Fréttatíminn - 11.02.2017, Blaðsíða 48

Fréttatíminn - 11.02.2017, Blaðsíða 48
LAUGARDAGUR 11. FEBRÚAR 201712 ÁSTIN Rólegt og endurnærandi umhverfi á Reykjavík Spa Vinsælar spameðferðir og fjölbreytt nudd í frábærri heilsulind á Grand Hótel Reykjavík. Unnið í samstarfi við Íslandshótel. Reykjavík Spa er stórglæsileg snyrti- og nuddstofa með fallegri heilsulind þar sem lögð er áhersla á rólegt, slakandi og endurnærandi umhverfi. Reykjavík Spa er á Grand Hótel Reykjavík í Sigtúni. Snyrti- og nuddstofan hefur notið mikilla vinsælda síðan hún var opnuð fyrir tæpum fimm árum. Á snyrtistofunni eru sex rúmgóð herbergi fyrir fjölbreyttar snyrti-, nudd- og spameðferðir. „Þetta byrjaði voða smátt þegar við opn- uðum í júní 2012. Þá vorum við tvær að vinna hér en núna erum við orðnar fjórtán. Við erum alltaf að bæta þjónustuna og vinsæld- irnar eru sömuleiðis alltaf að aukast,“ segir rekstrarstjórinn Aðalheiður Ósk Þorleifsdótt- ir, Allý, sem hefur starfað á Reykjavík Spa frá opnun. Vinsælar spa meðferðir Í heilsulindinni í Reykjavík Spa eru tveir rúm- góðir heitir pottar, 39°C og 41°C, infrarauð sauna, gufuklefi og notalegt hvíldarsvæði með hægindastólum, kertaljósum og róandi arineldi. Allir gestir hafa aðgang að glæsileg- um búningsklefum og fá baðslopp, hand- klæði og inniskó til afnota. Aðgangseyrir að Reykjavík Spa er 4.200 krónur en aðgangur- inn fylgir með fyrir þá sem fara í dekur og nudd. Opið er til 19 á kvöldin. Hvaða spa meðferðir eru í boði? „Spa meðferðirnar eru eins og hálfs tíma meðferðir. Við byrjum á líkamsskrúbbi og smá andlitsdekri. Svo er farið í sturtu og við tekur 50 mínútna heilnudd. Þar stend- ur valið á milli fjögurra þema; kókosdekurs, lavenderdekurs, sítrusdekurs og þaradekurs. Það síðastnefnda er sérstaklega vinsælt hjá útlendingum. Við reynum að hafa þetta alveg séríslenskt og kaupum efni inn hjá Sjávar- smiðjunni á Barðaströnd fyrir þaradekrið og ýmislegt frá Jurtaapótekinu.“ Auk almennra snyrtimeðferða og spa með- ferða er líka boðið upp á nudd í Reykjavík Spa. „Við erum með ýmsar tegundir af nuddi, allt frá slökunarnuddi upp í íþróttanudd, magnesíum-nudd og nudd fyrir ófrískar kon- ur. Þá bjóðum við upp á heitskeljanudd en það eru mjög fáir sem bjóða upp á svoleiðis lúxus,“ segir Allý en nuddarnir á Reykjavík Spa eru faglærðir og hafa flestir starfað þar lengi. Er það rétt sem maður hefur heyrt að það þyki ákveðinn gæðastimpill að hafa starfað sem nuddari eða snyrtifræðingur hjá Reykja- vík Spa? „Já, við erum með frábært starfsfólk og ég er þeim afar þakklát fyrir vel unnin störf. Við reynum að hugsa vel um mannauðinn,“ segir Allý. „Hann er jú kjarninn og hjartað í því sem við gerum.“ Endurnærðir gestir Þessi infrarauða sauna, geturðu sagt okkur aðeins meira frá frá henni? „Já, hún þykir mjög heilsubætandi og er talin góð fyrir fólk sem er með gigt. Og reyndar gegn öllum mögulegum kvillum. Hit- inn í saununni á ekki að vera meiri en svona 50 gráður og fólk er þarna inni helst uppund- ir 20 mínútur. Sumir byrja að vísu hægt og aðlaga sig smám saman. Þetta hefur verið mjög vinsælt sem sést á því að við byrjuðum með lítinn klefa en stækkuðum hann mjög fljótt. Sumir kaupa mánaðarkort og koma hingað á hverjum degi í infrarauða saunu, taka törn til að bæta sína líðan.“ Hún segir jafnframt að mikið sé um fastagesti í Reykjavík Spa, fólk sem komi aft- ur og aftur. Er dýrt að fara á Reykavík Spa í saman- burði við aðra staði ? „Ég held við séum bara í góðu meðallagi. Ég get allavega fullyrt að gestir okkar fara upp til hópa endurnærðir og slakir frá okkur.“ Er mikið um það að pör og hópar komi saman til ykkar í Reykjavík Spa? „Já, það er mjög vinsælt. Við fáum til okk- ar allskonar hópa, til að mynda gæsahópa og stóra hópa frá vinnustöðum sem hafa kannski tekið allan daginn hjá okkur. En við bjóðum líka upp á fjölbreytta möguleika fyrir hópa og þrjár týpur af tilboðum sem ættu að henta öllum.“ Allý segir það sífellt algengara að pör komi saman í spa-ið. „Þá gefur fólk sér gjarn- an tíma í spa-inu, pantar sér jafnvel mat og drykk og fer svo aftur í spa-ið. Svo eru sumir sem fara upp á hótel og gista þar á eftir.“ Hún segir að allskonar hópar komi til þeirra í meðferð og dekur. „Já, pör, mæðgur, systur, vinkonur, saumaklúbbar. Jafnvel fleiri kynslóðir saman. Fyrir jólin kom til dæm- is óvenju margir litlir hópar, sem áttu góðar stundir hjá okkur með sínum nánustu.“ Sífellt fleiri Íslendingar koma Allý segir að ferð í dekur eða gjafabréf á dekur njóti alltaf vinsælda þegar fólk vill gleðja maka sinn eða einhvern af sínum upp- áhalds. Hún segir jafnframt að þegar hafi nokkrir pantað fyrir sig og makann á Valent- ínusardaginn sem er á þriðjudaginn í næstu viku. „Já, við erum orðnar svolítið bókaðar. Þú verður að drífa þig ef þú ætlar að komast að!” Hvernig er kúnnahópurinn? Hvort er meira um Íslendinga eða útlendinga? „Íslendingarnir hafa verið að sækja mik- ið á. Fyrst var þetta svona helmingur Ís- lendingar og helmingur útlendingar. En núna eru útlendingarnir svona 30-40 prósent. Íslendingarnir eru að taka okkur yfir, sem er bara gott,“ segir hún og hlær við. Allar nánari upplýsingar má finna á heimasíðunni www.reykjavikspa.is og í síma 514 8090. Aðalheiður Ósk Þorleifsdóttir, Allý, hefur starfað á Reykjavík Spa frá opnun. Myndir | Hari Vinsælt er hjá pörum að koma saman í Reykjavík Spa og margir hugsa sér eflaust gott til glóðar- innar fyrir Valentínusardag í næstu viku. Hvíldarsvæðið er afar notalegt með kertaljósum og róandi arineldi. Infrarauði saunaklefinn nýtur mikilla vinsælda, meðal annars hjá þeim sem glíma við gigt.

x

Fréttatíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.