Víkurfréttir - 30.11.2006, Blaðsíða 9
VÍKURFRÉTTIR I FIMMTUDAGURINN 30. NÓVEMBER 2006 9STÆRSTA FRÉTTA- OG AUGLÝSINGABLAÐIÐ Á SUÐURNESJUM
Húsasmiðjan í Reykjanesbæ 10 ára:
„Skiptir mestu að að hafa gott fólk með sér“
fimmtíu árum síðan sem bygg-
ingarvöruverslun. Við svörum
hins vegar óskum viðskiptavin-
anna og erum nú mikið með
árstíðabundna sérvöru. Á vorin
erum við með grill og reiðhjól
og svo erum við með vörur sem
tengjast páskum sérstaklega og
nú erum við á fullu í jólavör-
unum.”
Jólahátíðin hefur löngum verið
annatími að sögn Árna, en nú
eru ýmsar uppákomur í boði.
Þau voru með konfektkvöld
fyrir skemmstu þar sem konfekt-
meistari kom í búðina og sýndi
snilli sína. Í kvöld verður svo
20% afsláttur af öllu í búðinni
á milli kl. 19 og 21. Auk tilboð-
anna verður boðið upp á kakó,
kaffi og piparkökur.
Þrátt fyrir að umræðan um fast-
eigna- og byggingamarkaðinn
hafi ekki verið jákvæð undan-
farið segir Árni að það sýni sig
ekki í minnkandi verslun. „Það
er ekki niðursveifla í gangi og
ég er viss um að hún komi ekki
á næsta ári. Það hefur kannski
verið einhver deyfð í húsasölu,
en hún mun taka við sér næsta
ár. Allavegana er enn ungt fólk
sem stendur í húsbyggingum að
koma til mín í búðina að opna
reikning.”
Árni segir að til standi að
brydda upp á nýjungum á næst-
unni, en enn um sinn er ekki
búið að taka neinan ákvörðun
í þá átt.
Spurður að því hvort eitthvað
hafi staðið uppúr á árunum tíu
segir Árni að allur tíminn hafi
verið ánægjulegur í heild sinni,
enda vöxturinn stöðugur ár frá
ári. „Það skiptir mestu máli að
hafa gott fólk með sér því ef
mórallinn er góður skilar það
sér í betri þjónustu og ánægðum
viðskiptavinum.”
Að lokum vill Árni þakka öllum
viðskiptavinum samskiptin á síð-
ustu árum með von um að fram-
hald verði á.