Fréttatíminn - 11.02.2017, Page 42
Mynd sem fær mann til að skríkja og tárast
„Eternal Sunshine of the
Spotless Mind frá 2004 er
hugvitsamleg og eftirminni-
leg stúdía um það sem
gerist eftir að ástin súrnar,
mynd sem fjallar um „allt
hitt“. Allir geta orðið skotnir
og ratað í fangið á einhverjum
- en það gera færri myndir um
hvað gerist svo í framhaldinu. Frábærlega leikin
(Jim Carrey og Kate Winslet og allir hinir), dæma-
laust handrit (Charlie Kaufman) og einstök leik-
stjórn (Michel Gondry). Mynd sem fær mann til að
skríkja og tárast og trúa á þetta allt saman.“
Kristrún Heiða Hauksdóttir,
verkefnastjóri hjá Forlaginu.
Sjarmerandi tímabil,
áþreifanlegur neisti
og saga
„Það eru svo ótal-
margar myndir sem
koma til greina en
mitt lokaatkvæði fer til
Happened One Night frá
árinu 1934 með Clark Gable og Claudette
Colbert. Þessi rómantíska gamanmynd
hefur hreinlega allt sem þarf. Sjarmerandi
tímabil, áþreifanlegur neisti og saga. Ólíkir
og sterkir einstaklingar hittast og lenda í
ýmsum óvæntum uppákomum og auðvit-
að taka örlögin völd. Myndin fékk fimm
Óskarsverðlaun, sem besta mynd, besti
leikstjóri, besti leikari í aðalhlutverki, besta
leikkona og besta aðlögun handrits.“
Hrafnhildur Brynja Stefánsdóttir, kynningar-
og markaðsstjóri í Bíó Paradís.
Allt að springa úr ást
„Jack Nicholson er dýrðlegur sem rit-
höfundurinn Melvin Udall í As Good
as it Gets, stútfullur af mannfyrirlitn-
ingu og áráttu- og þráhyggjurösk-
un, þar til hann fellur fyrir þjónustu-
stúlkunni Helen Hunt, vingast við
hommann Greg Kinnear og fellur svo
fyrir hundinum hans líka. Venjulegt fólk með
fullt af vandamálum en allt að springa úr ást í lok myndar.“
Ísleifur B. Þórhallsson, tónleikahaldari hjá Senu Live.
Leitun að sætari ástarsögu
„Ég trúi því
ekki að ég
sé að fara
svona
með eigið
orðspor
og líður
eins og ég
eigi að nefna
einhverja betri og merkilegri
kvikmynd en The Notebook, en
staðreyndin er bara sú að það
er leitun að sætari ástarsögu.
Ryan Gosling í smíðabuxum,
Rachel McAdams með botn-
lausa spékoppa og ódæmig-
erður Hollywood endir. What́ s
not to like?“
Sigrún Ósk Kristjánsdóttir sjón-
varpskona á Stöð 2.
Svart hvítur rómans eins og þeir gerast bestir
„Síðan 1942, Casablanca, „...where every kiss
may be the last!“ sagði trailerinn - það er
ekki hægt að toppa svona bíófrasa! Svart
hvítur rómans eins og þeir gerast bestir,
þrunginn yfirþyrmandi ástríðum og ást
sem á sér enga von túlkuð óaðfinnanlega
af Ingrid Bergmann og svalasta leikara
allra tíma Humphrey Bogart. Þetta er tíma-
laust meistaraverk og það er eins gott að
draumaborgin reyni aldrei við endurgerð.“
Jón Gunnar Geirdal, eigandi Lemon.
Öfgafullar tilfinningar í
bland við hversdagslega
erfiðleika
„Kannski er
það hin
mesta
klisja að
velja ást-
arsögu
sem heitir
einfaldlega
,„Ástarsaga“
en Love Story hafði gríðarleg
áhrif á mig þegar ég sá hana í
fyrsta sinn. Hún tekur á öfga-
fullum tilfinningum ástarinn-
ar í bland við raunveruleika
og erfiðleika daglegs lífs þar
sem veikindi koma við sögu.
Stórkostleg tónlist, frábærir
leikarar og lokalína sem segir
„Love means never having to
say you’re sorry“. Óraunsæjar
ástarsögur eru þó líka í miklu
uppáhaldi, því hvað er ástin
stundum annað en ímyndaðar
væntingar og klisjur?“
Anna Gyða Sigurgísladóttir út-
varpskona í Lestinni á Rás 1.
Einlæg og sönn ást kúreka
„Kvikmyndin
Brokeback
Mountain
hafði áhrif
sem ég
tengdi við
og þrátt
fyrir að
vera 2,5 tímar
þá voru sam-
úð mín og tár einlæg því ást
samkynhneigðra kúreka var
einlæg og sönn.“
Ellý Ármannsdóttir
fjölmiðlakona.
Meistaraverk um bíóástina
„Það vill svo til að besta ástar-
saga allra tíma í bíómynd er
meistaraverk um bíóástina.
Engin bíómynd dregur
upp eins ljúfsára, ástríðu-
fulla, eldheita, tilfinninga-
þrungna og einlæga mynd
af ástinni og Cinema Parad-
iso. Og tónlist Morricones í
myndinni eru hinir einu sönnu tónar ástarinnar.
Svo einfalt er það.“
Skarphéðinn Guðmundsson, dagskrárstjóri RÚV.
Ódauðleg ást
á hvíta tjaldinu
Það er enginn hörgull á góðum ástarsögum í
bíómyndum en fólk hefur misjafnar skoðanir á
því hverjar skara fram úr. Við leituðum til átta
sérfræðinga og fengum þá til að velja bestu
ástarsögu allra tíma í bíómyndum.
ELSKUNA ÞÍNA Í FEBRÚAR
DEKRAÐU VIÐ
worldclassiceland worldclassiceland worldclassice
MIKIÐ ÚRVAL GJAFABRÉFA
HEILSURÆKT & DEKUR
LAUGARDAGUR 11. FEBRÚAR 20176 ÁSTIN