Ófeigur - 01.03.1908, Blaðsíða 22

Ófeigur - 01.03.1908, Blaðsíða 22
22 á hverjum bitna svo afleiðingar þessarar ráðsmenzku? Hvorki kaupmönnum né umboðsmönnum, því að þeir hafa sitt á þurru, hvað sem A. K. ruglar um ábyrgð þeirra. Nei, það eru framleiðendurnir, bændurnir, sem þetta ráðlag bitnar á, þvf sannleikurinn er, að framleiðsla þeirra er i reyndinni ætíð seld á þeirra ábyrgð og kostnað, hver sem hana selur, og hversu margir kaupmenn sem þykjast verzla með hana á sína ábyrgð. Mundi nú ekki A. K. geta fundist, að hér vera færð fullgóð rök fyrir þessum ummælum Ófeigs, er hann í riti sínu fer um svo stórum fyrirlitningar og gorgeirsorðum, að lesendunum Iiggur við klígju? Og vilja ekki kaupfélagsmenn íhuga, hvort þessi ráðs- menska kaupmanna' muni nú ekki, í raun og veru, vera eins þungt «ok» á bjargræðisvegi þeirra, eins og sjálfsábyrgðin í K. t\? Eg vildi óska að þeir hugleiddu þetta vandlega og með skynsemd. Flugrit A. K. ber annars vott um meiri fáfræði og hugsanarugling en eg, að óreyndu, hefði ætlað höf. Hann veit t. d. ekki betur en að sú «hag- fræðiskenning* sé uppfundin af mér, að mikill mun- ur inn- og út-fluttra vara sé í heild betra tákn fyrir kaupmenn en almenning, og því fer hann um þetta hæðilegum orðum, í von um að geta gert mig hlægilegan. En eg skal nú fræða A. K. um það, að vilji hann mótmæla þessu með rökum, þá verður hann að fást við fleiri en mig. Hann verður að hrekja rit ýmsra hagfræðinga, t. d. Mills gamla og Spencers, og til þess þarf meira en flugritið að tarna. Eg benti

x

Ófeigur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Ófeigur
https://timarit.is/publication/1273

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.