Morgunblaðið - 08.08.2017, Qupperneq 31

Morgunblaðið - 08.08.2017, Qupperneq 31
MENNING 31 MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 8. ÁGÚST 2017 SKOÐAÐU ÚRVALIÐ Á VEFSÍÐUNNI OKKAR www.skornirthinir.is ÖRUGG SKREF ÚT Í LÍFIÐ í fyrstu skónum frá Biomecanics Biomecanics-skórnir auðvelda börnum að taka fyrstu skrefin. Aukinn stuðningur frá hliðunum bætir jafnvægi og eykur stöðugleika. Börnin komast auðveldar áfram og af meira öryggi þökk sé sveigjanlegum sóla og sérstyrktri tá. Stærðir: 18–24 Verð: 7.995 Margir litir Morgunblaðið/Golli raungreinar í háskóla og líta á tón- listina sem gefandi áhugamál frekar en starfsferil? Kjartan segir það mikinn mis- skilning að halda að slæmar atvinnu- horfur bíði tónlistarfólks á Íslandi, og raunar sýni tölfræðin að tónlist- arhagkerfið er mikilvæg stoð í ís- lensku atvinnulífi. „Óhætt er að full- yrða að um 1.500 stöðugildi séu í íslenska tónlistarheiminum, en margir kollegar mínir telja að talan sé nær 2.000 stöðugildum. Í þessum hópi má finna allt frá fólki sem hefur lífsviðurværi sitt af að semja og spila tónlist, atvinnusöngvara sem syngja jafnt við óperuuppfærslur og jarðar- farir, og meðlimi sinfóníuhljóm- sveita. Þá má áætla að um 6-700 manns starfi við tónlistarkennslu, og væru enn fleiri ef skólarnir fylgdu þeim fyrirmælum grunnskólalaga að veita öllum nemendum tónmennta- kennslu,“ segir Kjartan. „Til sam- anburðar starfa um þúsund læknar í landinu, og sjómenn á Íslandi eru um 4.000 talsins.“ Tækifærin í greininni eru af ýms- um toga, og segir Kjartan ekkert því til fyrirstöðu fyrir ungt hæfileikafólk að skapa sín eigin störf í tónlist. „Við búum svo vel að gríðarleg tónlistar- neysla er á Íslandi, og mun meiri en flestir gera sér grein fyrir. Þarf ekki nema að skoða tónleikaúrvalið á að- ventunni, þegar landsmenn hafa úr fjölda klassískra og poppaðra jóla- tónleika að velja. Eftirspurnin er mikil, rétt eins og framboðið ,og kaupir almenningur gríðarlegt magn af tónlist í einu eða öðru formi.“ Tónlistarsenan á Íslandi er blóm- leg, og segir Kjartan að það hafi ekki gerst af sjálfu sér. Framsýnir menn hafi lagt grunninn að tónlistar- skólakerfinu eins og það er í dag, og hugsjóninni verið haldið á lofti af þeim sem á eftir komu. „Stór ástæða fyrir þeim krafti sem er í tónlistarlíf- inu hér á landi er að við höfum sent tónlistarfólkið okkar út í heim til að læra við fremstu tónlistarskóla aust- an hafs og vestan. Síðan hefur þetta fólk snúið til baka með menntun sína og upplifanir í farteskinu, og úr þessu orðið mjög skemmtileg blanda.“ Til að skilja betur hvað neysla tón- listar er stór hluti af daglegu lífi Ís- lendinga segir Kjartan að sú hug- mynd hafi kviknað þegar hann tók þátt í kjarabaráttu meðlima Sinfón- íuhljómsveitar Íslands seint á síð- ustu öld, að það gæti reynst fyrir- taks leið til að styrkja stöðu íslensks tónlistarfólks að halda tónlistar- lausan dag einu sinni á ári. „Þá myndi engin tónlist heyrast í ljós- vakamiðlum eða útvarpi og engin tónlist væri flutt í jarðarförum eða messum. Ég hugsa að margir geti hreinlega ekki gert sér það í hug- arlund hvernig umhverfi okkar og líf væri ef við hefðum enga tónlist.“ Fólk vill búa þar sem er tónlist Tónlistarsenan gerir meira en að skapa tónlistarfólki laun og gleðja tónlistarunnendur. Bendir Kjartan á að íslensk tónlist breiði út hróður landsins og áhugaverðir tónleikar og hátíðir bæði laði að gesti utan úr heimi og auðgi upplifun ferðamann- anna sem sækja landið heim. „Það er t.d. vel þekkt að á hverja sýningu Ís- lensku óperunnar koma óperuunn- endur sem hafa gert sér sérstaka ferð til Íslands, og þá sér í lagi þegar flutt eru verk sem eru ekki á fjöl- unum á hverjum degi í óperuhús- unum erlendis,“ segir Kjartan og bætir við að í blómlegri tónlist- arsenu felist lífsgæði sem jafnvel laði að erlenda fjárfesta og fyrir- tæki. „Ég heyrði góða sögu frá fyrstu hendi frá kunningja mínum sem hafði aðstoðað erlent stórfyr- irtæki sem var að skoða aðstæður fyrir nýtt álver hér á landi. Hann spurði fulltrúa fyrirtækisins hvað myndi ráða valinu ef tveir staðir væru í boði til að byggja álver, með allar forsendur fyrir rekstri álvers- ins þær sömu? Svarið var, að ef ann- að landið væri með sinfóníuhljóm- sveit en hitt ekki, þá væri það landið með hljómsveitinni sem yrði fyrir valinu. Því fólk vill búa og starfa í löndum þar sem hægt er að finna sinfóníuhljómsveit og öflugt menn- ingarlíf, og búa í bæjarfélögum þar sem hægt er að senda börnin í tón- listarskóla.“ Tónelsk „Við búum svo vel að gríðarleg tónlistarneysla er á Íslandi,“ segir Kjartan um starfsumhverfi tónlistarfólks. Snemma í kosningabaráttu síðustu forsetakosninga í Bandaríkjunum spáði kvikmyndaleikstjórinn Michael Moore því réttilega að Donald Trump myndi vinna. Moore gerir forsetann að umfjöllunarefni í væntanlegri kvikmynd sem nefnist Fahrenheit 11/9 og í einleiknum The Terms of My Surrender í leikstjórn Michaels Mayer sem frumsýndur var í júlílok í Belasco-leikhúsinu á Broadway í New York. Í nýlegu sjónvarpsviðtali við Stephen Colbert sagðist Moore ósáttur við Trump sem forseta. „Ég neita að búa í landi þar sem Donald Trump er forseti, en ég ætla ekki að flýja land. Svo eitthvað verður að breytast.“ Í sama viðtali sagðist hann þeirrar skoðunar að háð og húmor væri besta leiðin til að sigra Trump. „Við þurfum að mynda hersingu fólks sem ræðst að honum eins og býflugnasveimur. Fyrir nokkrum mánuðum stakk ég upp á því að við hefðum her grínista, vegna þess að ég held að leiðin til að sigra hann sé að nota háð. Hann er svo hörundsár, að við þurfum bara þúsund eða millj- ón lítil háðskomment sem stinga – án þess að meiða hann – og smjúga inn undir húðina, vegna þess að hann þol- ir ekki að láta hlæja að sér.“ Í viðtali við New York Times sagði Moore um einleikinn: „Það væri ein- földun að segja að hann fjallaði aðeins um Trump. Ég held að áhorfendur muni hlæja aðra mínútuna en leita að heykvísl og kyndlum þá næstu.“ Í frétt The Guardian um málið er tekið fram að Belasco-leikhúsið sé aðeins tíu húsalengjum frá Trump-turninum. Moore segir eitthvað verða að breytast AFP Átök Bandaríkjaforsetinn Donald Trump og leikstjórinn Michael Moore.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.