Víkurfréttir - 13.05.2004, Side 18
18 VÍKURFRÉTTIR Á NETINU I www.vf.is I LESTU NÝJUSTU FRÉTTIR DAGLEGA!
➤ Reynir Sveinsson, formaður stjórnar Kölku svarar lesendabréfi:
Víkurfréttamynd: Hilmar Bragi
Góðvinur minn GylfiGuðmundsson sendimé r bré f í síðasta blaði
Víkurfré tta ar sem hann l sti
á skemmtilegan hátt viðskipt-
um sínum við starfsmenn
Kö lku sem er n ja sorpeyðing-
arstö ðin okkar Suðurnesja-
manna.
Ekki veit ég nákvæmlega hvern-
ig samskiptum þínum Gylfi við
starfsmenn Kölku lauk, en eitt
mátt þú vita að stjórn Kölku hef-
ur sett sér það að markmiði að
þjónusta stöðvarinnar verði til
fyrirmyndar.
Umhverfi verður snyrtilegt og
ímynd Kölku verður okkur Suð-
urnesjamönnum til sóma, en
framkvæmdum er ekki lokið við
hlið og girðingu umhverfis stöð-
ina, nú á næstu dögum verður
lokið við að setja upp fína girð-
ingu ásamt tilheyrandi hliðum og
merkingum sem á að gefa til
kynna hvernig menn eiga að um-
gangast þessa glæsilegu stöð.
Vel má vera að þú með þessa
fínu kerru frá Húsasmiðjunni (
ég held að við séum að auglýsa
alltof mikið fyrir Húsasmiðjuna
með þessum skrifum okkar ) haf-
ir náð að komast inn á svæði þar
sem gestir með fínar kerrur eiga
ekkert erindi.
En kæri Gylfi það er gult skilti
utan við aðkomuna að Kölku
með upplýsingum um opnunar-
tíma og fl. Getur verið að þú eins
og sannur Í slendingur hafir ekki
lesið upplýsingarnar fyrr en allt
er komið í kalda kol hjá þér -
frekar óþægileg staða fyrir
reyndan skólamann?
annig er með allt sem er nýtt,
það verður að fást reynsla á hlut-
ina og kann að vera og eru raun-
ar miklar líkur á því að opnunar-
tími Kölku verði endurskoðaður
einhvern tíma síðar.
Vel getur verið að skiltið hafi
ekki sést, það minnir mig á sög-
una um Sandgerðinginn sem fór
gangandi frá Sandgerði til Kefla-
víkur. Hann sagði að þokan hafi
verið svo svört á Miðnesheiðinni
að hann hafi ekki séð fet fram
fyrir sig, verið rammvilltur, þar
til að hann sté næstum því með
vinstri löppina fram af berginu
við Helguvík. á fyrst var honum
nóg boðið og hann gekk aftur
beinustu leið heim til Sandgerðis.
Að lokum Gylfi, Kalka á eftir að
vera viðkomustaður margra Suð-
urnesjamanna um ókomna tíð og
stjórnin leggur áherslu á að
starfsmenn taki vel á móti öllum
viðskiptavinum Kölku.
É g hvet því alla til að sýna smá
þolinmæði á meðan stöðin er að
komast af stað þar til byrjun-
arörðugleikar okkar verða að
baki.
Ps. Vopnaðir hermenn við veginn
að Helguvík og Kölku á dögun-
um voru ekki á vegum stjórnar til
að koma í veg fyrir að „ kallar“
með fínar kerrur villist ekki inná
svæðið.
Með sumarkveðju
Reynir Sveinsson,
formaður Kö lku.
Ég er alveg í rusli yfir þessu
Fjölmenni var við 50 ára af-
mæli Kristjáns Gunnarsson-
ar formanns Verkalýðs- og
sjómannafélags Keflavíkur
og nágrennis sem haldið var
í Stapanum þann 6. maí sl.
Meðal gesta voru forseti Í s-
lands og fjölmargir samherj-
ar úr stjórnmálunum og
verkalýðsmálunum sem
fögnuðu með Kristjáni og
konu hans Guðrúnu Ö nnu
Jóhannsdóttur.
20. tbl. 2004 umbrot 12.5.2004 15:20 Page 18