Víkurfréttir - 03.08.2017, Side 19
19fimmtudagur 3. ágúst 2017 VÍKURFRÉTTIR
Fjölbreytileikinn
gefur lífinu lit
„Það er allt í lagi að vera með slit,“ segir
einkaþjálfarinn Sveindís Guðmundsdóttir
„Mér finnst svo mikilvægt að læra að
elska sig eins og maður er. Maður þarf
að hætta að spá hvað öðrum finnst,
því það skiptir engu máli. Það skiptir
máli hvað þér sjálfum finnst,“ segir
einkaþjálfarinn Sveindís Guðmunds-
dóttir, en þegar hún var 11 ára gömul
fór hún að taka eftir því að líkaminn
hennar fór að breytast hratt, sem hún
átti erfitt með að skilja og sætta sig
við. Hún segir mikilvægt að opna
umræðuna um slit og þá sérstaklega
fræða börn og unglinga um það að slit
séu eðlileg.
Á dögunum skrifaði hún færslu á Fa-
cebook þar sem hún deildi mynd af
slitunum sínum og talaði um mikil-
vægi þess að elska sjálfan sig eins og
maður er. Með þeirri færslu vildi hún
koma einhverri umræðu af stað og
minna fólk á það að slit séu ekkert til
að skammast sín fyrir. „Mér fannst
mjög erfitt að deila þessu. En þegar ég
gerði það sagði ég bara sjálfri mér að ég
væri falleg og að ég elskaði mig sjálfa
eins og ég er. Það er margt sem ég hef
upplifað í mínu lífi sem hefur fengið
mig til að þroskast fyrr, en maður sér
það með aldrinum að maður lifir bara
fyrir sig sjálfan og engan annan.“
Hún hefði viljað meiri fræðslu um
líkamsímynd sem barn til þess að
koma sér í áttina að heilbrigðum lífs-
tíl. „Ég hefði þurft einhvern á þeim
tíma til þess að hjálpa mér. Ég var að
fitna alltof hratt og enginn foreldri
að hugsa um mig þannig séð. Þarna
hefði ég viljað að það væri einhver í
mínu lífi sem hefði sagt mér hvað væri
að gerast, að líkaminn minn væri að
breytast vegna þess hvernig ég væri að
borða og ekki að hreyfa mig og að ég
þyrfti þá að gera eitthvað til að koma
í veg fyrir að þetta myndi versna. En
svo er líka bara allt í lagi að vera með
slit. Við erum öll gullfalleg eins og við
erum, nákvæmlega núna. Fögnum
fjölbreytileikanum því það er hann
sem gefur lífinu lit,“ segir hún.
Í mörg ár reyndi Sveindís að fela slitin,
klæddist síðum peysum og fékk sér
húðflúr á höndina til að fela þau.
„Þetta var mitt litla leyndarmál sem
enginn mátti vita af, svo mikla minni-
máttarkennd var ég með gagnvart
þessu. Þessar rauðu línur stjórnuðu
lífinu mínu. Mér fannst ég aldrei nógu
falleg. Það var ekki fyrr en á þessu ári,
þegar ég er orðin 25 ára gömul, sem ég
fór að elska sjálfa mig. Mig langar að
tala um þetta því það eru svo ótrúlega
margir sem ganga í gegnum þetta.“
Síðastliðið ár hefur Sveindís verið í
einkaþjálfaranámi en hún efaðist lengi
um sjálfa sig. „Ég trúði því ekki að ég
gæti orðið einkaþjálfari. En svo sá ég
bara með tímanum að þetta væri akk-
úrat það sem ég ætti að gera. Síðasta
ár hefur verið mikil sjálfskoðun fyrir
mig. Ég er farin að hugleiða, sem mér
finnst nauðsynlegt. Ég vakna öðruvísi
því ég hugleiði á morgnanna. Þetta er
bara orkan okkar og við þurfum að
hugsa vel um hana.“
Í dag vill Sveindís vera fyrirmynd fyrir
aðra. „Við þurfum bara að tala um
þetta. Við þurfum að tala um að það
sé allt í lagi að vera eins og maður
er. Það er enginn fullkominn. Þegar
við sættum okkur við það verður lífið
auðveldara.“
solborg@vf.isÍ dag elskar Sveindís slitin sín.