Víkurfréttir - 30.11.2006, Blaðsíða 18
18 VÍKURFRÉTTIR Á NETINU • www.vf.is • LESTU NÝJUSTU FRÉTTIR DAGLEGA!VÍKURFRÉTTIR I 48. TÖLUBLAÐ I 27. ÁRGANGUR
Toyota í Reykjanesbæ færði í dag Foreldrafélagi Ragnarsels tvo svokallaða „Mooncar” bíla. Einn slíkur bíll hefur verið þar í notkun í nokkurn tíma og hefur notið þvílíkra
vinsælda að hann er farinn að láta verulega á sjá. Þessi gjöf ætti
því að kæta krakkana í Ragnarseli.
Ævar Ingólfsson hjá Toyota segir gjöfina vera hluta af fjölskyldu-
stefnu Toyota í Reykjanesbæ.
Toyota gefur Ragnars-
seli tvo leikbíla
Fjöldi línubáta hefur síð-ustu daga sést við veiðar skammt undan landi
í Sandgerði en fréttir hafa
borist vænum þorski á þessum
slóðum. Hafa aflabrögð verið
með ágætasta móti hjá línubát-
unum síðustu daga en eitthvað
dræmara hefur verið hjá neta-
bátunum.
Slæm tíð og langvarandi brælur
hafa hamlað veiðum undan-
farið en aflabrögð hafa verið
góð þegar gefur á sjó, að sögn
Sigurðar Kristjánssonar, stöðvar-
stjóra Fiskmarkaðs Suðurnesja
í Sandgerði. Framboðið hefur
verið gott á línufiski og verð
hefur haldist hátt, bæði á ýsu
og þorski. Sem dæmi má nefna
að meðalverð á þorskkílóinu
hefur verið um 240 krónur nú í
nóvember samanborið við 170
krónur í sama mánuði í fyrra.
Þá hefur verð farið hækkandi á
löngu og steinbít.
Sunna Líf GK á leið til löndunar
í Sandgerði um helgina.
Í baksýn grillir í einn línubát-
inn við veiðar skammt frá
landi.
Góð aflabrögð
þegar gefur á sjó
Frá afhendingu bílanna. Á
myndinni eru Inga Sveinbjörg
Ásmundsdóttir, formaður for-
eldrafélags Ragnarssels, Sæ-
unn G. Guðjóndóttor, forstöðu-
þroskaþjálfi og Ævar Ingólfs-
son frá Toyota Reykjanesbæ.
Toyotasalurinn:Af gefnu tilefni
Þar sem útgáfa Víkurfrétta
er umfangsmikil í
þessari viku með útgáfu
þriggja blaða, tveggja á
Suðurnesjum og einnig
á höfuðborgarsvæðinu
þá var ekki mögulegt að
fjölga blaðsíðum þessa
tölublaðs. Þar sem mikið
magn auglýsinga barst áður
en blaðið fór til prentunar
varð talsvert af lesefni að
víkja fyrir auglýsingum.
Aðsendar greinar og annað
efni sem sent var til birtingar
í þessu blaði mun birtast í
Víkurfréttum í desember en
þá er gert ráð fyrir stærri
blöðum en vanalega.
Ritstjórn.