Fréttatíminn - 11.02.2017, Blaðsíða 40

Fréttatíminn - 11.02.2017, Blaðsíða 40
Grísk jógúrt Ofurfæða! Stútfull af góðri fitu og próteini Lífrænar mjólkurvörur www.biobu.is Morgunmatur: Grísk jógúrt, múslí, sletta af agave Eftirréttur: Grísk jógúrt, kakó, agave chia fræ Köld sósa: Grísk jógúrt, handfylli rifin gúrka, 2 hvítlauksrif, salt og pipar LAUGARDAGUR 11. FEBRÚAR 20174 HEILSA Mér er annt um hafið Ný bók eftir Ingibjörgu Kr. Ferdinandsdóttur komin út. Unnið í samstarfi við Garð hugans. Ingibjörg Kr. Ferdinandsdóttir hefur sent frá sér bókina Rödd hafsins sem hún lýsir sem 15 mínútna hugleiðslu/innra ferða- lagi þar sem þú ferð niður í fjöruna þína og út í haf. „Á því ferðalagi um heimkynni hafmeyjar, sem tekur þig með sér af stað, skoðar þú vistkerfi ná- granna okkar sem lifa á sama tíma svo fjarri okkur en þó svo nærri. Ég er að tala um heimkynni sjávar. Mér er annt um hafið þar sem ég ólst upp við það á Kjalarnesi og á óteljandi minningar með systkinum mínum og bestu vinkonu. Fjörur eru eitthvað svo nátengdar okkur Ís- lendingum, þær eru fjársjóðsstaðir bernskunnar, vekja von og líka ótta við hafið sem er róandi en einnig ógnvekjandi á sama tíma,“ segir Ingibjörg. „Með bókinni minni, Rödd hafs- ins, geri ég mér vonir um að lesend- ur finni til samkenndar með þeim sem lifa í hafinu og virði vistkerfi þess. Fari jafnvel að hugsa hvern- ig þeir geti lagt sitt að mörkum í umhverfismálum. Hafið þekur 2/3 jarðarinnar og það er sorglegt að hugsa til þess að mörg hundruð tonn af rusli lendi daglega í því. Hvenær var byrjað að líta á hafið sem sjálfsagðan ruslahaug? Maður spyr sig...“ Hvenær fékkstu hugmyndina að bókinni? „Það var sumarið 2014 í fjöru bernsku minnar á Kjalarnesi. Við systur fórum niður i fjöru og tókum smá hugleiðslu. Í henni kom þessi sterka tilfinning yfir mig að ég gæti gert hafinu gagn - gæti lagt mitt af mörkum til að hjálpa vistkerfi hafsins á einhvern hátt. Margt smátt gerir eitt stórt, ekki satt? Ég fór heim og byrjaði að hripa niður einhverjar hugmyndir. Um nóttina dreymdi mig síðan afar sérstæðan draum sem kom mér af stað, að ein- hverju viti, í skrifunum! Þannig varð bókin til.“ Rödd hafsins fæst í öllum helstu bókabúðum landsins og á fésbók- arsíðu höfundar, Garður hugans. Fegraðu þig með fæðu Lífræn sleipi efni frá Yes Innihalda engin aukaefni eða skaðleg efni sem geta verið ertandi fyrir slímhúðina. Unnið í samstarfi við Icecare. Yes sleipiefnin eru sér-staklega hönnuð fyrir konur sem eru komnar á breytingaskeiðið, hafa ný- lega eignast barn, verið í meðferð við krabbameini eða vegna langtíma veikinda eiga við þurrk í leggöng- um og slímhúð að stríða. Yes sleipiefnin eru unnin úr lífræn- um innihaldsefnum, meðal annars Aloe Vera, Flax extract og Guar Gum. Þau eru fáan- leg með olíubasa og vatnsbasa. Yes sleipiefnin hafa hlotið lífræna vottun frá The Soil Association í Bretlandi. Sleipiefn- in innihalda engin aukaefni eða skað- leg efni sem geta verið ertandi fyrir slímhúðina. Þau klístrast ekki, eru rakagef- andi fyrir slímhúð- ina og þau má bæði nota innvortis og útvortis fyrir samfarir. Nánari upplýsingar eru á www.icecare.is. Yes línan fæst í öllum apótekum og heilsu- verslunum. • Glycerin • Hormóna • Glycols • Parabena • Rotvarnarefni • Ilmefni • Silicon • Jarðolíuefni • Arginín • Önnur ertandi efni fyrir húð. Yes sleipiefnin eru laus við: Avokadó er frábært til þess að nota í andlitsmaska. Stappaðu avokadó, heitu vatni og hunangi saman og smyrðu á andlitið. Leyfðu þessu að næra andlitið í nokkrar mín- útur og skolaðu það síðan vel með volgu vatni. Gamla góða trixið með gúrku- sneiðarnar er alltaf klassískt til þess að fríska upp á augnsvæðið en kældir tepokar með svörtu tei eru líka vel brúklegir til þess að draga úr baugum og þrota. Settu olífuolíu í bað- ið, 1-2 matskeiðar. Gerir sama gagn og dýrar baðolíur. Þú getur sett dropa af náttúrulegri ilm- kjarnaolíu til þess að fá smávegis ilm. Búðu til líkams/andlits- skrúbb með sykri, hunangi og kókosolíu. Einnig geturðu notað blöndu af haframjöli, sítrónusafa og hunangi. Eplaedik má nota tvisvar í mánuði til þess að hreinsa eiturefni sem safnast upp í hárinu. Eplaedik má einnig nota sem tóner fyrir andlitið, það styrkir húðina og minnkar svitaholur. Smyrðu kókosolíu á þig alla/n og þú verður mjúku/ur sem barnsrass. Hana má líka setja í bað- ið, á andlitið og nota sem djúpnæringu fyrir hárið. Það getur verið freistandi að fjárfesta í rán­ dýrum maska og kremum sem eiga að gera kraftaverk fyrir útlitið. En stundum má nota það sem hendi er næst til þess að fríska upp á húð og hár og það þarf ekki að kosta formúu.

x

Fréttatíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.