Víkurfréttir


Víkurfréttir - 30.11.2006, Qupperneq 12

Víkurfréttir - 30.11.2006, Qupperneq 12
12 VÍKURFRÉTTIR Á NETINU • www.vf.is • LESTU NÝJUSTU FRÉTTIR DAGLEGA!VÍKURFRÉTTIR I 48. TÖLUBLAÐ I 27. ÁRGANGUR Fyrirtæki í Reykjanesbæ, K-Matt, hefur nýlega hafið innflutning á bylt- ingarkenndu tæki fyrir sjúk- linga sem eru háðir notkun súrefniskúta, Eclipse að nafni. Kristján Matthíasson rekur K- Matt ásamt konu sinni, Sigríði Ragnarsdóttur, en nýverið var fyrsta Eclipse-súrefnissían af- hent Gunnari Guðnasyni. Gunnar hefur í rúm fimm ár verið algerlega háður notkun súrefniskúta allan sólarhring- inn. Þegar hann þurfti að not- ast við súrefniskútana var mikil fyrirhöfn í kringum það og þurfti hann að vera með allt að 10 kúta inni á heimilinu í einu að því ógleymdu að ekki þarf að fylla á tækið eins og kútana. Eclipse-tækið vinnur súrefni úr andrúmsloftinu og er mjög létt og meðfærilegt að sögn Krist- jáns, eða um 7,6 kíló. Verkefnið hófst fyrr í ár þegar Kristján var að hjálpa Gunn- ari við að finna betri lausnir á sínum málum en eftir sam- skipti við framleiðendur Eclipse í Bandaríkjunum afréð hann að hefja innflutning á tækinu og stofnaði fyrirtækið ásamt eigin- konu sinni. Kristján segir að tækið hafi vakið athygli, m.a. hafi yfir- læknir og starfsfólk lungna- deildar Landspítalans kynnt sér tækið og leist þeim afar vel á. Nú bíða nokkrir aðilar eftir eintökum. „Tækið er notað um allan heim enda mjög meðfæri- legt þannig að ég sé fram á að það muni ná fótfestu hér. Ég sé líka fyrir mér að nokkur störf muni skapast hér á svæðinu í þjónustu við eigendur.“ Kristján ákvað í samstarfi við þrjá aðra góða vini Gunnars, Jón Eyfjörð, Sigurð Friðriksson og þann þriðja sem ekki lætur nafns síns getið að afhenda Gunnari tækið til afnota og sagði Gunnar í samtali við Vík- urfréttir að honum litist mjög vel á og það veitti honum mikið frelsi og í raun nýtt líf. Fékk byltingarkennt súrefnistæki til afnota Gott að eiga góða að!

x

Víkurfréttir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.