Fréttatíminn - 11.02.2017, Síða 18
18 | FRÉTTATÍMINN | Laugardagur 11. febrúar 2017
Einangraðir staðir á Íslandi vekja
stundum hrifningu erlendra
gesta. Í dag verða opnaðar tvær
forvitnilegar ljósmyndasýningar
í Þjóðminjasafninu sem vitna um
þetta. Listamennirnir sem eiga
myndirnar drógust báðir að stöð-
um sem eru svo sannarlega utan
alfaraleiðar. Christopher Taylor
tekur myndir sínar í Steinholti á
Langanesi en Cole Barash heim-
sótti Grímsey og varð algjörlega
heillaður af eyjunni og lífinu þar.
Fréttatíminn tók Cole Barash tali.
Guðni Tómasson
gudni@frettatiminn.is
„Ég kom fyrst til Íslands 2014,“ seg-
ir bandaríski ljósmyndarinn Cole
Barash sem hefur tekið myndir í
Grímsey í tveimur ferðum síðustu
ár. „Ég kom hingað með það fyrir
augum að taka myndir í nýtt verk-
efni sem ég vissi ekki hvert yrði og
án þess að vita nokkuð við hverju
ég ætti að búast af landinu. Eftir
nokkra daga í Reykjavík, þar sem
ég tók portrettmyndir af nokkrum
tónlistarmönnum, listamönnum og
fatahönnuðum, sá ég að ég þyrfti
að fara út á land og sjá hið sanna
Ísland. Nokkrir vinir mínir komu
með og einn daginn þegar við vor-
um að skoða kort benti ég á kortið
og spurði ég hvað þessi litli blettur
þarna væri. Þá svaraði einhver að
þetta væri Grímsey. Eftir að hafa
flett eyjunni upp á netinu var ég
fullviss um að þangað þyrfti ég að
fara.“
Magnað samfélag
Cole tók ferjuna til Grímseyjar
að vetri til og hann sér ekki eftir
„Þetta var eftir koddaslag á sjómanna-
daginn og þessi datt í sjóinn, eins og
mótherji hans gerði reyndar líka.“
Vildi að það væru fleiri staðir eins og Grímsey
Cole Barash sem er uppalinn á Cape Cod í Bandaríkjunum kunni vel við sig úti í
Grímsey. Hann féll kylliflatur fyrir eyjunni og fólkinu sem hana byggir. Mynd | Hari
Lífið í Grímsey hefur meðal annars snúist um fisk, eins og Cole Barash komst að.
Nú eru blikur á lofti því að kvóti útgerðarinnar Borgarhöfða hefur verið seldur úr
eyjunni og fimmtán störf fjúka því miður með. Myndir | Cole Barash
„Þessar mægður á appelsínugulum
trukki stöðvaði ég á ferð um eyjuna.
Þær tóku vel í myndatökuna enda
hafði ég verið þarna í nokkra daga og
eyjaskeggjar höfðu auðvitað orðið
varir við mann,“ segir Cole.
Fugl haf og land í Grímsey.
því í dag. „Ég var ekki með neina
tengiliði í eyjunni, vissi ekkert
við hverju ég ætti að búast. Þegar
þangað var komið fékk ég inni í
gistihúsi og dvaldi í eyjunni í tíu
daga. Ég ráfaði um eyjuna og tók
myndir, bæði af náttúrunni og
þessu góða fólki sem þarna býr.
Allir tóku mér afskaplega vel þegar
ég bankaði upp á, útskýrði málið
og bað um að fá að taka myndir af
þeim. Þegar íbúarnir áttuðu sig á
því að ég bar mikla virðingu fyrir
eyjunni og þeim þá voru þeir alveg
til í að sitja fyrir.“
Cole segist hafa látið kylfu ráða
kasti þegar kom að því að velja
myndefni. „Ég notaði aðeins filmu-
vél í þessu verkefni og gat því ekki
alltaf verið að líta á skjáinn til að
gá hvort myndirnar væru í lagi. Ef
eitthvað greip augað þá tók ég ein-
faldlega mynd.“
Útkoman kom út í ljósmynda-
bók sem gefin var út af bandaríska
forlaginu Silas Finch árið 2015,
skömmu eftir aðra ferð Cole út
í Grímsey, sem hann fór þá um
sumarið. Sumar og vetur voru vit-
anlega eins og dagur og nótt, en
samt tók Cole aðallega myndir inn-
andyra í sumarferðinni.
En hvernig leist þessum ljós-
myndara, sem býr í stórborginni
New York, á þetta agnarsmáa sam-
félag norður við heimskautsbaug?
„Ég vildi bara að það væru til
fleiri svona staðir í veröldinni. Ég
var algjörlega heillaður af þessari
einangrun og lífsbaráttunni sem
maður sér þarna allt í kringum sig.
Þarna fær maður djúpa tilfinningu
fyrir mikilvægi góðs samfélags.
Sjálfur er ég frá litlu bandarísku
sjávarþorpi á Cape Cod skagan-
um í Massachusetts og því gat ég
auðveldlega tengt við þessa ótrú-
legu eyju. Þetta er eitt sterkasta
og fallegasta samfélag sem ég hef
kynnst í mínu lífi. Fólkið er opið
og auðmjúkt og ég verð því ævin-
lega þakklátur.“
Sýningar Cole Barash og
Christopher Taylor verða opnaðar í
Þjóðminjasafni Íslands í dag.
6.990
Aðeins framreitt fyrir allt borðið.
Menú del amor
7 rétta Valentínusarmatseðill
Þriðjudagur 14. febrúar
Hefst með Codorniu Cava í fordrykk
5 sérvaldir tapas réttir fylgja síðan í kjölfarið
• Beikonvafin hörpuskel og döðlur með sætri chilli sósu
• Hvítlauksbakaðir humarhalar
• Nautalund í Borgunion sveppasósu
• Lambalund með chorizo-sósu
• Lax með kolagrillaðri papriku og paprikusósu
Og í lokin tveir gómsætir eftirréttir ...
• Ekta súkkulaðikaka Tapasbarsins
• Hvítsúkkulaði-skyrmousse með ástríðusósu
Vesturgötu 3B | 101 Reykjavík | Sími 551 2344 | www.tapas.is