Fréttatíminn - 11.02.2017, Blaðsíða 20
20 | FRÉTTATÍMINN | Laugardagur 11. febrúar 2017
Tryggvagötu 15 · 101 Reykjavík · Opið 10-18 mán–fim · 11-18 fös og 13-17 um helgar · borgarsogusafn.is
Jóhanna Ólafsdóttir
Ljósmyndir / Photographs
28.1. – 14.5.2017
©
Jó
ha
nn
a
Ó
la
fs
dó
tti
r ·
R
au
nv
er
ul
eg
ís
le
ns
k
gl
eð
i ·
(B
ja
rn
i Þ
ór
ar
in
ss
on
o
g
Bi
rg
ir
A
nd
ré
ss
on
) ·
H
ön
nu
n:
H
G
M
Ógeðslegir hlutir sem
framkalla líkamleg
viðbrögð
Þóra Tómasdóttir
thora@frettatiminn.is
Allt við líkamsbyggingu kakkalakka er óaðlaðandi
Steiney Skúladóttir, leikkona
„Mér finnst allt brak í líkamshlut-
um ógeðslegt. Þegar fólk er að
láta braka í puttunum á sér eða
hnakkanum og svoleiðis. Margir
gera þetta án þess að gera sér
grein fyrir hvað þetta er ógeðslegt.
Ég myndi aldrei gera þetta sjálf
og mér skilst að þetta eigi að vera
óhollt, svo fólk má endilega hætta
að gera þetta.
Allskonar ískur framkallar líka
hjá mér líkamleg viðbrögð, eins og
þegar hnífur rekst í þurran disk.
Þá fæ ég þörf fyrir að ýta á diskinn
eða nudda hann eins og til að gera
hann mýkri og ekki svona staman.
Mér finnst líka ógeðslegt að fara
með höndina ofan í holu þar sem
er myrkur og maður sér ekki hvað
er ofaní. Ég fríka út við tilhugsun-
ina og var einhverntíma á safni
þar sem þessi leikur var í boði
fyrir gesti. Ég gæti ekki tekið þátt
í svona, þegar þú veist ekki hver
áferðin er eða við hverju eigi að
búast. Að stinga hendinni ofan
í eitthvað þar sem er til dæmis
kakkalakki. Ég fæ hroll við til-
hugsunina. Mér finnst allt við útlit
kakkalakka ógeðslegt. Stærðin,
fálmararnir á hausnum, áferðin og
öll líkamsbygging þeirra er mjög
óaðlaðandi.“
Fæ hroll af farsinu inní pulsu
Berglind Pétursdóttir, dagskrárgerðarkona og
samfélagsmiðlasérfræðingur
„Frá því að ég var svona
þriggja ára hef ég fengið
svona ónotatilfinningu í
gegnum allt höfuðið við
tilhugsunina um farsið
inni í húðinni í puls-
um. Ég finn til utan-
um allan heilann.
Bara við það segja
frá þessu finn ég
pulsulykt í nefinu
og kúgast.
Annað sem mér
finnst ógeðslegt er
þegar maður er ekki bú-
inn að pússa á
sér neglurnar og
það er svona smá
flís eða eitthvað
hrjúft á henni sem
krækist í bómull.
Mér finnst eins og
nöglin geti rifnað af
eða bognað í öfuga átt.
Ég er alltaf með gervi-
neglur og finn það núna,
þegar eg er ekki með þær, að
mínar neglur eru alltaf að krækj-
ast í bómull. Það er jafn ógeðslegt
og að klóra í töflu. Viðbjóður sem
leiðir út í alla puttana.“
Svindlar á ömmu sinni
Gunnar Hansson, leikari
„Versta martröð sem mig hef-
ur nokkurntíma fengið, hljómar
kannski ekki hættulega, en hún
er svo ótrúlega óþægileg að ég get
ekki lýst henni með orðum. Tilf-
inningin sem ég fæ þegar ég hugsa
um hana er ekki ósvipuð og þegar
ég hugsa um að bíta í ull, nema
bara verri.
Mig dreymdi þessa martröð
margoft. Hún snýst um að ég var
við það að setjast í sófa sem leit
út fyrir að vera ógeðslega mjúk-
ur. Hann var alltaf blár, risastór
með grófu ullaráklæði og virtist
vera svona sófi sem þig langar að
fleygja þér í. Nema að þegar ég
settist í hann þá var hann grjót-
harður. Bara við það að segja þetta
upphátt fæ ég líkamleg viðbrögð.
Ég fæ svona ónotatilfinningu, það
er reyndar alltof væg lýsing. Þetta
er óþægilegasta tilfinning sem ég
hef fundið.
Þegar mig hefur fengið þessa
martröð hef ég meðvitað
reynt að vakna úr henni.
Þegar ég vaknaði gat
ég ekki lagst aftur á
koddann því þá kom
þessi fáranlega til-
finning að það sem
átti að vera mjúkt var
hart. Ég fæ bara inn í
bein við að hugsa um
þetta. Ég er til dæmis í
ullarpeysu núna og mig
langar bara úr henni.
Svona lagað á að
vera í hryllings-
myndum.
Draumurinn er alltaf nátengd-
ur öðrum hræðilegum draumi.
Þetta er eiginlega tvískipt
martröð en samt órjúf-
anleg heild. Þá er ég að
spila við ömmu mína og
svindla. Ég vil það ekki
en ég geri það samt og
líður svo hræðilega illa
með það. Þetta í bland
við þennan sófa er verra
en allt sem ég veit um.
Þetta eru þeir hlutir sem
virkilega hræða mig.“
Steiney Skúladóttir hatar ískur sem
myndast þegar hnífur rekst í þurran
disk. Þá langar hana að nudda diskinn
og gera hann mýkri. Mynd | Hari
Berglind Pétursdóttir fær verk
í heilann af að hugsa um involsið
í pulsu.
Gunnar
Hansson fær
martraðir um
hryllilegan
sófa og það
að svindla á
ömmu sinni.
Mynd | Birgir
Ísleifur
MIÐASALA | BORGARLEIKHUS.IS