minning þessa hjartahlýja vinar okkar sem við munum aldrei gleyma. Líf vort er tónn, á hörpu ljóss og húms það hljómar skammt, grætur og hlær við hliðskjálfs tíma og rúms, en hljómar samt, síðan einn dag – þann dag veit eng- inn spá – er dauðaþögn og tónninn liðinn hjá. Vinur í raun: hér hvílir þú svo hljótt, en hjarta nær ómar þitt líf sem lýsir gegnum nótt einn logi skær. Traust var þín hönd og trú við hlut- verk sitt, en tónsins djúp var góða hjartað þitt. Þökk sé þér vin: Við lifum lítil börn og líðum burt. Vor tónn er sár, við eigum enga vörn – um allt er spurt. Líf þitt er svar: á bak við skúr og skin við skynjum þig, hinn liðna trygga vin. (Jóh. úr Kötlum.) Elsku Guðrún, Hrafnhildur, aðrir ástvinir og þeir sem syrgja fráfall Birgis. Megi almættið leiða ykkur áfram á erfiðum stundum. Margrét, Hilmar Ingi og Anton Tjörvi. Nú er enn eitt góðmennið bú- ið að kveðja þessa jörð. Birgir Matthíasson frá Ástúni var mörgum kær sem til hans komu. Birgir var í mínum huga alger rokkstjarna því hann átti fullt af hestum og var ekkert nískur á að leyfa krakkakjána úr blokk- arhverfinu í Kópavogi að leika sér með trippunum. Ég var með ólæknandi áhuga á hestum og öllu sem var sveitalegt, en þar bjargaði Birgir öllu, sem bjarg- að varð. Ég fékk að taka þátt í heyskapnum og taka upp kart- öflur ásamt ýmsum gróðurtil- raunum á gulrótum eða gulróf- um sem voru svo seldar beint úr garði. Ekkert haggaði Birgi þó að ærslabelgir, sem að hann átti ekkert í væru að flækjast fyrir honum dags daglega. Enda var hann einstaklega barngóður og áhugasamur um það sem aðrir voru að gera. Hann var nú ekki að æsa sig yfir smáhlutum og því, sem skipti ekki máli, en allt- af var samt eins og hann ætti í manni hvert bein og sýnir það best þegar ég sem unglingur flyt út á land og langaði að hafa með mér einn af vinum mínum úr hesthúsinu. Falaðist ég því eftir að kaupa eitt trippið, sem var orðið tímabært að temja. Þá sagði hann að ég mætti velja mér eitt úr hópnum. Það var erfitt að gera upp á milli, en valdi að lokum litla brúna hryssu, sem reyndist mér vel. Þegar kom að því að borga grip- inn brosti Birgir bara og sagði að ég mætti eiga hana. Þannig gaf Birgir mér fyrsta hestinn minn, en þá hafði hann í samráði við Steinunni frænku sína áður verið búinn að gefa mér fyrsta reiðnámskeiðið mitt svo að nú var ég fær í flestan sjó. Ekki var það af því hann væri svo ríkur, því margir gefa minna sem eiga meira. Alltaf virtist hann eiga nóg af öllu því mér fannst hann svo sáttur með það sem hann hafði. Ekki losnaði Birgir við krakkaorminn þótt hann hætti búskap í Kópavogi og flytti aust- ur fyrir fjall að Hrafntóftum. Ég fór í bændaskóla og gerðist bóndi í nærliggjandi sveit. Svo það var afráðið, Birgir sat uppi með mig sem nágranna líka. Nokkrum árum síðar giftist hann vinkonu minni Guðrúnu Ásmundsdóttur og þá hófst nýr kafli í lífi þessa góða, rólynda, þrjóska og dásamlega vinar, sem við kveðjum með söknuði. Alltaf geymi ég í hjarta mínu ráðlegg- ingu sem er engu lík. Hann glímdi við erfið veikindi síðustu árin, þótt hann væri ekkert að gera þau að aðalumræðuefni, sagði hann við mig eitt sinn, er ég spurði hann hvort það væri ekki of erfitt fyrir hann að standa í kæfugerð svona lasinn. „Nei Gurrý, maður gefst aldr- ei upp, það er bara ekki inni í myndinni.‘‘ Elsku Birgir, ég og mín fjölskylda kveðjum þig með söknuði og sendum samúðar- kveðjur til allra þinna ástvina og frændfólks sem að skiptu þig svo miklu máli. Guðríður Júlíusdóttir. Birgir Matthíasson Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma, mágkona og frænka, RÓSA EIRÍKSDÓTTIR RAMSAY lést í St. Andrew, Jamaica, 17. júlí sl. Bálför hennar fer fram í St. Andrew, Jamaica 10. ágúst nk. Eiríkur Barnaby Ramsay Marcie Ramsey og börn Margaret Hope Ramsey og börn Solveig Thorarensen systkinabörn hinnar látnu Faðir okkar, tengdafaðir og afi, SIGURJÓN SAMÚELSSON, bóndi á Hrafnabjörgum í Laugardal v/Ísafjarðardjúp, lést á hjúkrunarheimilinu Eyri föstudaginn 4. ágúst. Útför verður frá Ögurkirkju laugardaginn 12. ágúst kl. 14. Blóm og kransar vinsamlegast afþakkaðir en þeim sem vilja minnast hans er bent á Hjúkrunarheimilið Eyri á Ísafirði. Samúel Sigurjónsson Ragnheiður Þórólfsdóttir Kristinn Sigurjónsson og barnabörn Ástkær eiginmaður minn, pabbi okkar og afi, SKÚLI B. ÓLAFS rekstrarhagfræðingur, Vesturströnd 31, Seltjarnarnesi, lést fimmtudaginn 3. ágúst síðastliðinn. Jarðarförin auglýst síðar. Guðbjörg R. Jónsdóttir Gunnar Skúlason Guðrún Gestsdóttir Jón Björn Skúlason Steinunn Hauksdóttir Jóhanna S. Ólafs Ingvi Arnar Sigurjónsson og barnabörn

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.