Ófeigur - 01.03.1908, Síða 4
4
ina um verzlunarskýrslurnar í sama formi ðg Ófeig,
og hafði skrifað Febr. á uppkastið, en ritgerðin kom
ekki út, eins og menn vita, fyrri en í Septemberheftinu,
og þá mikið breytt. Fyrsta handritið lenti svo hjá
deildarstjóranum í Ægisdeild, meðfram fyrir athuga-
leysi; en kunnugt var honum, að þetta var uppkast.
Frá honum lenti það svo til kaupmanna, hvernig
sem því hefir verið varið, og lengra hefir það víst
aldrei komist, því að eg hefi haldið spurnum fyrir um,
hvort það hafi borist deildarmönnum, og ekki getað
orðið þess var, en A. K. hefir víst séð um, að þeir
fengju allir að sjá flugrit hans. Hvort handrit mitt
er enn í höndum kaupmanna, veit eg ekki, en liitt
er víst, að A. K. sagði eg að handrit það, er hann
notaði, væri uppkast eitt, sem eg hefði breytt.
A. K. hefir því með flugriti sínu ráðist á hand-
rit, sem aldrei hefir komið fyrir augu kaupfélags-
manna, hvað þá almennings, en hann hefir svo að
segja lmuplað. Petta mundi hvarvetna (nema má
ske af vissum mönnum í þessu tilfelli) vera álitin
óærleg ritmenska, sem jafnvel gæti varðað við lög,*)
en að minsta kosti aflaði ekki heiðurs þeim er henni
beita. Jafnvel Ófeigur sá, sem gengur meðal kaup-
félagsmanna, er einungis til í handriti, og er «prívat»
eign K. I3., sem enginn á með að hagnýta, utanfé-
lags og opinberlega, leyfislaust. Pó veit eg ekki
betur, en að einhverjir _ kaupmenn hér hafi haldið
*) Sbr. lög nr. 13 frá 20. okt. 1905 um rithöfundarétt
og prentfrelsi.