Víkurfréttir - 13.05.2004, Blaðsíða 16
16 VÍKURFRÉTTIR Á NETINU I www.vf.is I LESTU NÝJUSTU FRÉTTIR DAGLEGA!
Verktakafyrirtækið SEESehf. var lægstbjóðandi ígatnagerð 1. áfanga í
Tjarnarhverfi. Hljóðaði tilboð
fyrirtækisins upp á 31.571.150
krónur sem er 78,5% af kostn-
aðaráætlun sem hljóðaði upp á
49.219.000 krónur.
Nesprýði ehf. bauð lægst í gatna-
gerð við 2. áfanga í Tjarnarhverfi
og hljóðaði tilboð fyrirtækisins
upp á 34.470.850 krónur eða
78% af kostnaðaráætlun sem var
44.167.000.
Verktakafyrirtækið Eldgjá ehf.
bauð lægst í bæði verkin en dró
bæði tilboð sín til baka. Tilboðin
voru opnuð á fundi bæjarráðs í
vikunni og var framkvæmda-
stjóra Umhverfis- og skipulags-
sviðs að ganga til samninga við
lægstbjóðendur.
stuttar
f r é t t i r
Rúmlega 200 lóðum varúthlutað í nýju Tjarnar-hverfi í Innri-Njarðvík á
fundi umhverfis- og skipulags-
nefndar bæjarins í síðustu
viku. Aldrei hefur jafnmörgum
lóðum verið úthlutað í einu, en
lóðirnar var öllum úthlutað til
byggingaverktaka.
Húsanes ehf. fékk lóðir fyrir 102
leigu- og söluíbúðir. Meistarahús
byggir 20 íbúðir, en auk þess
sækja Meistarahús um lóðir í
samvinnu við Búmenn þar sem
gert er ráð fyrir byggingu 30
íbúða. Byggingarfélagið Breki í
Garðabæ fékk úthlutað lóðum
fyrir 30 íbúðir og Toppurinn fékk
lóðir fyrir byggingu 16 íbúða.
Í Tjarnarhverfi verða alls 552
íbúðir, þar af 357 í fjölbýli, 130 í
raðhúsum og 65 einbýlishúsum.
Að sögn Steinþórs Jónssonar
formanns umhverfis- og skipu-
lagsnefndar Reykjanesbæjar
hafa margir einstaklingar óskað
upplýsinga um lóðir fyrir ein-
býlishús, rað- og parhús en
engar umsóknir hafa verið
teknar til afgreiðslu. „Það er
greinilega mikill áhugi fyrir
lóðum í Tjarnarhverfinu, enda
var slegið met í úthlutun lóða á
fundinum. Þetta er mjög já-
kvæðar fréttir fyrir Reykjanes-
bæ,“ sagði Steinþór í samtali
við Víkurfréttir.
Rúmlega 200 lóðum út-
hlutað í Tjarnarhverfi
SEES og
Nesprýði í
gatnagerð í
Tjarnarhverfi
Vonast er til að fram-kvæmdir við bygginguVíkingaheims við Fitjar
hefjist á þessu ári. Árni Sigfús-
son bæjarstjóri Reykjanesbæj-
ar greindi frá þessu á íbúa-
fundi í Innri Njarðvík í fyrra-
kvöld. Um 130 íbúar Innri-
Njarðvíkur mættu á fundinn
þar sem bæjarstóri greindi frá
helstu framkvæmdum sem í
gangi eru eða eru fyrirhugaðar
á vegum Reykjanesbæjar.
Mikil uppbygging mun eiga sér
stað á næstu tveimur árum í
Innri-Njarðvík. Þar rís Akurskóli
en tilboð í byggingu skólans voru
opnuð í fyrradag. Byggingafyrir-
tæki Hjalta Guðmundssonar í
Reykjanesbæ bauð lægst í bygg-
ingu skólans eða 407 milljónir
króna. Kostnaðaráætlun bæjarins
hljóðaði upp á 460 milljónir
króna. Gert er ráð fyrir að skól-
inn hefji starfsemi haustið 2005.
Nýlega var rúmum 200 íbúðum í
Tjarnarhverfi úthlutað á vegum
umhverfis- og skipulagsnefndar
Reykjanesbæjar. Mikill áhugi er
á íbúðum á svæðinu en þar er
gert ráð fyrir byggingu rúmlega
500 íbúða. Skýrði bæjarstjóri frá
uppbyggingu Tjarnarhverfisins
og sagði hann að hafist verði
handa við gatnaframkvæmdir
fyrir 1. og 2. hluta hverfisins
fljótlega. „Við viljum að fólk geti
keyrt inn malbikaða botnlanga
og sjái götuheitin. Eftirspurnin
eftir lóðum í fyrstu úthlutun var
meiri en við gerðum ráð fyrir og
svæðið mun byggjast hratt upp.“
Í hinu nýja Tjarnarhverfi verða
götuheitin byggð á fuglanöfnum.
Dæmi um nöfn í hverfinu eru
Álftatjörn, Blikatjörn, Arnar-
tjörn, Súlutjörn, Þrastartjörn og
Spóatjörn.
Athugasemdir frá íbúum
Á íbúafundi bæjarstjóra með íbú-
um Innri-Njarðvíkur í fyrra voru
athugasemdir íbúa skrifaðar nið-
ur og fór bæjarstjóri í gegnum
það sem framkvæmt var í kjölfar
þeirra athugasemda. Bárust bæj-
arstjóra nokkrar athugasemdir á
fundinum á þriðjudagskvöld sem
helst lúta að fjölgun hraðahindr-
ana, ferða almenningsvagna,
göngustíga og færslu leikvallar í
Innri-Njarðvík.
Efling ferðaþjónustu eitt
stærsta verkefnið
„Við viljum ná fleiri ferðamönn-
um í bæinn okkar og það er okk-
ar stærsta verkefni. Til þess þurf-
um við ákveðna segla sem draga
ferðamenn á svæðið og eru það
sterkir að ferðamenn séu að
heimsækja Ísland vegna þessara
segla. Gott dæmi um slíkan segul
er Bláa lónið sem dregur þúsund-
ir ferðamanna til Íslands á hverju
ári,“ sagði Árni Sigfússon á íbúa-
fundi í Innri Njarðvík á þriðju-
dagskvöld.
Víkingaheimur að Fitjum og ferða-
þjónusta við virkjun á Reykjanesi
Verkefni sem skilgreind eru sem
slíkir seglar eru Víkingaheimur
og víkingasýning Smithsonian
M I K I L U P P B Y G G I N G Í I N N R I - N J A R Ð V Í K F R A M U N D A N
➤ Íbúafundir með bæjarstjóra Reykjanesbæjar:
Víkingadraumurinn að rætast
Stjórn Flugstöðvar Leifs Eiríkssonar hf. segir að
uppsögn húsaleigusamnings við Íslenskan markað
sé liður í endurskipulagningu verslunar- og þjón-
usturýmis flugstöðvarinnar. Í tilkynningu frá
stjórn FLE kemur fram að endurskipulagningin
hafi staðið yfir í langan tíma en að ekki hafi verið
hægt að ljúka henni vegna málaferla við Íslenskan
markað. Segir í tilkynningunni að Íslenskur mark-
aður sé með stórt rými í flugstöðinni og með því
að skipta rýminu upp í smærri einingar sé hægt að
hleypa fleiri aðilum að með fjölbreyttari þjónustu.
Slíkt fyrirkomulag skapi fleiri störf, en stjórnendur
flugstöðvarinnar segja að störfum í flugstöðinni
fjölgi um 70 stöðugildi á næstu tveimur árum.
Síðdegis í gær sendu Samtök verslunar og þjón-
ustu frá sér yfirlýsingu þar sem uppsögn á húsa-
leigusamningi Íslensks markaðar er harðlega mót-
mælt. Segir í yfirlýsingu frá samtökunum að upp-
sögnin sé gerð í hefndarskyni fyrir þá ákvörðun
Íslensks markaðar að kæra FLE fyrir brot á sam-
keppnislögum.
Samtök Iðnaðarins sendu einnig frá sér yfirlýs-
ingu vegna uppsagnarinnar þar sem skorað er á
stjórn FLE að draga til baka uppsögn á samningn-
um. Jafnframt er skorað á utanríkisráðherra að
tryggja að íslensk framleiðsla fái þar eðlilegan að-
gang.
Harkaleg átök vegna uppsagnar á leigusamningi
F L U G S T Ö Ð L E I F S E I R Í K S S O N A R
Um 130 manns mættu á íbúafund með bæjarstjóra í
Innri-Njarðvík í fyrrakvöld. Íbúarnir komu með fjöl-
margar athugasemdir sem snúa helst að fjölgun
hraðahindrana og almenningssamgöngum.
Allar götur í Tjarnarhverfi bera
nöfn fugla. Dæmi um nöfn í
hverfinu eru Álftatjörn, Blika-
tjörn, Arnartjörn, Súlutjörn,
Þrastartjörn og Spóatjörn.
20. tbl. 2004 umbrot 12.5.2004 16:39 Page 16