Fréttatíminn - 18.02.2017, Síða 32
32 | FRÉTTATÍMINN | Laugardagur 18. febrúar 2017
Jón Yngvi hjálpar
ráðvilltum foreldrum
ungra grænmetisætna
að bjóða upp á fjöl-
breytta grænmetisrétti
á heimilinu.
Með mikilli vitundarvakningu á
dýravelferð og umhverfisvitund
fjölgar þeim sífellt sem gerast græn-
metisætur og vegan. Börn og ung-
lingar eru stór hluti þessa hóps, og
hafa gjarnan sterkar skoðanir á því
hvað þau vilja setja ofan í sig.
En hvað skal til bragðs taka
þegar barnið þitt kemur til þín
og tilkynnir þér formlega að það
sé hætt að borða kjöt og sé orðið
grænmetisæta? Og þú kannt ekkert
annað en að gufusjóða brokkolí og
gulrætur sem
meðlæti.
Jón Yngvi Jóhannsson, bók-
menntafræðingur og áhugamaður
um matseld, hefur svarið við þessu
og miðlar eigin reynslu í bók sem
kemur út með vorinu og ber heitið:
Hjálp, barnið mitt er grænmetisæta!
En undirtitill bókarinnar er: Mat-
reiðslubók fyrir ráðvillta foreldra,
vanafasta heimiliskokka, fátæka
námsmenn og alla aðra sem ættu að
borða meira grænmeti.
„Þessi bók varð til þannig að
dætur mínar þrjár eru allar græn-
metisætur, og hafa verið í nokkur
ár. Þegar þær ákváðu það þá varð
einhvern veginn að bregðast við. Ég
hef alltaf haft mikinn áhuga á mat,
séð um alla matargerð á heimilinu
og eldað frá grunni, þannig það
kom í minn hlut að bregðast við
þessu. Og einfaldasta leiðin er auð-
vitað sú að elda fleiri grænmetisrétti
handa öllu heimilisfólkinu,“ segir
Jón Yngvi.
Hann heyrði það svo hjá dætr-
um sínum að vinkonur þeirra, sem
líka voru grænmetisætur, áttu ekki
allar foreldra sem höfðu jafnmik-
inn áhuga á matreiðslu og hann
og lentu í vandræðum. „Þær voru
þá kannski voða mikið að borða
brauð með hnetusmjöri eða bök-
uðum baunum og jafnvel nammi.
Allir sem hafa kynnst unglingum
sem ákveða sjálfir að verða græn-
metisætur vita hvernig það getur
farið. Þessi bók er eiginlega mitt
framlag til að aðstoða þetta fólk og
alla aðra sem ættu að borða
meira grænmeti. Því
auðvitað ættu allir
að borða meira
grænmeti og
minna kjöt.“ | slr
Jón Yngvi á
þrjár dætur
sem allar eru
græn metis
ætur.
Hjálp, barnið mitt
er grænmetisæta!
Leikarinn Hallgrímur
Ólafsson segir
karakterinn úr
Skaupinu vera orðinn
miklu þekktari en
hann sjálfur.
Sólrún Lilja Ragnarsdóttir
solrunlilja@frettatiminn.is
Magnús er orðinn miklu þekktari en leikarinn Hallgrímur Ólafsson sem er bú-inn að vera í brans-
anum í 15 ár. Það veit enginn hver
Hallgrímur er, en allir hver Magn-
ús er,“ segir Hallgrímur Ólafs-
son leikari sem sló í gegn í Ára-
mótaskaupinu sem hinn taktlausi
Magnús Magnús Magnússon, sem
bara gat ekki náð víkingaklappinu
fræga, hvað sem hann reyndi.
Vinsældir karaktersins hafa
verið svo miklar að Hallgrímur
annar eiginlega ekki orðið eft-
irspurn. „Þetta er búið að vera
svolítið vígalegt. Síminn byrjaði
bara að hringja 1. janúar,“ segir
hann hlæjandi. En það virðast fáar
samkomur Magnúsi óviðkomandi.
„Ég hef verið að koma fram hér
og þar, fyrir alla. Á leikskólum og
allt, meira að segja. Ég kom fram
á leikskóladeginum með Guðna
forseta um daginn. Svo er ég að
fara á þorrablót og árshátíðir og
það er meira framundan. Vinnu-
staðir hringja og vilja fá mig í pepp
í hádeginu. En ég hef ekki náð að
gera þetta allt því ég er í vinnu í
Þjóðleikhúsinu,“ segir Hallgrímur,
en það hvarflaði ekki að honum
að Magnús yrði svona eftirminni-
legur.
„Ég hef nokkrum sinnum leikið
í Skaupinu og veit að það horfa á
allir á þetta, en ég bjóst ekki alveg
við því að svona margir myndu
tengja við þennan blessaða mann.
Hann greinilega endurspeglar
þjóðina svolítið. Ég hugsa að það
finni margir til með honum og
skilji hann.“
Hallgrímur mætir á sjálfsögðu
alltaf á svæðið sem Magnús Magn-
ús Magnússon íklæddur landsliðs-
treyjunni. Segir aðeins frá sjálfum
sér og klappar fyrir viðstadda,
alltaf jafn taktlaust.
Karakterinn hefur eðlilega þró-
ast eitthvað aðeins síðustu vikur,
enda eyðir Hallgrímur eiginlega
meiri tíma sem Magnús heldur en
hann sjálfur.
„Hann Magnús er frekar óvanur
þessu, hann er búinn að vera fræg-
ur svo stutt. En hann er aðeins að
opna sig. Hann er að venjast þessu
og er alltaf að verða betri og betri,
en klappinu nær hann aldrei.
Enda finnst honum þetta fáránlegt
klapp. Það meikar ekki sens.“
Allir vilja hitta
Magnús Magnús
Magnússon
Hallgrímur telur að Magnús endurspegli þjóðina að mörgu leyti og það finni margir til með honum. Mynd | Hari
Kjóll
Verð: 8.990 kr
PÓSTSENDUM FRÍTT HVERT Á LAND SEM ER
Opið alla virka daga frá kl. 11-18
& Laugardaga frá kl. 11-16
Fákafeni 9 | Sími 581-1552 | www.curvy.is
KJÓLAR FYRIR
FERMINGUNA
Skoðaðu úrvalið á curvy.is eða
kíktu til okkar í Fákafen 9
Stærðir 14-26 eða 42-54
HIN FAGRA OG FORNA ALBANÍA
8. – 19. apríl
ALBANÍA
WWW.TRANSATLANTIC.IS SÍMI: 588 8900
Albanía hefur nú loksins opnast
fyrir erlendum ferðamönnum.
Enn hefur alþjóðavæðingin ekki
náð að festa þar rætur og er lítt
sjáanleg. Þar má sjá ævaforna
menningu, söguna á hverju horni,
gríðarfallega náttúru og fagrar
strendur og kynnast einstakri
gestrisni heimamanna þar sem
gömul gildi eru í hávegum höfð.
(Per mann í 2ja manna herbergi)
VERÐ 299.950.-
per mann í 2ja manna herbergi. Innifalið: Flug, hótel
í London, hótel með hálfu fæði í Albaníu, öll keyrsla
í Albaníu, allar skoðunarferðir, ísl. fararstjóri,
skattar og aðgangur þar sem við á.
PÁSKA-
FERÐ