Fréttatíminn - 11.02.2017, Qupperneq 30
30 | FRÉTTATÍMINN | Laugardagur 11. febrúar 2017
GOTT
UM
HELGINA
Iron X keppni á súlum
Þessi súlukeppni er sögð aðeins
fyrir þau allra hörðustu enda er
keppt í tímatöku í svokallaðri
Iron X stöðu á súlunni. Keppt er
á tveimur súlum í einu og það er
örugglega ekkert grín að halda
stöðunni.
Hvar? Pole Sport, Stangarhyl 7
Hvenær? Í dag kl. 14-16
Hvað kostar? Allir velkomnir
Kvikmyndagróska úr
framhaldsskólum
Kvikmyndahátíð framhalds-
skólanna er nú haldin í þriðja
sinn en nú sjá nemendur við FÁ
og Borgó um hátíðina í sam-
starfi við Bíó Paradís. Nemend-
ur sýna verk sín og skoða verk
annarra. Stuttmyndir hafa ver-
ið valdar á hátíðina og keppa
um vegleg verðlaun sem veitt
verða fyrir bestu stuttmyndina,
tækniútfærslu og leik, auk
áhorfendaverðlauna.
Hvar? Í Bíó Paradís
Hvenær? Í dag og á morgun milli kl
13 og 16
Hvað kostar? Ekki neitt
Hús fyrir list
Kjarvalsstaðir eru ein falleg-
asta bygging borgarinnar. Pétur
Ármannsson ætlar að fjalla um
bygginguna og höfund hennar,
Hannes Kr. Davíðsson arkitekt,
á fyrirlestri í húsinu. Húsið er
byggingarlistarlegt undur sem er
alltaf ástæða til að gefa gaum.
Hvar? Á Kjarvalsstöðum
Hvenær? Í dag kl. 14
Hvað kostar? Aðgöngumiði á
safnið gildir
Samleikur í Hljóðbergi
Sellóleikarinn Gunnar Kvaran og ítalski píanóleikarinn Domenico
Codispoti ætla að leika saman á tónleikum fyrir selló og píanó í hinum
fallega tónleikasal Hljóðbergi í Hannesarholti. Efnisskráin innheldur
verk eftir Brahms, Schumann, Rachmaninoff og Shostakovich.
Hvar? Í Hannesarholti
Hvenær? Í dag kl. 16
Hvað kostar? 3000 kr. á midi.is
Vegan frá Víetnam
Kaffihúsið Kaffi Vínyl hefur tek-
ið að sér að kynna matarmenn-
ingu ólíkra landa. Nú er komið
að grænkera krásum frá Víetnam
sem hægt verður að njóta og
kynnast.
Hvar? Kaffi Vínyl við Hverfisgötu
Hvenær? Í kvöld milli 18-22
Hvað kostar? Óvíst
CrossFit inn í
myndlistina
Á nýrri sýningu sinni, sem kallast
Heronie Wod, notar sænska lista-
konan Victoria Cleverby CrossFit
til að minnast kvenhermanna og
gera áhorfandann meðvitaðan um
karllægni samfélagsins. Heroine
WOD, sem er tilbúningur listakon-
unnar Victoriu Cleverby, er kven-
kyns útgáfa af CrossFit æfingum
sem kallast Hero WOD.
Hvar? Norræna húsið
Hvenær? Opnun í dag kl. 11
Hvað kostar? Ókeypis
8.499 kr.
FRANKFURT f rá
T í m a b i l : m a rs - j ú n í 2 0 1 7
5.999 kr.
LONDON f rá
T í m a b i l : m a rs - m a í 2 0 1 7
16.999 kr.
LOS ANGELES f rá
T í m a b i l : f e b rú a r - j ú n í 2 0 1 7
12.999 kr.
ALICANTE f rá
T í m a b i l : m a í - s e p te m b e r 2 0 1 7
13.999 kr.
MONTRÉAL f rá
T í m a b i l : f e b rú a r - a p r í l 2 0 1 7
16.999 kr.
SAN FRANCISCO f rá
T í m a b i l : f e b rú a r - j ú n í 2 0 1 7
*Verð miðast við flug aðra leið með sköttum ef greitt er með Netgíró.
*
*
*
*
*
*
Þú getur
flogið!
Parka Jakki
Verð: 14.990 kr PÓSTSENDUM FRÍTT HVERT Á LAND SEM ER
Opið alla virka daga frá kl. 11-18
& Laugardaga frá kl. 11-16
Fákafeni 9 | Sími 581-1552 | www.curvy.is
NÝ SENDING AF
LÉTTUM JÖKKUM
Skoðaðu úrvalið á curvy.is eða
kíktu til okkar í Fákafen 9
Stærðir 14-28