Morgunblaðið - 08.08.2017, Page 29
DÆGRADVÖL 29
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 8. ÁGÚST 2017
bestalambid.isBeztu uppskriftirnar okkar
Enn einn dagur
í Paradís
Bez
t á bo
rgarann
Stjörnuspá
21. mars - 19. apríl
Hrútur Þú skalt ekki hika við að rétta fram
hjálparhönd ef þér finnst á annað borð að
einhver sé hjálparþurfi. Ekki af því að þú ættir
að gera það, heldur af því að þeir eru hluti af
því sem þú ert.
20. apríl - 20. maí
Naut Ýmsir erfiðleikar eru fram undan ef þú
tekst ekki á við vandamálin hér og nú.
Reyndu umfram allt að leysa málin á mýkri
nótunum.
21. maí - 20. júní
Tvíburar Sýndu öðrum næga tillitssemi, sér-
staklega þar sem um sameiginleg fjárhags-
málefni er að ræða. Farðu varlega í spákaup-
mennsku, útkoman er ófyrirséð.
21. júní - 22. júlí
Krabbi Oft má leysa hlutina með hugviti og
litlum peningalegum kostnaði. Bestu lausn-
irnar bíða gjarnan þar sem síst skyldi.
23. júlí - 22. ágúst
Ljón Þú ert með frábæra hugmynd sem þú
vinnur að af öllu afli. Njóttu góðra stunda
með öðrum og þiggðu öll boð sem þér ber-
ast.
23. ágúst - 22. sept.
Meyja Viðbrögð fólks birtast ekki hvað síst í
svipbrigðum og öðru sem ekki liggur í augum
uppi. Sá/sú sem biður þig um að breyta regl-
unum gerir það eflaust aftur.
23. sept. - 22. okt.
Vog Gefðu þér tíma til að skoða samband þitt
við fólkið í kring um þig í dag. Ekki bera þig
saman við aðra, einbeittu þér frekar að þín-
um eigin viðfangsefnum.
23. okt. - 21. nóv.
Sporðdreki Hugsaðu þig tvisvar um áður en
þú eyðir peningum í dag og farðu varlega í
fjármálaákvörðunum í vinnunni eða einkalíf-
inu. Ein góð hugmynd getur af sér fleiri.
22. nóv. - 21. des.
Bogmaður Þú finnur á þér að eitthvað er í
uppsiglingu milli þín og ástvinar þíns. Farðu
varlega í eyðsluseminni, þú ert ekki beinlínis
óhlutdrægur.
22. des. - 19. janúar
Steingeit Það er svo margt sem þig langar
til að eignast að þú veist ekki hvar þú átt að
byrja. Vinir sem eru þér ekki alltaf sammála
reynast þér best.
20. jan. - 18. febr.
Vatnsberi Það eru allir að fríka út í vinnunni
og fólk er hvert öðru skrýtnara. Ef þú segir
vinum eða fjölskyldu frá hugdettu en færð
ekki þau viðbrögð sem þú vilt skaltu reyna
aftur seinna.
19. feb. - 20. mars
Fiskar Hugur þinn er hvorki hér né þar. Vertu
bara rólegur; allt hefur sinn tíma og þannig
verður útkoman best.
Fyrir helgi birti Sigrún Haralds-dóttir á Boðnarmiði skemmti-
lega mynd af fjörlegum hestum
með þessari stöku:
Geysast þeir um á grænum teigi,
gára í svörðinn pára,
sé ég í leik á sumardegi
sjálega og fríska klára.
Hér svarar Sigrún limru eftir Fíu
á Sandi, sem birtist í Vísnahorni á
föstudag:
Framundan bíður þín brekka
og bleksvartir dagar með ekka,
sturlun og dá
ef stefnirðu á
þá heimsku að hætta að drekka.
Og enn yrkir Sigrún og virðist
komið „Óþol“ í hana:
Víst er í því varla nokkur akkur
að viðra skoðun mína nú og hér;
að Donald Trump sé fífl og froðusnakkur
sem fer heil býsn í taugarnar á mér.
Helgi R. Einarsson er á sömu nót-
um, – Að „westan“:
Með opnum örmum var tekinn,
nú skældur bæði’ er og skekinn.
Ef þú leikur ei með,
þykist meira en peð
af miskunn og náð ertu rekinn.
Er rekið hann út hefur alla
óþæga miðaldra kalla
og obamacare
enn í kortunum er
undan fætinum hlýtur að halla.
Síðan fer Helgi að velta „Eðlinu“
fyrir sér:
Í veraldar valdabralli
virðist oft kynjahalli.
Gæska, þrár
og göfug tár
geta orðið að falli.
Og ekki er að spyrja að „Eigin-
girninni“:
Margur er því marki brenndur
að munnhöggvast á báðar hendur,
brýr að brenna,
boga spenna
og neyta meðan á nefinu stendur.
Ármann Þorgrímsson yrkir
„Vísu dagsins 3.8. 2017“ á Boðnar-
miði:
Á eftir sumri er oftast haust
á eftir hausti kemur vetur,
enginn lifir endalaust
en ýmsir gætu lifað betur.
Halldór Blöndal
halldorblondal@simnet.is
Vísnahorn
Hestar í leik, óþol og
obamacare
„ÞAÐ ER OF MIKIL SKRIFFINNSKA.
NÚ HVETJUM VIÐ TIL KÆRULEYSIS
Í STAÐINN.“
„ÞESSI HÁRGREIÐSLA FÆR EINA
OG HÁLFA STJÖRNU. VINSAMLEGAST
SKRIFAÐU NAFNIÐ ÞITT HÉRNA.“
Ferdinand
Hrólfur hræðilegi
Grettir
... tvær sælar
sófakartöflur.
Ó,
NEI!
HARMONIKKAN
MÍN ER Í
VIÐGERÐ
SLÓ EINHVER
HANA MEÐ HAMRI?
AF HVERJU
SPYRÐU AÐ
ÞVÍ? FÁÐU ÞÉR
LÖGFRÆÐING
SKO...
NEI, ÞETTA ER EKKI REYKJARLYKTMANSTU EKKI? HLAÐAN
BRANN Í GÆR!
HVAÐA LYKT
ER ÞETTA?
Eitt besta sjónvarpsefni sem umgetur eru lýsingar Sigurbjörns
Árna Arngrímssonar frá frjáls-
íþróttamótum. Heimsmeistaramótið
stendur yfir þessa dagana í Lund-
únum og hefur kappinn sem endra-
nær farið á kostum.
Sigurbjörn lifir sig gjarnan inn í
keppnina og er alla jafna spenntari
og sveittari en keppendur sjálfir.
Það hvarflar heldur ekki að honum
að fara í felur með sínar eigin til-
finningar, vonbrigði og gleði.
x x x
Fyrst þegar Víkverji kveikti átækinu gat Sigurbjörn ekki á
sér heilum tekið vegna afleitrar
frammistöðu breskrar sjöþraut-
arstúlku í hástökkinu. Hvað ef?
Daginn eftir var hann ennþá að
velta sér upp úr þessu enda sú
breska framarlega í hinum grein-
unum sex. Víkverji vonar að Sig-
urbjörn jafni sig á þessu er líður á
vikuna. Og ekki síðar en um næstu
helgi.
Okkar maður á ekki í nokkrum
vandræðum með að halda spennu-
stiginu í hæstu hæðum meðan á
maraþonhlaupinu stendur, jafnvel
þótt hálfur annar klukkutími sé eft-
ir í mark. Loks sleit Keníumaður
nokkur sig frá hópnum og þótti Sig-
urbirni einsýnt að hann myndi fara
með sigur af hólmi. Átti samt holl
ráð handa hlauparanum: „Nú er
bara að villast ekki!“
x x x
Sigurbjörn er mikill áhugamaðurum spámennsku og fyrir vikið
synd að hann skuli vera svona of-
boðslega illa spámannslega vaxinn
sjálfur; veðjar iðulega á rangan
hest. Eftir að meira að segja Usain
Bolt hafði brugðist honum taldi Sig-
urbjörn sig alveg öruggan í 100
metra hlaupi kvenna. Þar kom til
leiks Jamaíkukona sem átti ekki að
geta tapað hlaupinu. En gerði það
samt. Var raunar óralangt frá sigri.
„Jahérna,“ gall í Sigurbirni.
Annars komst hann í mesta geðs-
hræringu þegar eitt hreystimennið í
kúluvarpinu mótmælti því að kast
þess var dæmt ógilt með því að
frussa á myndavélina. Við þann
gjörning flaug Sigurbjörn beint upp
á háa C-ið. vikverji@mbl.is
Víkverji
Í upphafi var Orðið og Orðið var hjá
Guði og Orðið var Guð.
Jóh. 1:1
Fasteignir