Víkurfréttir


Víkurfréttir - 03.08.2017, Page 7

Víkurfréttir - 03.08.2017, Page 7
7fimmtudagur 3. ágúst 2017 VÍKURFRÉTTIR Algjör úti- legukelling GUNNHILDUR VILBERGSDÓTTIR Hvert á að fara um verslunar- mannahelgina í ár? Við verðum fjöl- skyldan annað- hvort í sveitinni hjá mömmu og pabba eða í úti- legu í góðra vina hópi. Ég er alla- vega ekki týpan til að vera heima hjá mér um verslunar- mannahelgina. Með hverjum á að fara? Húsbandinu og börnunum og svo ræðst restin. Lætur þú veðurspá ráða því hvert á að fara um verslunarmannahelgina? Já, veðrið finnst mér skipta mjög miklu máli í útilegu svo hægt sé að njóta úti- verunnar. Svo er ég líka með sólarsýki á háu stigi. Hvert hefur þú farið um verslunar- mannahelgi síðustu ár? Við höfum gjarnan verið í sveitinni hjá mömmu og pabba eða með góðum vinum á ferðalagi. Engin sérstök hefð fyrir því hvað við gerum um verslunar- mannahelgina en ég er allavega aldrei heima. Hvert hefur þú farið í ferðalög í sumar? Í sumar erum við búin að eltast við fótboltamótin hjá strákunum okkar og fara í góða útilegu austur á Kirkju- bæjarklaustri með vinum. Svo fór ég í hestaferð með foreldrum mínum auk 20 hestamanna þar sem riðið var um Rangárvelli og inní Landssveit. Hvernig ferðalög ertu að stunda? Ferðu í sumarbústað eða í ferðavagna? Ég er algjör útilegukelling. Finnst lang- skemmtilegast að vera í ferðavagni með fjölskyldunni og skemmtilegu fólki þar sem notið er náttúrunnar og samveru. En svo finnst mér líka æðislegt að fara til sólarlanda. Hefur þú verið heppin með veður á ferðalögum þínum í sumar? Já við höfum verið verulega heppin í öllum okkar ferðalögum í sumar en ef maður ætlar að ferðast á Íslandi þá þarf maður líka bara að hafa jákvætt hugar- far. Félags- skapurinn og stemningin eru númer eitt, tvö og þrjú BIRTA RÓS ARNÓRSDÓTTIR Hvert á að fara um ve rslunar- mannahelgina í ár? Ég verð heima. Lætur þú veður- spá ráða því hvert á að fara um verslunarmanna- helgina? Það er svo langt síðan ég hef farið í ferðalag um verslunarmannahelgina, en auðvitað hef ég reynt að elta góða veðrið. Hvert hefur þú farið um verslunar- mannahelgi síðustu ár? Þar sem ég hef verið í skóla undanfarin þrjú ár hef ég ekkert sumarfrí fengið, því fer fjölskyldan án mín. Maðurinn minn elskar ferðalög og setur það ekki fyrir sig að vera einn með börnin. Hvert hefur þú farið í ferðalög í sumar? Ég fór á fótboltamót á Akureyri. Hvernig ferðalög ertu að stunda? Ferðu í sumarbústað eða í ferðavagna? Við fjölskyldan eigum fellihýsi og notum það. Við leigjum okkur aldrei sumar- bústað. Hefur þú verið heppin með veður á ferðalögum þínum í sumar? Tjah...já. Veðrið var ágætt á Akureyri fyrir utan einstaka skúr. Svo má ekki gleyma því að veðrið er ekki aðalatriðið, þó að það spili stórt hlutverk. Félags- skapurinn og stemningin eru númer eitt, tvö og þrjú. Meira fyrir kósýheit heima KONNÝ HRUND GUNNARSDÓTTIR Hvert á að fara um verslunar- mannahelgina í ár? Ég er ein af þeim s e m f e r mj ö g sjaldan eitthvert um þessa helgi. En ef við f jöl- skyldan ákveðum að fara eitthvert þá yrði það líkleg- ast dagsferð til vina í bústað eða austur á Klaustur til Lindu systur. Með hverjum á að fara? Karlinum og strákunum okkar fjórum. Lætur þú veðurspá ráða því hvert á að fara um verslunarmannahelgina? Ef um tjaldútilegu er að ráða þá alveg hiklaust. Það að vakna í blautum svefn- poka eftir brjálaða rigningarnótt eða undir berum himni því Kári hefur ákveðið að hrista sig aðeins of mikið er ekki minn tebolli. Hvert hefur þú farið um verslunar- mannahelgi síðustu ár? Eins og ég nefndi að ofan þá förum við sára sjaldan eitthvert þessa helgi. Við erum meira fyrir kósýheit heima fyrir en að húkka í margra kílómetra bílaröð eftir þjóðveginum. Hvert hefur þú farið í ferðalög í sumar? Við fórum í æðislega viku í Grímsnesið í sumarbústað sem starfsmannafélagið Þorbjörn á. Helmingurinn af fjölskyld- unni kom þó heim með samtals 100 bit eftir lúsmý. Náttúran sko. Hvernig ferðalög ertu að stunda? Ferðu í sumarbústað eða í ferðavagna? Sumarbústaður er alltaf nr. 1 en annars eigum við stórt og flott braggatjald sem við notum í útilegur. Hefur þú verið heppin/n með veður á ferðalögum þínum í sumar? Við erum bara búin að fara þessa fyrr- nefndu viku í bústað og ringdi 5 daga af 7 en fallegt var veðrið þrátt fyrir það. Iðandi tónlist allt í kring MARGRÉT PÁLSDÓTTIR Hvert á að fara um verslunar- mannahelgina í ár? Ég ætla að vera heima og hafa það huggulegt. Mig langar á tón- leika á Bryggjunni í R e y k j av í k á f i m m t u d a g s - kvöldið og á Opið svið á Bryggjunni í Grindavík á föstu- dagskvöldið. Innipúkinn gæti heillað mig á laugardaginn og svo fer ég ör- ugglega á tónleikana Leikhúsperlur á Gljúfrasteini á sunnudaginn. Sem sagt, iðandi tónlist allt í kring. Með hverjum á að fara? Ég verð að sjálfsögðu með kærastanum og svo er aldrei að vita hvort einhverjir fleiri bætast við. Lætur þú veðurspá ráða því hvert á að fara um verslunarmannahelgina? Nei, mér finnst besta veðrið alltaf vera þar sem ég er hverju sinni. Hvert hefur þú farið um verslunar- mannahelgi síðustu ár? Ég hef oftast verið heima og notið þess í botn. Ég fékk ágætan skammt af útihá- tíðum hér áður fyrr og á frá því góðar minningar. Það nægir mér í bili. Þó er aldrei að vita hvað gerist síðar. Það gæti verið gaman að fara á útihátíð í ellinni. Hvert hefur þú farið í ferðalög í sumar? Ég fór til Hollands, Frakklands og Þýska- lands nú í júlí og hef skroppið í nokkrar dagsferðir um Suðurlandið. Allt finnst mér þetta jafn skemmtilegt. Hvernig ferðalög ertu að stunda? Ferðu í sumarbústað eða í ferðavagna? Það fer allt eftir því hvað mér býðst hverju sinni. Mér finnst gott að skjótast í bústað en er minna fyrir ferðavagnana. Hefur þú verið heppin með veður á ferðalögum þínum í sumar? Já, veðrið hefur leikið við mig í allt sumar. Mér finnst notalegt að vera úti þegar sólin skín og þegar rignir ösla ég um í stígvélum þegar ég nenni. Reyndar er rigningin prýðilegt lestrarveður og góð afsökun fyrir því að gera ekki neitt. Elska ferðalög GUÐNÝ KRISTJÁNSDÓTTIR Hvert á að fara um ve rslunar- mannahelgina í ár? Æ t l a a ð v e r a heima þetta árið um vers lunar- m a n n a h e l g i n a . Búin að vera á f landri í al lt s u m a r . K í k i kannski á rúntinn með fjölskylduna. Lætur þú veðurspá ráða því hvert á að fara um verslunarmannahelgina? Hef ekki látið veður stoppa mig á ferða- lögum. Bara græja sig rétt. Hvert hefur þú farið um verslunar- mannahelgi síðustu ár? Fór tuttugu ár í röð í sumarbústað á Þingvöllum en annars flakkað víða um landið. Elska ferðalög. Hvert hefur þú farið í ferðalög í sumar? Í sumar hef ég lítið ferðast innanlands en er nýkomin úr veiði með veiðifélögum mínum í Postulunum 12 í Gufusalsá. Svo höfum við fjölskyldan í mörg ár tekið Fiskidaginn mikla og ætlum núna líka. Hvernig ferðalög ertu að stunda? Ferðu í sumarbústað eða í ferðavagna? Við erum búun að taka allan pakkann á ferðamátann. Tjald, tjaldvagn, fellihýsi og nú síðast hjólhýsi. Alltaf gaman að leigja bústað líka. Hefur þú verið heppin með veður á ferðalögum þínum í sumar? Maður klæðir sig eftir veðri. Verslunarmannahelgin PÓSTFANG FRÉTTADEILDAR VF@VF.IS REYKJANESBÆR 1. ÁGÚST 2017 Hilmar Bragi Bárðarson

x

Víkurfréttir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.