Víkurfréttir


Víkurfréttir - 13.05.2004, Blaðsíða 28

Víkurfréttir - 13.05.2004, Blaðsíða 28
28 VÍKURFRÉTTIR Á NETINU I www.vf.is I LESTU NÝJUSTU FRÉTTIR DAGLEGA! Sálarrannsóknarfélagið Skúli Lóransson miðill verður með skyggnilýsingarfund þriðjudaginn 18. maí kl. 20.30 í húsi félagsins að Víkurbraut 13. Húsið verður opnað kl. 20, aðgangseyrir við innganginn. Allir velkomnir. Skúli verður einnig með einkafundi sama dag. Tímapantanir í síma: 421 3348 eða 866 0621. Stjórnin Fyrrverandi nemendur úrBarnaskóla Keflavík-ur/Myllubakkaskóla vinna nú að  eirri hugmynd að gefa Myllubakkaskóla SÓ LÚ R og reisa  að fyrir framan skól- ann. Sólúrið er minnisvarði og tákn um sameiginlegt ferðalag okkar í gegnum skólann á árunum 1957- 62 og tileinkað minningu Vil- hjálms Ketilssonar, skólastjóra við Myllubakkaskóla, og annarra félaga okkar úr árganginum sem kvatt hafa okkur. „ Sólúr/sólklukkur eru ævaforn fyrirbæri og eru vitnisburður um vitund og skilning mannsins á lögmálum náttúrunnar og einnig þörf hans til að henda reiður á framrás tímans.  arna kemur til þekkingarþorsti mannsins, rökhugsun, útsjónar- semi og verklagni.  essir þættir í fari mannsins sem kristallast í sköpun sólúrsins eru frumkraftar í framþróun siðmenningar og menntunar.  að er því táknrænt að reisa sólúr fyrir framan barna- skólann okkar“ , segir Tómas Jónsson sem hefur verið í for- svari árgangsins fyrir málinu. Tómas segir að það sem sé óvenjulegt við þetta sólúr sé að það „ kviknar“ aðeins á því - þ.e.a.s. það sýnir aðeins tímann að manninum viðstöddum.  að er enginn stöng eða staur sem varpar skugga á skífuna heldur verður maðurinn sjálfur að stan- da á miðri skífunni og þannig er það skuggi hans sjálfs sem lendir á skífunni og vísar á klukkustund dagsins.  að er því gjörningur af bestu gerð í hvert sinn sem hún er notuð. „ Nú er það svo að auðvitað hefur hvert einasta mannsbarn aðgang að klukku.  að er hins vegar þessi táknræna skírskotun til uppgötvunar mannsandans - og þetta nauðsynlega samspil mannsins, sólarinnar og skífunn- ar - sem er svo heillandi. Í raun er fyrirbærið skólabókardæmi um náttúruvísindi. Við þykjumst viss um að Vilhjálmur hefði ver- ið okkur hjartanlega sammála“ , segir Tómas.. „ Við sjáum fyrir okkur steyptan sporöskjulagaðan stall/pall - 4,5 m í þvermál og 50 sm. háan. Skífan sjálf er unnin úr íslensku grágrýti og felld ofan í steypuna. Steypan í pallinum er ljós að lit en skífan dökk - sjá nánar á mfl. teikningu.  annig tekur hún til sín athygli og er áberandi í um- hverfinu. Væntanlega verður sól- klukkan aðdráttarafl skólabarna þar sem þau geta hist, tyllt sér og átt samverustundir.“ Að sögn Tómasar var samband haft við Modern Sunclocks í Skotlandi, fyrirtæki sem hefur sérhæft sig í að reikna út og grunnteikna sólskífur út frá lengdar- og breiddargráðum á jörðinni. Gegn vægu gjaldi sendu þeir sína útreikninga að sólskífu miðað við lengdar- og breidd- argráðu Keflavíkur. Fyrirtækið hefur á undanförnum árum gert mörg hundruð slíkar teikningar fyrir aðila víðs vegar um heiminn og fullyrðir að þetta yrði nyrsta sólúr jarðarinnar og það eina sinnar gerðar á Í slandi.  að er auðvitað skemmtileg staðreynd fyrir samfélagið. Ó neitanlega er framkvæmdin töluvert flókið og dýrt fyrirtæki og er því óhjákvæmilegt að leita eftir fjárstuðningi svo hægt verði að hrinda henni í framkvæmd svo sólúrið verði ekki bara öllum til sóma heldur líka endingargott og viðhaldsfrítt. Leitað var eftir ráðgjöf lista- manna sem unnið hafa í stein svo og fagmanna í steypuiðnaði og steinsmíði. Eftir þá könnun var niðurstaðan að sækjast eftir sam- starfi við Einingaverksmiðjuna ehf., Breiðhöfða 10, Reykjavík og S. Helgason hf. steinsmiðju, Skemmuvegi 48, Kópavogi. Samkvæmt þessum verðhug- myndum gæti sólúrið kostað á bilinu 1,2-1,7 millj. kr. Ó skir undirbúningsnefndar ár- gangsinns 1950, sem heldur upp á 40 ára fermingarafmæli í vor og vill koma þessu verkefni til skila, er að sólúrið verði vígt við hátíðlega athöfn laugardaginn 29. maí.  eim sem leggja vilja árgangin- um lið við þessa framkvæmd og leggja hönd á plóginn er vinsam- legast bent á söfnunarreikning í sparisjóð Njarðvíkur: 1191-05-401060 / kt.: 030550- 3159 / Á rgangur 1950. Sólúr við Myllubakkaskóla? Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og vinarhug vegna andláts og útfarar ástkærs eiginmanns, föður, tengdaföður, bróður og afa, Sérstakar þakkir til starfsfólks Heilbrigðisstofnunar Suðurnesja, heimaaðhlynningu, Sigurðar Árnasonar krabbameinslæknis og Konráðs Lúðvíkssonar læknis fyrir ómetanlega aðstoð gegnum árin. Jóns Frímannssonar, Nónvörðu 14, Keflavík. Aðalheiður Jónsdóttir, Ásdís Jónsdóttir, Halldór Ármannsson, Þóra Jónsdóttir og barnabörn. Kóramót eldri borgarasem haldið er á hverjuári eftir vetrarstarfið fer fram í Víðistaðakirkju laugardaginn 15. maí kl. 17.00.  átttakendur í mótinu eru Vorboðar úr Mosfellsbæ , Eldey frá Suðurnesjum, Samkórinn Hljómur frá Akranesi, Hö rpukórinn úr Á rborg og Gaflarakórinn úr Hafnarfirði. Mótið er haldið til skiptis í heimabæ jum kóranna og hefur verið haldið um nokkurra ára skeið. Hver kór syngur nokkur lö g og allir kórarnir syngja svo saman í lokin.  ekktar sö ngstjö rnur fyrri ára koma fram með kórunum, m.a.  au Guðrún Tómasdóttir og Skapti Ó lafs- son. Aðgangseyrir er kr. 500 og eru allir velkomnir. Kóramót eldri borg- ara í Víðistaðakirkju 20. tbl. 2004 umbrot 12.5.2004 16:59 Page 28

x

Víkurfréttir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.