Ófeigur - 01.03.1908, Blaðsíða 8

Ófeigur - 01.03.1908, Blaðsíða 8
8 Litlu eftir að eg fékk þetta einkennilega skjal, var mér stefnt til málssóknar fyrir rógburð í Ófeigi gegn kaupmönnum, en því miður var sú málssókn látin falla niður. Loks brýzt svo gremjan út í flug- riti A. K., svo sem kunnugt er. Petta eru tildrög deilunnar, forspilið bak við tjöldin, Leynir það sér ekki, að nú ætla þessir 4 kaupmenn að taka í streng- inn, og láta ekki forgöngumönnum kaupfélagsstefn- unnar lengur haldast uppi óátalið, að strá illgresis- fræi félagsskapar og samvinnu í akur viðskiftalífsins, sem þeir þykjast einir hafa rélt til að sá í sínu kaupmensku hveiti. Til þess er flugrit A. K. sam- ið, og því rækilega útbýtt af kaupmönnum hér á Húsavík og líklega vfðar. Raunar hefði nú mátt vænta þess, að úr því að A. K. fór að gefa út bók til þess, að andmæla Ófeigi, þá tæki hann málefni Ófeigs til umræðu, en í þess stað ræðst hann nær eingöngu á tölurnar er eg tók úr verzlunarskýrslunum, og ber mér blátt áfram á brýn, að eg hafi falsað þær. Á því er svo alt ritið bygt, og verður ekki sagt, að höf. sé vílsamur í orðavali og framsetningu. En eins hefir A. K. ekki gætt, þá er hann varar menn við að trúa tölum, sem eg hafi skrifað eftir eigin geðþótta, að eg hefi alveg sama réttinn gagnvart honum, og þó raunar miklu meiri, því að hvor okkar mundi hafa meiri per- sónulegar hagsmunahvatir til þess að laga tölurnar til? Það ætla eg hverjum manni að sjá. Eg tók sjálfur glögt fram, og færði rök fyrir, að tölurnar gætu ekki verið nákvæmar, fremur en í

x

Ófeigur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Ófeigur
https://timarit.is/publication/1273

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.