Fréttatíminn - 11.02.2017, Síða 10
10 | FRÉTTATÍMINN | Laugardagur 11. febrúar 2017
mála. Og stofnunin nýtur, sam-
kvæmt könnunum, mikils trausts
meðal almennings (60%), sem þing
landsins gerir ekki (11%). Vinsæld-
ir stofnunarinnar eru þó ekki ein-
hlítar. Eftir að kæra var lögð fram á
hendur Ponta sagði hann eina vanda
Rúmeníu vera „þráhyggju fullkom-
lega ófaglegs saksóknara sem vill
skapa sér nafn með uppdiktuðum
og ímynduðum staðreyndum og
ósönnum aðstæðum frá því fyrir tíu
árum síðan“.
Í viðtali við The Guardian þetta
haust sagði Kövesi á móti að stærstu
áskoranir DNA væru aðfarir stjórn-
málamanna að stofnuninni, og til-
raunir þeirra til að takmarka vald-
svið hennar með lagabreytingum:
„Aðra hverja viku koma þeir fram
með nýtt frumvarp til að breyta um-
boði okkar, og draga úr getu okkar
til rannsókna.“
Neyðartilskipunin
Tilefni mótmæla síðustu daga er
einmitt þess háttar breyting, sem
stjórnvöld komu loks í gegn með því
að sniðganga þingið: Um klukkan
níu að kvöldi þriðjudagsins 31. jan-
úar samþykktu ráðherrar neyðartil-
skipun um lagabreytingu, og gerðu
inntak hennar opinbert á miðnætti;
að misbeiting á opinberu fé skyldi
þaðan í frá ekki teljast refsiverð
nema hún varði hærri fjárhæð en
sem jafngildir rúmum fimm millj-
ónum króna.
Tilskipunin myndi stöðva allar yf-
irstandandi rannsóknir slíkra mála,
koma í veg fyrir nýjar rannsóknir og
leysa fjölda embættismanna undan
refsingu sem þeir þegar sæta. „Leyfi
til að stela“ hafa mótmælendur kall-
að þessa miðnæturtilskipun.
Formaður PSD, sem ekki get-
ur orðið ráðherra vegna kosninga-
svindls, á einmitt yfir höfði sér kæru
fyrir að greiða verktökum úr opin-
berum sjóðum án þess að þeir virð-
ist hafa unnið nokkurt verk. Fjár-
hæðin sem hann er sakaður um að
misnota með þessum hætti nemur
þó aðeins þremur milljónum króna.
Hann væri því einn þeirra sem
myndu njóta góðs af viðmiði tilskip-
unarinnar.
Byrjaði vel …
Ríkisstjórn Grindeanu tók við völd-
um í upphafi þessa árs, þann 4. jan-
úar. Viðmælandi fréttavefsins Hrom-
adske, þátttakandi í mótmælunum,
segir að ríkisstjórnin hafi fram að
þessari tilskipun þótt fara vel af stað,
fyrstu verk hennar hafi verið félags-
legar umbætur og jöfnunaraðgerð-
ir; að hækka lágmarkslaun um 16%,
tvöfalda framfærslu námsfólks og
fleira.
Þegar fréttir bárust um neyðartil-
skipunina, bæði inntak hennar og
aðferðina, hafi kjósendum þótt þeir
vera hafðir að fíflum, og umbæturn-
ar sjálfar gerðar að eins konar mútu-
greiðslum. Reiðin hafi þó ekki orðið
almenn fyrr en fulltrúar stjórnar-
innar tóku til varna fyrir tilskipun-
ina.
Örtröð í fangelsum
Um 10.000 manns mótmæltu á göt-
um Búkarest strax aðfaranótt mið-
vikudagsins 1. febrúar. Þegar birti
af þeim degi byrstu fulltrúar dóms-
valdsins sig einnig og kærðu tilskip-
un stjórnarinnar sem stjórnarskrár-
brot. Auk þess heyrðist frá fulltrúum
ESB, Evrópuráðsins og annarra al-
þjóðastofnana.
Ráðherrar báru þá fram fyrstu
varnir sínar í fjölmiðlum. Þeir sögðu
tilskipunina meðal annars nauðsyn-
lega vegna plássleysis í fangelsum
landsins, föngum yrði að fækka. Þá
sagði Grindeanu dómsmálaráðherr-
ann ef til vill ekki hafa kynnt tilskip-
unina nógu vel, og yrði hann krafinn
skýringa á því – en nú væri tímabært
að horfa fram á veginn og ræða önn-
ur mál.
Það kvöld fjölgaði mótmælend-
um á götum úti í 250.000. Það voru
þá þegar fjölmennustu mótmæla-
samkomur Rúmeníu frá því vald-
höfum kommúnista var hrundið frá
1989.
„Þjófar! Þjófar!“
Mótmælin hafa staðið á hverju
kvöldi síðan. Sunnudaginn 5. febr-
úar dró ríkisstjórnin tilskipunina
til baka og virtist þannig verða við
kröfu mótmælenda. Samkomurnar
héldu engu að síður áfram og færð-
ust í aukana: 600 þúsund manns
tóku þátt í mótmælum um landið
allt það kvöld, þar af um helmingur
í höfuðborginni einni, og hrópuðu
„Þjófar! Þjófar!“.
Hvers vegna nægði mótmælend-
um ekki að tilskipunin væri dregin
til baka? Í fyrsta lagi fellur hún víst
ekki raunverulega úr gildi fyrr en
þingið samþykkir niðurfellinguna
– og stjórnarflokkarnir hafa sterkan
meirihluta á þinginu. Mótmælendur
segjast vilja að stjórnvöld finni augu
þeirra hvíla á sér þar til málinu er
lokið.
Í öðru lagi segja mótmælendur
að stjórnin sé rúin trausti. Hófsöm-
ustu mótmælendur krefjast þess að
stjórnarflokkarnir víki ráðherrum
frá og skipi nýja, aðrir krefjast þess
að flokkarnir fari frá völdum og kos-
ið verði upp á nýtt. Enn aðrir segja
kerfið rotið inn að rót og þörf sé á
veigameiri breytingum.
Talið er að allt að kvartmilljón manns hafi flykkst út á götur Búkarest til mót-
mæla, tæplega áttundi hver íbúi borgarinnar. Sambærileg mótmæli á Austurvelli
myndu telja 25 þúsund manns, tæplega það sem var á vellinum í apríl í fyrra eftir
að Panamskjölin voru afhjúpuð.
Mótmælin beinast gegn spillingu stjórnmálanna og sérstaklega forystu Jafnaðar-
mannaflokksins.
6.999 kr.
STOKKHÓLMUR f rá
T í m a b i l : f e b rú a r - j ú n í 2 0 1 7
14.999 kr.
BARCELONA f rá
T í m a b i l : m a rs - m a í 2 0 1 7
14.499 kr.
BOSTON f rá
T í m a b i l : f e b rú a r - j ú n í 2 0 1 7
8.499 kr.
DÜSSELDORF f rá
T í m a b i l : m a í - j ú n í 2 0 1 7
5.999 kr.
EDINBORG f rá
T í m a b i l : m a í - j ú n í 2 0 1 7
5.999 kr.
KÖBEN f rá
T í m a b i l : m a rs - a p r í l 2 0 1 7
Hæ,
kíktu út!
*Verð miðast við flug aðra leið með sköttum ef greitt er með Netgíró.
*
*
*
*
*
*
HIN FAGRA OG FORNA ALBANÍA
8. – 19. apríl
ALBANÍA
WWW.TRANSATLANTIC.IS SÍMI: 588 8900
Albanía hefur nú loksins opnast
fyrir erlendum ferðamönnum.
Enn hefur alþjóðavæðingin ekki
náð að festa þar rætur og er lítt
sjáanleg. Þar má sjá ævaforna
menningu, söguna á hverju horni,
gríðarfallega náttúru og fagrar
strendur og kynnast einstakri
gestrisni heimamanna þar sem
gömul gildi eru í hávegum höfð.
(Per mann í 2ja manna herbergi)
VERÐ 299.950.-
per mann í 2ja manna herbergi. Innifalið: Flug, hótel
í London, hótel með hálfu fæði í Albaníu, öll keyrsla
í Albaníu, allar skoðunarferðir, ísl. fararstjóri,
skattar og aðgangur þar sem við á.
PÁSKA-
FERÐ