Fréttatíminn - 18.02.2017, Síða 38

Fréttatíminn - 18.02.2017, Síða 38
2 LAUGARDAGUR 18. FEBRÚAR 2017HEILSA&TÍSKA Útgefandi: Morgundagur ehf. Ábyrgðarmaður: Valdimar Birgisson. Köllunarklettsvegi 1, 104 Reykjavík • Sími: 531 3300 Passaðu vandræðasvæðin Svona nærðu fram sem náttúrulegastri brúnku. Til að ná sem raunveruleg-astri brúnku fram með brúnkukremi eða spreyi er mikilvægt hafa í huga hvernig sólin skín á okk- ur og reyna að endurspegla það. Til dæmis með því að leggja ekki of mikla áherslu á innanverðan fótinn eða á olnbogabætur og gæta vel að vandræðasvæðunum sem eru fjög- ur talsins. Fætur Smyrðu kreminu fyrst framan á fót- leggina og aftan á en láttu ökkla og hæla mæta afgangi og nuddaðu létt yfir þau svæði. Hné og olnbogar Það er mikilvægt að nota mýkjandi krem á þessi svæði áður en brúnku- krem er borið á. Annars er hætt við að kremið setjist í sprungur og skorur. Hendur og úlnliðir Settu lítinn dropa af brúnkukremi innan á úlnliðina þegar þú ert búin að bera á allan líkamann. Nuddaðu svo úlnliðunum saman og dreifðu vel úr kreminu. Þetta kemur í veg fyrir að skörp litaskil myndist í lóf- unum. Háls Ef þú vilt fá brúnku á hálsinn en ekki andlitið berðu þá brúnkukrem upp að kjálkalínunni. Það er í góðu lagi að það myndist smá litaskil þar því það lítur bara út eins og „conto- ur“ og dregur úr undirhöku ef hún er til staðar. VEGAN OG LÍFRÆN KREM Sölustaðir: Hagkaup Skeifunni og Kringlunni. Allar heilsubúðir. Heimkaup.is All Round er alhliða krem fyrir andlit og líkama. Hentar vel fyrir mjög þurra húð og þurrkubletti. Protection kremið er frábært andlitskrem sem gefur næringu og vörn í kulda. Lavera - Hollt fyrir húðina Fylgdu okkur á Facebook Baldur Rafn Gylfason. Tanja Ýr Ástþórsdóttir er hæstánægð með brúnkuspreyið frá Marc Inbane og mælir með því. Hágæða brúnkusprey sem kallar fram þinn náttúrulega tón Hið þekkta merki Marc Inbane fæst nú á Íslandi og viðtökurnar hafa verið ótrúlegar. Unnið í samstarfi við bpro Viðtökurnar hafa verið ótrúlegar enda er þetta hágæða lúxusvara sem virkar. Og við Íslendingar erum bara þannig að það þýðir ekk- ert að selja okkur eitthvert rugl,“ segir Baldur Rafn Gylfason hjá bpro sem er umboðsaðili Marc Inbane á Íslandi. Bpro hóf að selja brúnkusprey frá hinu þekkta merki Marc Inbane í lok síðasta árs og viðtökurnar hafa ekki látið á sér standa. Fjölmargir þekktir bloggarar og sérfræðingar í tískuheiminum hafa prófað vörurn- ar og umsagnirnar hafa verið afar jákvæðar. Meðal þeirra sem mæla með Marc Inbane vörunum eru Theodóra Mjöll og Tanja Ýr Ástþórsdóttir. Tanja hefur meðal annars sagt að hún hafi aldrei próf- að annað eins efni og það eru ekki amaleg meðmæli. „Tanja er mjög vandvirk þegar hún velur sér vörur og talar eingöngu um það sem hún getur mælt með,“ segir Baldur. Baldur segir að vörunni sé lýst sem „natural tanning sprey“ sem vísar til þess að Marc Inbane brúnkuspreyið gefur þér þína nátt- úrulegu brúnku. „Það er alveg magnað að prófa þetta. Þegar ég fer í sólina fæ ég minn tón eins og allir þekkja. Það sama gerist með þessu spreyi. Svo er nánast engin lykt af því, sem er rosalega stór punktur fyrir mig,“ segir Baldur en hann segir vörurnar líka ofboðslega auðveldar í notkun. „Það er fínt fyrir fólk eins og mig, ég svolítill göslari, og fyrst ég get notað þetta þá geta það allir. Það myndast engir blettir eða misfell- ur en sambærilegar vörur eru oft svolítið vandmeðfarnar. Hitt er, að þegar þetta fer að deyfast eftir 5-7 daga þá fer þetta ekki af í flekkjum. Þetta fer náttúru- lega af líka. Það er mjög stór partur. Þetta er enda eins hrein vara og auðið er, með mjög lítið magn af aukaefnum.“ Brúnkuspreyið er bæði fyrir andlit og líkama og segir Baldur að auðvelt sé að stjórna útkomunni, hversu dökka þú vilt hafa brúnkuna eða áferðina. Henta Marc Inbane- vörurnar öllum? „Já, þær eru bæði fyrir karla og konur. Við fengum fólk á öllum aldri til að prófa fyrir okkur. Til að mynda mömmu mína sem er nýorðin sex- tug og er með mjög viðkvæma húð. Hún þolir fáar vörur en þoldi þessar fullkomlega og lýsti þeim sem ótrú- legum. Hitt var skemmtilegra og fyndnara að pabbi, sem er harður kall og smiður og setur aldrei krem í andlitið, var eitthvað að laumast í þetta hjá mömmu. Hann sagði að þetta væri helvíti gott og þá er nú mikið sagt!“ Marc Inbane línan er lítil og ein- föld. Brúnkuspreyið fæst bæði í 50 ml og 200 ml umbúðum auk þess sem hægt er að fá það í ferðapakkn- ingum, en í þeim er lítið sprey og kabuki bursti í fallegri snyrtitösku. Að auki er mjög góður hanski, bursti og skrúbbur sem gott er að nota áður en spreyið er sett á til að taka dauðar húðfrumur. „Auk þess eru nýkomin hágæða kerti. Þau eru mjög smart og koma í þremur ilmum í ýmist hvítu eða svörtu munnblásnu glasi,“ segir Baldur. Hægt er að kynna sér Marc In- bane vörurnar betur á Facebook- síðu bpro Iceland og á Instagram undir marcinbaneiceland. Vörurn- ar eru seldar á mörgum flottustu hárgreiðslustofum landsins, en þar er tilvalið að fá að prófa meðan fólk situr í stólnum, og á vefversluninni www.marcinbane.is. Þá segir Baldur að aðrar snyrtivöruverslanir hafi óskað eftir að selja vörurnar og það sé í skoðun. Brúnkuspreyið frá Marc Inbane hefur fengið frábærar viðtökur hér á landi. Vörurnar fást á mörgum flottustu hárgreiðslustofum landsins og í vefversluninni www.marcinbane.is.

x

Fréttatíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.