Ófeigur - 01.03.1908, Side 23

Ófeigur - 01.03.1908, Side 23
23 á þetta aðeins sem hagfræðislega heildarreglu, án þess að byggja nokkuð á því, og sömuleiðis benti eg á undantekningarnar. En A. K. fínst sjálfsagt að mótmæla þessu, fyrst eg sagði það, og svo rogast hann fram með eina undantekninguna, (K. N. I3.) sem gilda sönnun gegn reglunni. Gáfuleg röksemda- færsla, það!? Pó varð eg einna mest forviða, er A. K. í nið- urlagi rits síns, snarar því brigzli á nasir mér, að eg sé að berjast fyrir einokun. Satt að segja hélt eg að sú vitleysa væri löngu dauð hér í héraðinu, að samtök almennings (kooperation) til þess að draga í eitt, og undir eigin stjórn, þau störf og um- ráð sem stéttir og einstakir menn hafa haft einræði um, væri sama sem einokun, En viti menn, þarna er hún þá snarlifandi enn, og A. K. skortir ekki kjark til þess, að hampa henni frammi fyrir almenn- ingi. Og hvað mundi veita manninum kjark til þess? Það er varla nema um tvent að gera: annaðhvort ó- trúlegt gáleysi og skeytingarleysi, eða hitt, að hann af yfirlögðu ráði kastar þessu gamla agni kaupmann- anna fyrir almenning í þeirri von að einhverjir renni á það. Nú gefur á að Iíta hve margir gleypa þá flugu. Pað er annars eftirtektavert, að hvarvetna þar sem A. K. í flugriti sínu gerir tilraun til að and- mæla Ofeigi um aðalefnið, þar hefir hann ekki ann- að fyrir sig að bera en gamla uppvakninga og aftur- göngur frá fyrstu árum K. í*. Vekur það grun um að A. K. hafi ekki gert sér mikið far um, að íylg-

x

Ófeigur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ófeigur
https://timarit.is/publication/1273

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.