Fréttatíminn - 11.02.2017, Síða 34
34 | FRÉTTATÍMINN | Laugardagur 11. febrúar 2017
„Þetta er hörku róbót hjá okkur
og auðvitað var bara lagt upp með
tvöfaldan sigur,“ segir Ingi Valur
Grétarsson einn liðsmanna TSRo-
botics og hlær, en bætir við að öllu
gríni fylgi nokkur alvara.
Þeir félagar eru allir útskrifað-
ir rafeindavirkjar úr Tækniskól-
anum og tækið þeirra, sem heitir
TSR-1, komst auðveldlega í gegnum
brautina sem var ekkert grín. Þar
þurfti tækið að ýta á takka, fanga
vatn úr röri, flytja það yfir skurð
og hella því í mæliglas. Ekki nóg
með það heldur tóku þá við tor-
færur, fínn sandur og hnullungar
og að lokum þurfti græjan að fara
upp net og staðnæmast á palli.
„Vinnan við þetta tók sinn tíma,
við byrjuðum í desember, en þetta
var ótrúlega gaman. Manni fer að
þykja dálítið vænt um tækið sem
er hugsað eins og skriðdreki sem
leggur niður brú, fer síðan yfir
hana og skilur hana eftir. Brúin
var eiginlega fyrsta hugmyndin
okkar og sú sem gerir tækið frum-
legt,“ segir Ingi Valur.
Hann segir samstarfið hafa
komið til þegar þeir voru fengnir
vestur á Ísafjörð til að koma í gang
stórum gömlum iðnaðarróbot. „Í
framhaldi af því langaði okkur að
smíða umgjörð í kringum þenn-
an áhuga okkar. Þegar Kristján
byrjaði svo í verkfræðinni í HÍ þá
rifjaðist upp sameiginlegur draum-
ur okkar um að taka þátt í þessari
frábæru keppni.“
Ingi Valur segir þá í TSRobotics
langa að gera meira í heimi ró-
bótatækninnar. „Ísland á helling
af hugvitsfólki og við getum alveg
verið með í þessari sjálfvirkni þró-
un. Maður þarf að hugsa í lausn-
um og gamla góða „þetta reddast
sjónarmiðið“ getur fleytt manni
langt.“ | gt
Kom bara
til greina að
vinna tvöfalt
Það er óhætt að segja
að félagarnir í TSRo-
botics, þeir Sverrir,
Kristján Örn og Ingi
Valur, hafi rústað ár-
legri Hönnunarkeppni
véla- og iðnaðarverk-
fræðinema við Háskóla
Íslands um síðustu
helgi. Liðið vann bæði
fyrstu verðlaun og
verðlaun fyrir frumleg-
ustu hönnunina.
Þeir Sverrir Jónssson, Kristján Örn Aðal-
björnsson og Ingi Valur Grétarsson eru
skiljanlega sáttir við tvöföld verðlaun í
hönnunarkeppninni um síðustu helgi. Hér
eru þeir með TSR-1 og
verðlaunagripinn. Mynd |
Kristinn Snær Agnarsson.
Náttúran tekur yfir
Văcăreşti svæðið sé nokkuð merki-
leg. „Văcăreşti átti að vera uppistöð-
ulón í miðri Búkarest. Þegar ég kom
þangað hafði það staðið yfirgefið í 25
ár. Náttúran var algjörlega búin að
taka yfir,’’ segir Ingvar sem ferðaðist
um með hjálp túlks. „Mitt í þessu
villta umhverfi kynntist ég Róma-
-fjölskyldu sem býr á svæðinu.“
Fjölskyldan átti synina Gigel,
Marcel og Marian sem voru þá
á aldrinum sex til tólf ára.
Ingvar eyddi deginum með
drengjunum en þá eldri,
Marcel og Marian má
sjá á myndinni. Bræðurnir sögðu
Ingvari frá lífi sínu en að þeirra sögn
er betra að búa í óheflaðri náttúr-
unni en í steinsteypu borgarinn-
ar. „Fyrir nokkrum árum kom upp
eldur í tjaldbúðum fjölskyldunnar
og litla systir þeirra lést. Þá neyddu
yfirvöld fjölskylduna til þess að
flytja í húsnæði í borginni. Drengj-
unum leið illa í borginni, þeir kunnu
ekki að búa innan um bíla og veggi.“
Drengirnir voru því himinlifandi að
flytja aftur inn í náttúruna. „Þeir
vilja sýna mér uppáhalds sundstað-
inn sinn og leiða mig að fallegum ósi
og þeir rífa sig úr fötunum, hoppa út
í og synda.“
Ljósmyndir geta átt sérstakan
stað í hjarta fólks. Ingvar Högni
Ragnarsson listamaður ferðað-
ist til Rúmeníu sumarið 2015
þar sem hann tók ljósmyndir og
viðtöl við heimamenn Ingvar
deilir uppáhalds ljósmynd
sinni og sögunni á bakvið hana
með Fréttatímanum.
Bryndís Silja Pálmadóttir
bryndis@frettatiminn.is
„Myndin er tekin í Văcăreşti
í Rúmeníu og á henni má
sjá tvo bræður. Ég kynntist
þeim og fjölskyldu þeirra
á ferðalagi mínu.“ Ingvar
segir að sagan á bak við
Mynd | Ingvar Högni
Ingvar Högni ferðaðist um
Rúmeníu. Mynd | Hari
Alþjóðleg sambúð
á Laugavegi
Parið Marvie og Marco hafa hreiðrað um sig í herbergi á Laugavegi,
í íbúð sem þau deila með þremur öðrum. Þeim líkar sambúðin vel,
þrátt fyrir að óska sér þess að hafa stofu.
Bryndís Silja Pálmadóttir
bryndis@frettatiminn.is
Marie háskólanemi í íslensku og kærasti hennar Marco frá Ítalíu leigja herbergi á
Laugaveginum í íbúð sem þau
deila með þremur öðrum. „Sam-
búðin hefur alltaf verið mjög
alþjóðleg,“ segir Marie sem er
sjálf frá Þýskalandi. „Núna búa
hér auk okkar tveir Spánverjar
og einn frá Rússlandi. Samsetn-
ing íbúa breytist samt stöðugt,
um daginn bjó einn Mexíkani
með okkur, svo íslenskt par
og þar áður par frá Portúgal.“
Íbúðin er með fjórum herbergj-
um, eldhúsi og salerni og hvert
og eitt herbergi er leigt út sér.
Engin stofa eða sameiginlegt
rými er í íbúðinni en sambýl-
ingarnir reyna samt sem áður að
verja tíma saman. „Við reynum
að eiga góðar stundir saman og
eldum saman reglulega. Það get-
ur hinsvegar verið mjög flókið
vegna þess að eldhúsið er frekar
lítið,“ segir Marie.
Snúið ástand á leigumarkaði
Marco hefur búið á Íslandi í
nokkur ár og þekkir því húsnæð-
iserfiðleika í miðbænum nokkuð
vel. „Mér hefur tvisvar sinnum
verið sparkað út úr íbúðum á
Íslandi með tveggja vikna fyrir-
vara vegna þess að eigendurn-
ir ákváðu skyndilega að leigja
íbúðirnar til ferðamanna. Þetta
er alltaf sama sagan hjá öllum
sem eru að leigja miðsvæðis,“
segir Marco ákafur. Marco kem-
ur sjálfur úr litlu sjávarþorpi á
Ítalíu sem fyllist af ferðamönn-
um yfir sumarið. Hann hefur
því töluverðar áhyggjur af því að
með nýjum lögum um útleigu
húsnæðis til ferðamanna muni
vera enn erfiðara að fá lang-
tíma leigusamning. „Þorpið
mitt á Ítalíu
er vinsæll
áfangastaður
ferðamanna
þannig að ég
þekki þetta
ástand ágæt-
lega. Þar er
boðið upp á
ódýra leigu
á veturna en
svo er öllum
sparkað út yfir sumartímann til
þess að leigja út til ferðamanna.“
„Ágætis díll’’
Marco og Marie líður vel í
íbúðinni á Laugaveginum og
þrátt fyrir háa leigu telja þau
sig standa ágætlega miðað við
marga aðra. „Ég fékk eiginlega
áfall yfir verðinu fyrst þegar ég
flutti inn í íbúðina en nú er ég
búin að átta mig á því að þetta
er ágætis díll miðað við hvað
aðrir greiða. Ef við værum ekki
að deila herberginu væri þetta
hinsvegar mun þyngri baggi,’’
segir Marie. En þau Marco
greiða rúmlega níutíu þúsund
mánaðarlega fyrir herbergið,
auk þess að greiða fyrir raf-
magn.
Leigusamningur til eins árs
Parið og sambýlingar þeirra
neyðast líklega til þess að flytja
enn á ný næsta haust, en þau
telja eigendur
hússins ætla að
breyta því í gisti-
stað fyrir ferða-
menn. „Þetta
fer allt eftir því
hvað eigend-
urnir ákveða að
gera. Við höfum
engin réttindi í
íbúðinni þrátt
fyrir að vera með
samning núna þá var hann bara
til eins árs og rennur út í haust.
Við vitum ekki hvað eigendurn-
ir ætla að gera en ef þau ætla
að leigja það ferðamönnum
þurfa þau að byggja nýtt hús,“
segir Marco og vísar þannig til
ástands húsnæðisins. Marie og
Marco vildu þó ólm búa áfram
í íbúðinni, enda líkar þeim vel í
sambúð með fjölbreyttu fólki.
Marie og Marco deila íbúð með þremur öðrum, þeim líkar sambúðin vel en væru til í stofu. Mynd | Hari
Sambýlingarnir eru sjaldan heima á
sama tíma. Mynd | Hari
FlashBack 91,9 fjölskyldan hefur stækkað og bætt
við sig fjórum nýjum útvarpsrásum
Breyttu símanum
þínum í útvarp
Sæktu spilarann:
w
w
w
.jo
ku
la
.is