Fréttatíminn - 11.02.2017, Side 8

Fréttatíminn - 11.02.2017, Side 8
8 | FRÉTTATÍMINN | Laugardagur 11. febrúar 2017 Haukur Már Helgason ritstjorn@frettabladid.is Samkvæmt þekktu módeli er afneitun hið fyrsta af fimm stigum sorgar. Afneitun á sér nú þetta nafn meðal valdhafa, hvenær sem hið ómögulega gerist og almenningur rís gegn þeim. Ef ekki George Soros þá hljóti einhver önnur peningaöfl að búa að baki, valdamiklir aðilar, erlendar leyniþjónustur, eða hvernig ætti almenningur að geta haft svona mikil áhrif? Sorin Grindeanu heitir formað- ur jafnaðarmannaflokksins PSD og forsætisráðherra Rúmeníu frá ára- mótum, það er nú í rúman mánuð. Flokkur hans hlaut 45% fylgi í kosn- ingum í desember, og er þar með langstærsti stjórnmálaflokkur lands- ins. Á sama tíma er þessi eini vinstri- flokkur landsins, í huga stórs hluta almennings, gegnsýrður af spillingu. Formann flokksins, Liviu Dragnea, má ekki skipa í ráðherraembætti vegna dóms sem hann hefur hlotið – um kosningasvindl. Að flokkurinn njóti meira fylgis en aðrir segir að- eins hálfa söguna: flokkakerfið sjálft er óvinsælt, þátttaka í kosningun- um var undir 40 prósentum og 11% landsmanna segjast treysta þinginu. DNA 60% Rúmena bera hins vegar traust til stofnunarninar DNA. DNA er skammstöfun fyrir Directia Nationala Anticoruptie – Andspill- ingarráð mætti þýða það, eða jafn- vel, með ekki nema hóflegu glotti, Embætti sérstaks saksóknara. Stofn- unin var sett á laggirnar árið 2003 en hafði framan af orð á sér fyr- ir seinagang og þýðingarleysi. Það breyttist eftir að Laura Kövesi tók við embætti aðalsaksóknara stofn- unarinnar, árið 2013. Kövesi var þá fertug og þegar þekkt sem yngsti ríkissaksóknari í sögu landsins. Árið 2014, fyrsta heila Ný ríkisstjórn Rúmeníu hafði aðeins verið við völd í um mánuð þegar hundruð þúsunda koma saman á götum og torgum, kvöld eftir kvöld, og krefjast afsagnar forsætisráðherrans. Fálmandi eftir ástæðum, öðrum en þeim sem blasa við mótmælendunum, gripu fulltrúar stjórnarinnar til kunnuglegra útskýringa á ástandinu: Soros. „Þetta var fyrir opnum tjöldum!“ Viðtal við , blaðamann hjá Organized Crime and Corruption Reporting Project „Eftir áralanga spillingu er þetta ótrúleg vakn- ing í samfélaginu,“ segir mér Romana Puiulet, rúmenskur blaðamaður. Ert þú þátttakandi í mótmælunum, spyr ég, eða fylgistu aðeins með sem blaðamaður? „Ég tók þátt í mót- mælagöngunum,“ svarar hún. „Og gangi þér vel að finna heiðarlegan blaðamann sem gerði það ekki.“ Hún segir mér að frá falli kommúnismans hljóti PSD yfirleitt atkvæði eldri kjósenda, enda hafi þeir dregið til sín allt vinstra-rófið. „Flestir hafa ekki áttað sig á hættunni fyrr en nú að það skilur hvað felst í spillingu. Ein skemmtilegasta afleiðingin einmitt núna er að allir sitja og lesa lög, lesa sér til um spillingu.“ Treystir fólk fjölmiðlum í landinu, eru þeir marktækir, til dæmis um fjölda- mótmælenda og slíkt, eða reiðir fólk sig frekar á samfélagsmiðla til að komast í upplýsingar? „Tveimur stærstu sjónvarpsstöðvunum er misbeitt hræðilega,“ svarar Puiulet. „Önnur er í eigu Dan Voiculescu, sem nú er í fangelsi og vonast til að losna í krafti tilskipunarinnar. Hin er í eigu Sebast- ian Ghita, sem er nú á flótta vegna úrskurðar í spillingarmáli sem DNA höfðaði gegn honum.“ Til staðfestingar sýnir Puiulet mér mynd af mann- inum á tilkynningu frá Europol undir yfirskriftinni „Europe’s most wanted fugitives“. „Sjónvarpsstöðin hans, Antena 3, hamrar á því dag eftir dag að hann sé fórnarlamb pólitískra ofsókna.“ Er enn fólk í embættum sem tilheyrði kommúnísku elítunni fyrir 1989 eða hafa bein tengsl við hana, spyr ég. „Já. Og stórir hópar fólks hafa nú búið og starfað í öðrum löndum. Þau sjá hvernig heilbrigt samfélag lítur út. Mörg þeirra snúa aftur til að taka þátt í mótmælunum. Þetta er barátta gegn spillingunni sem hefur haldið okkur í fátækt. Hefðin, alveg frá falli komm- únismans, er að eldra fólk kýs PSD. Yngra fólk sér þá sem hættulegasta og spilltasta flokkinn.“ Hver eru næstu skref mótmælanna? „Fólk skipuleggur sig að mestu leyti gegnum Facebook og er að stofna marga viðburði þar. Fólk vill vera á götunum þangað til forsætisráðherrann segir af sér. Afsögn væri ekki nóg ein og sér en við getum ekki liðið að ríkisstjórnin stundi blákaldan þjófnað. Það myndi setja fordæmi. Við vissum að landið væri fullt af spillingu – ég fæst við að rannsaka hana. En þetta var fyrir opnum tjöldum. Tilraun til að breyta lögunum í þágu þeirra sjálfra.“ Ertu bjartsýn um framhaldið? „Þau hunsa mótmælin, ljúga látlaust, og ætla að koma tilskipuninni í gegn eftir öðrum leiðum. Svo nei, ég er alls ekki bjartsýn.“ Uppreisnin í Rúmeníu Fjölmennustu mótmæli frá 1989 árið hennar sem aðalsaksóknari DNA, höfðaði embættið mál á hend- ur þúsund manns, þar af fimm þingmönnum, tveimur fyrrverandi ráðherrum og 24 borgar- og bæjar- stjórum. Yfir 90 prósent málanna leiddu til sakfellingar. Meðal þeirra sem embættið tók til rannsóknar var þáverandi forsætis- ráðherra Rúmeníu, einnig formaður PSD, Victor Ponta. Ponta var sakaður um skjalafals, aðild að skattsvikum og peningaþvætti í störfum sínum sem lögmaður, árin 2007 og 2008. Sumarið 2015 leiddi rannsóknin til ákæru í nokkrum liðum. Ákæran varð þó ekki, ein og sér, til þess að Ponta segði af sér. Annað kom til. Eldurinn Í október 2015 létu 64 lífið þegar eldur kom upp á skemmtistaðn- um Colectiv í Búkarest. Yfir hund- rað slösuðust. Mótmælahreyfing spratt fram, sem sagði spillingu um að kenna og krafði stjórnvöld um ábyrgð: Klúbburinn hafði fengið starfsleyfi frá borginni án samþykkis brunaeftirlitsins. Þessi 400 fermetra skemmtistaður var þakinn eldfimri hljóðeinangrun að innan, hafði að- eins einn útgang, 80 sentímetra breiðar dyr, og eitt slökkvitæki. Mótmælin í kjölfar brunans risu hæst þann 3. nóvember, þegar tug- þúsundir komu saman við aðset- ur ríkisstjórnarinnar og kyrjuðu „skammist ykkar“ undir slagorðinu „spilling drepur“. Þann 4. nóvember baðst ríkisstjórn Ponta loks lausnar. Stjórnmálamenn gegn DNA Rúmu ári síðar starfa 120 saksóknar- ar DNA að rannsókn yfir 6.000 Barn lýsir yfir ást sinni til Rúmeníu í mótmælunum á götum Búkarest. Myndir | Getty

x

Fréttatíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.