Víkurfréttir


Víkurfréttir - 13.05.2004, Qupperneq 22

Víkurfréttir - 13.05.2004, Qupperneq 22
KEFLAVÍK Saga Keflavíkur í efstu deild er löng og hafa þeir unnið til fjög- urra Í slandsmeistaratitla og tveggja bikarmeistaratitla. Gengi liðsins hefur þó verið misjafnt síðustu ár og féllu þeir úr efstu deild árið 2002 eftir tíu ára setu. Ú tlegðin var þó ekki löng þar sem Keflvíkingar unnu 1. deild- ina með sannfærandi hætti síð- asta sumar og fóru upp um deild á ný. Gengi Keflavíkur á undirbún- ingstímabilinu hefur verið ágætt þar sem þeir hafa unnið flesta æf- ingaleiki sína og voru taplausir í Deildarbikarnum áður en þeir féllu óvænt úr keppni í 8-liða úr- slitum. Leikmannamál Keflvíkinga hafa verið nokkuð í umræðunni síðan í vetur þar sem þeir leituðu sér- staklega að markmanni í stað Ó mars Jóhannssonar sem flutti til Svíþjóðar eftir síðustu leiktíð. Liðið leitaði fanga utan land- steinanna þar sem markmenn frá Danmörku,  ýskalandi og Serbíu voru skoðaðir, en að lokum sneri Ó lafur Gottskálksson aftur á fornar slóðir og mun verja mark Keflvíkinga ásamt hinum unga og efnilega Magnúsi  ormar. Framlína liðsins er sennilega helsti styrkleiki þess, en þar fara fremstir  órarinn Kristjánsson, Hörður Sveinsson og heimamað- urinn Guðmundur Steinarsson sem snýr aftur til Keflavíkur eftir að hafa leikið með Fram og dan- ska liðinu Brönshöj síðustu miss- eri.  essir piltar hafa staðið sig vel í vor og hefur Hörður vakið sérstaka athygli fyrir vaska fram- göngu og markheppni. Milan Stefán Jankovic er þjálfari Keflavíkur og hefur verið mikil ánægja með hans störf. Honum líst vel á átök sumarsins. „ É g held að þetta verði skemmtileg- asta og erfiðasta sumarið hingað til. Ö ll liðin eru vel búin og með góða leikmenn og toppaðstöðu þannig að þetta verður skemmti- legt og gott sumar.“ Hann sagði stöðuna góða í sínum herbúðum þar sem engar stórar breytingar hafa orðið á hópnum. Milan bætir því við að hann telji líklegt að Hörður Sveinsson eigi eftir að vekja mikla athygli á leiktíðinni. „ Hann hefur sýnt í vetur að hann er mjög góður leik- maður og mun vonandi standa sig í sumar.“ Keflvíkingum er spáð ágætu gengi í sumar þar sem fjölmiðlar hafa spáð liðinu um miðja deild. Væntingar stuðningsmanna eru miklar eftir árs fjarveru úr úrvals- deild og er víst að liðið ætti að geta varið sæti sitt í deildinni og hefur mannskap til þess að koma skemmtilega á óvart. GRINDAVÍK Grindvíkingar sluppu naumlega við fall úr Landsbankadeildinni í fyrrasumar þar sem jöfnunar- mark frá Sinisa Kekic á lokamín- útum síðasta leiks sumarsins bjargaði þeim á einhverjum æsi- legasta lokaspretti í sögu efstu deildar. Hefðu þeir fallið hefði það verið í fyrsta sinn sem Grindvíkingar lentu í því, en þeir spiluðu fyrst í efstu deild árið 1995 og hafa haldið sæti sínu síðan. Undirbúningstímabilið hefur ekki gengið sem skyldi hjá liðinu en þeir komust ekki upp úr sín- um riðli í Deildarbikarnum og hafa ekki riðið feitum hesti frá æfingaleikjum vorsins. Grindvík- ingar hafa hins vegar bætt nokkrum mönnum við sig að undanförnu en, þar ber hæst markvörðinn Albert Sævarsson, sem snýr aftur úr atvinnu- mennskunni og mun styrkja liðið mikið, enda einn besti markmað- ur landsins.  ar að auki hafa Grindvíkingar m.a. fengið til liðs við sig hinn efnilega framherja Ó skar Ö rn Hauksson, sóknartengiliðinn Orra Frey Vigfússon og tvo leik- menn frá Bosníu og Serbíu. Á móti kemur að Grindvíkingar sáu á eftir sínum besta manni eft- ir síðustu leiktíð þegar landsliðs- maðurinn Ó lafur Ö rn Bjarnason hélt til Noregs í atvinnumennsku. Lykilmaður á næstu leiktíð verð- ur þó Grétar Hjartarson og sást glögglega á síðasta sumri hversu mikilvægur hann er fyrir liðið, en þessi fyrrum markakóngur gat ekkert leikið með sínum mönn- um á síðustu leiktíð vegna meiðsla.  jálfari Grindvíkinga er Zeljko Sankovic og hefur hann stundað þjálfun hér á landi frá árinu 1997. Hann hefur ekki þjálfað lið í efstu deild á Í slandi áður. „ É g held að við eigum eftir að sjá góðan fótbolta í sumar. Í s- lensk knattspyrna er afskaplega athyglisverð og er á hraðri upp- leið.“ Zeljko segir Ó skar Ö rn lík- legan til að vekja mikla athygli enda sé hann á leiðinni að verða mjög góður leikmaður. „ É g er ánægður með stöðuna hjá okkur núna, við erum með góða leik- menn og athyglisvert lið, en ég þarf tíma til að sjá hvað er besta byrjunarliðið og hvaða leikaðferð við munum nota.“ Grindvíkingum er ekki spáð góðu gengi á leiktíðinni þar sem flestir fjölmiðlar hafa spáð þeim í neðri hluta deildarinnar, jafnvel falli. Slíkar hrakspár eru ein- kennilegar þar sem liðið hefur góðum hóp á að skipa og virðst hafa alla burði til þess að stríða sigurstranglegri liðunum. 22 VÍKURFRÉTTIR Á NETINU I www.vf.is I LESTU NÝJUSTU FRÉTTIR DAGLEGA! sportið  jálfarar, fyrirliðar og forráðamenn liðanna í Landsbankadeildinni spá Grindvíkingum 9. sætinu og falli úr deildinni í sumar. Keflvíkingum er spáð 6. sætinu í þessari könnun, sem var kynnt á hinum árlega kynningarfundi fyrir Í slandsmótið sem haldinn var í Smáralind á mánudaginn.  ar var búist við því að karlalið KR verji Í slandsmeistaratitilinn frá því í fyrra og að Í BV vinni sigur í kvennadeildinni. Zeljko Sankovic, þjálfari Grindvíkinga, er hreint ekki sammála þessari spá. „ É g held bara að þeir hafi verið að gantast eitthvað! Við erum með mun sterkara lið en þeir virðast halda.“ Milan Jankovic, þjálfara Keflavíkur, leist nokkuð vel á spána. „  að kemur samt á óvart að Grindavík sé spáð falli.“ FÓTBOLTASUMARIÐ 2004 Um helgina fer boltinn að rúlla í Landsbankadeildinni og er allt útlit fyrir spennandi og skemmtilega deild í sumar. Keflvíkingar eiga aftur sæti á meðal þeirra bestu og eru ásamt Grindvíking- um fulltrúar Suðurnesjamanna í efstu deild. Grindavík spáð falli Grindavík spáð falli! 20. tbl. 2004 umbrot 12.5.2004 14:58 Page 22

x

Víkurfréttir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.