Ófeigur - 01.03.1908, Blaðsíða 20

Ófeigur - 01.03.1908, Blaðsíða 20
20 menn, sem farið hafa utan umkomulitlir og lítt kunn- ugir. Peir koma sér í félag við einhvern útlending, sem er dálítið kunnugur á markaðinum, kría sér út söluumboð (agentur) fyrir einhver iðnaðarfyrirtæki,* og auglýsi svo í blöðunum hér heima, að þeir reki beztu, stærstu, áreiðanlegustu og ódýrustu umboðs- sölu »fyrir ísland* —. Hér heima kemur þetta sér vel fyrir þá, er ekki geta komið saman bréfi eða pöntun á útlendum tungum, og hafa ekkert til að byrja með, því að í auglýsingunum stendur: »Mjög hentug viðskiftakjör», sem þýðir borgunarfrest og vöruskifti; og svo er hægt að skrifa alt á íslenzku. Hver sem vill getur því snúið sér til þessara -á- reiðanlegustu» umboðsmanna, og það er ekki spar- að. Einhver nýr kaupmaður skrifar nú slíkum um- boðsmanni, og biður um vörur. Hann verður uppi til handa og fóta yfir að fá viðskiftin, kaupir vör- urnar með 3—6 mánaða gjaldfresti (auðvitað gegn hundraðsgjaldi) og sendir þær kaupmanninum. Hann verður í sjöunda himni yfir fengnum, ber sig nú heldur «mannalega» og lánar vörurnar út ábáða bóga, og kaupendur eru í sjöunda himni yfir hve gott sé að verzla við nýja kaupmanninn; og svo líða 3 — 6 mánuðir. En nú snýst blaðið við. Sá er seldi um- boðsmanni vörurnar, verður að fá sitt á réttum tíma, og til þess þarf umboðsmaðurinn að fá sitt hjá kaupmanninum á réttum tíma, og honum er þá nauðugur einn kostur, að krafla saman alt sem hann *) Sbr. auglýsingar um »einkasöluumboð< I

x

Ófeigur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Ófeigur
https://timarit.is/publication/1273

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.