Fréttatíminn - 18.02.2017, Síða 46

Fréttatíminn - 18.02.2017, Síða 46
Úrval Útsýn er ein elsta ferðaskrifstofa landsins og þar starfar þraut- reynt fólk sem kann sitt fag. Úrval Útsýn hlaut nafnbótina Framúrskar- andi fyrirtæki hjá Creditinfo á dögunum. Framúrskarandi fyrirtæki 10 LAUGARDAGUR 18. FEBRÚAR 2017FRAMANDI FERÐIR Bókaðu allt á einum stað og láttu sérfræðingana okkar aðstoða þig Í byrjun árs fer fólk oft að huga að hvert skuli fara þetta árið. Sumarfrí, vetrarfrí eða sérferðir í tengslum við ákveðin tímamót. Unnið í samstarfi við Úrval Útsýn Ferðaskrifstofan Úrval Útsýn, sem nýlega hlaut viðurkenn-inguna Framúrskarandi fyr-irtæki hjá Creditinfo, er ein elsta ferðaskrifstofa landsins. Úr- val Útsýn býður upp á mikið úrval ferða. Sólarlandaferðir, sérferðir, hópaferðir, íþróttaferðir, golfferð- ir, skíðaferðir, eldriborgaraferðir, siglingar, borgarferðir, og við- skiptaferðir. Við kíktum í kaffi í Hlíðarsmára 19 þar sem Úrval Út- sýn er staðsett og spjölluðum við nokkra starfsmenn. Mikil úrval af spennandi sérferðum „Það er mikil eftirspurn í þessar sérferðir þar sem fólk virðist hafa meira á milli handanna og ferðirnar eru á góðu verði,“ seg- ir Kristín Gunnars- dóttir, deildar- stjóri sér- ferða- og hópadeildar hjá Úrval Útsýn. Mikið framboð er af spennandi sérferðum á næstunni. Þar á meðal er 14 daga páskaferð til Tælands þar sem dvalist er níu nætur í frábærum strandbæ og þrjár nætur í Bangkok. Fleiri spennandi ferðir til Tælands eru svo í boði síðar á árinu. Þá er vert að geta afar lokkandi ferða til Suður-Afríku, Argentínu og Úrúgvæ og siglingar um Vestur- og Austur-Karíbahafið. Í mars er hægt skella sér í þriggja daga ferð til Feneyja og New York í október hljómar alls ekki illa. „Svo erum við með stórkostlega ferð um Ítalíu og Sviss þar sem ferðast verður með hinni víðfrægu Bernina-lest.“ Kristín segir að sérferðirnar séu gjarnan skipulagðar langt fram í tí- mann og því sé núna meðal annars verið að selja haustferðir og alveg fram að jólum. „Það er alltaf kostur að bóka snemma því það selst upp í flestar ferðirnar,“ segir hún. Er mikið um fastakúnna, fólk sem fer ár eftir ár með ykkur í sérferðir? „Já. Við höfum mikið af fastakúnnum sem bíða spenntir eftir að sjá hvert við erum að fara hverju sinni og ferðast með okkur ár eftir ár,“ segir Kristín. Auk ofangreindra ævintýraferða er mikið framboð af ferðum til helstu borga Evrópu, Bandaríkj- anna og Kanada. Eins sér Kristín og samstarfsfólk hennar um að skipuleggja árshátíðarferðir fyrir fyrirtæki. Síminn rauðglóandi fyrir sólarlandaferðir „Það hefur verið mikið að gera hjá okkur fyrir næsta sumar og síminn er rauðglóandi alla daga. Það er líka gaman að sjá hvað margir koma til okkar í Hlíðar- smára 19, fá sér kaffi og ræða við ferðaráðgjaf- ana okkar og fá upplýsingar um alla áfanga- staðina,“ segir Jóhann Björg- vinsson sölustjóri. Jóhann er nýfluttur heim frá Tenerife þar sem hann hefur starfað sem fararstjóri fyrir Úrval Útsýn í 5 ár. Nú sér hann um sölu á sólarlandaferðum og seg- ir hann marga spennandi áfangastaði vera í boði í ár og mikið úrval af hótelum á hverjum stað fyrir alla aldurs- hópa og fjölskyldur. „Gran Canaria er að koma mjög sterk inn eftir að við byrjuðum að fljúga þangað allt árið í fyrra og nýjasta nýtt hjá okkur í ár þar er nýi fjölskyldustaðurinn Taurito, en þar er að finna frábær hótel með öllu inniföldu á mjög góðu verði. Ekki skemmir að í miðju dalsins er flottur vatnsrennibrautagarður. Almeria er önnur fjölskyldupara- dís sem við bjóðum upp á í sumar, með fjölskylduvæn hótel, hagstætt verðlag og fallegar strendur, í ró- legu og öruggu umhverfi. Mallorca stendur alltaf fyrir sínu, en sú eyja býður upp á allt það besta, heimsborgina Palma de Mall- orca, yndisfagra náttúru og garða á heimsmælikvarða. Alicante, Benidorm, Albir og Calpe eru svo ótrúlega ólíkir en skemmtilegir staðir á Costa Blanca svæðinu sem bjóða upp á allt milli himins og jarðar fyrir alla aldurs- hópa. Þar verður enginn svikinn,“ segir Jóhann sem segir ánægjulegt hversu margir viðskiptavinir komi aftur og aftur. „Við erum með mikið af fastakúnnum sem leita til okkar allt árið, enda leggjum við mikið upp úr frábærri þjón- ustu og ferðaráð- gjöf á alla okkar áfangastaði. Margir eru líka farn- ir að stökkva til Tenerife og Gran Canaria yfir veturinn, stoppa í viku, en fara svo frekar aftur eða oftar út til að stytta veturinn og taka svo fjölskylduna með yfir sumartím- ann.“ Mikil ásókn í golfferðirnar „Við erum að bjóða upp á margvís- legar ferðir núna, vorið hefur selst gríðarlega vel á okkar vinsælasta stað á El Plantío við Alicante þar sem gist er í lúxus íbúðum og allt er innifalið í mat og drykk. Á Plantío er vinsælt að skrá sig í golfskóla til að auka þekkinguna á golfíþróttinni en selst hefur upp í fyrri vik- una á meðan það eru laus sæti í byrjun maí,“ segir Tinna Jóhannsdóttir sem sér um golfferðirnar hjá Úrval Útsýn. Tinna er þegar farin að horfa fram á næsta haust og þar verða nýir áfanga- staðir í boði. Hún segir að fólk sé þegar farið að taka frá sæti í þær ferðir. „Við erum búin að setja upp ferðir til Suður-Afríku og Tælands þar sem við reynum að blanda saman golf- og borgarferðum en það er svo oft sem golfarar ferðast og sjá ekkert nema golfvell- ina og hótelið. Með því að sam- eina smá borgarferð í golfferðina erum við að reyna dýpka upp- lifun farþega okkar. Haustið mun einnig innihalda þessar „hefðbundnu“ Spánarferðir en við munum bjóða upp á hópaferðir til Barcelona og Alicante. Það sem er helst nýtt hjá okkur er að fólk getur sent inn fyrirspurn fyrir hópa hvert í heim sem er og við gerum þeim tilboð í ferð sem yrði algjörlega sér- sniðin þeirra óskum.“ Er mikill áhugi á golfferðum um þessar mundir? Meiri en verið hefur? „Ég myndi segja að áhuginn sé mikill og líklega er það góðum ár- angri Ólafíu og Valdísar að þakka, já og auknum kaupmætti í sam- félaginu. Ég verð þó að segja að það hefur alltaf verið mikill áhugi á golfferðum hjá íslenskum kylfing- um, það sem er helst að breytast er að fólk er að kaupa stærri ferðir eða ferðast ef til vill bæði að vori og hausti í stað þess að velja annað hvort.“ Græðir maður á því að bóka tímanlega? „Já. Með því að bóka tímanlega er verið að tryggja sig í drauma- ferðina en við erum núna með fólk á biðlista fyrir vorið vegna þess að það er orðið uppselt í nokkrar ferð- irnar okkar. Ég mæli því alltaf með að bóka sem fyrst.“ Er mikið um fastakúnna, fólk sem fer ár eftir ár með ykkur í golfferðir? „Já, það er þó nokkuð um það, golfdeildin hefur þó tekið ýmsum breytingum undan- farin ár en það er von okk- ar að með fjölbreyttum áfangastöð- um og nýjungum í ferðum að fólk haldi áfram að ferðast með okkur.“ Sjáum um að bóka næstum hvað sem er Viðskiptaferðir Úrvals Útsýnar bjóða upp á alhliða aðstoð við bók- anir bæði fyrir fyrirtæki og einstak- linga. „Við erum óháð flugfélögum og getum bókað öll flugfélög sem fljúga til og frá Íslandi og nánast öll flug- félög í heimin- um. Við þjón- ustum alla og einnig stök verkefni,“ segir Gígja Gylfadóttir, deildarstjóri viðskiptaferða. „Við erum með mörg fyrirtæki í föstum viðskiptum og fara þau sjálfkrafa í hóp Úrvalsvina Viðskiptaferða þar sem þau fá margskonar fríðindi með því að vera í föstum viðskiptum við okkur. Afsláttarkjör sem fyrir- tæki eða einstaklingar hafa hjá flugfélögum gilda einnig hjá okkur og á það við um innlend sem erlend flugfélög. Við bjóðum einnig upp á neyðarþjónustu allan sólarhringinn fyrir fyrirtæki í föst- um viðskiptum.“ Er mikil eftirspurn eftir slíkum ferðum um þessar mundir? „Já, það hefur aukist verulega að fyrirtækin séu farin að nota okkar þjónustu fyrir sitt starfsfólk þar sem það skapar mikla hagræðingu að láta reyndan þjónustufulltrúa sjá um allt sem viðkemur við- skiptaferðinni og jafnframt að hafa allt ferðabókhaldið á einum stað.“ Hvernig virkar einstaklingsþjón- ustan, sjáið þið um allt frá a-ö? „Já, við sjáum um að bóka nánast hvað sem er, til dæmis flug, hótel, bílaleigubíla, lestarferðir og fer það eftir óskum viðskiptavinar- ins. Það skiptir viðskiptavini okkar miklu máli að vera með ferðina sína í einum farseðli en það skapar mik- ið öryggi til dæmis ef það verður seinkun hjá flugfé- laginu, þá sér það um að koma farþeganum í næsta lausa flug án auka kostn- aðar eins og margir hafa lent í þegar þeir kaupa far- seðilinn á netinu.“ Eru einhverjir áfangastaðir eða þjónustuleiðir sérstaklega vinsæl núna? „Asía er mjög vinsæl um þessar mundir og erum við bæði í því að skipuleggja pakkaferðir og selja eingöngu flug. Við erum með mjög góða samninga við flugfélög sem fljúga til dæmis til Balí, Tælands, Víetnam og Kambódíu sem eru mög vinsælir staðir um þessar mundir. Það er einnig mjög vinsælt að fara til Suður-Afríku og Dúbaí.“ Taurito á Kanarí. Almeria á Spáni.

x

Fréttatíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.