Víkurfréttir


Víkurfréttir - 03.08.2017, Page 22

Víkurfréttir - 03.08.2017, Page 22
22 fimmtudagur 3. ágúst 2017VÍKURFRÉTTIR Íþróttir á Suðurnesjum Baldursgötu 14, Reykjanesbæ Opið mán-fös 13-18 Sími: 421 1200 STYRKTU MATARSJÓÐ FJÖLSKYLDUHJÁLPAR ÍSLANDS 2.900 - 4.900kr Bolir, 6 litir 4.900kr Stretch gallabuxur 990kr Leggings NÝTT & NOTAÐ ÓTRÚLEGASTA BÚÐIN Í BÆNUM! C M Y CM MY CY CMY K Víkurfréttir 99x140mm 03.pdf 1 19/07/17 13:55 Samúel í draumaleik gegn Man. Utd. ●● Dekkaði●Lukako●í●leik●gegn●Valerenga●í●Osló „Leikurinn gegn Manchester United var mjög sérstök stund fyrir mig og okkur alla í liðinu. Að spila gegn frægasta knattspyrnuliði í heimi og heimsklassa leikmönnum er ekki eitthvað sem gerist á hverjum degi,“ sagði keflvíski atvinnuknatt- spyrnumaðurinn Samúel Friðjóns- son sem fékk það hlutverk að gæta eins þekktasta knattspyrnumanns í heimi, Lukako hjá Man. Utd. í leik liðanna á Ulleval leikvanginum í Osló í vikunni. Stórliðið vann með þremur mörkum gegn engu. Keflvíkingurinn fékk það hlutverk að gæta Lukako. „Þetta var tær snilld og tilfinningin mögnuð þegar maður var að ganga inn í klefa vitandi að maður var að fara að kljást við mörg af stærstu nöfnunum í enska boltanum. En þegar maður fer svo inn á völlinn verður maður að fókusera eins og í hverjum öðrum leik, ekki hugsa neitt öðruvísi. Ef maður er ekki með topp einbeitingu er manni refsað, ekki síst gegn svona leikmönnum,“ segir Samúel um þennan draumaleik sem hann lék en var hluti af undirbúnings- leikjaplani Manchester United. Það var auðvitað fullt á leikvanginum í Osló og Samúel segir að stemmningin hafi verið mögnuð. En þarna varstu kominn meðal stór- stjarnanna. Það hefur verið gaman? „Þetta var auðvitað skemmtilegt, að taka í höndina á Mourinho (þjálfara Man.Utd.) og leikmönnum liðsins og spila fyrir framan 30 þúsund manns. Það hafa verið að meðaltali um 10 til 13 þúsund á leikjunum okkar, svo þetta var aðeins öðruvísi og magnaðri upplifun,“ segir Samúel sem fékk það verkefni að gæta nýja framherja Man. Utd. Lukako. „Já, ég var að dekka Lu- kako og það gekk mjög vel en hann er frábær leikmaður og ég held að hann eigi eftir að gera góða hluti fyrir félag- ið. Annars fannst mér Marital standa sig best hjá Man. Utd. Hann er ótrú- legur leikmaður.“ Keflvíkingurinn kom til liðsins fyrr í sumar og er í skýjunum með allt hjá norska liðinu og að sér líði vel í Osló. „Okkur hefur gengið vel á tímabilinu en verið óheppnir á köflum. Núna eigum við leik til góða og getum komið okkur upp í 4. sæti. Markmiðið okkar er að komast í Evrópudeildina og það er alveg raunhæft. Ég hef leikið tvo síðustu leiki og það gengur allt ótrúlega vel eftir langan og erfiðan tíma í meiðslum.“ Hvernig er þetta hjá norska liðinu í samanburði við þar sem þú varst síðast, hjá Reading í Englandi? „Reading er mun stærra félag og sviðið í Englandi auðvitað stærra. Getumunurinn þó ekki svo mikill. En það er jú draumur flestra að spila í Englandi.“ Og þinn líka auðvitað? „Maður sér eftir svona leik að það er allt hægt. Mitt persónulega mark- mið er að spila í einhverjum af fimm stærstu deildunum í heimi. Englandi eða La liga á Spáni sem ég er mjög spenntur fyrir. Ég veit að það mun ræt- ast en til þess þarf ég að halda áfram á sömu braut og gefa enn meira í,“ segir Keflvíkingurinn ungi sem er ekki sá fyrsti hjá Valgerenga því Elías Már Ómarsson lék þar ekki alls fyrir löngu. Norðurlandamót U17 í fullum gangi á Suðurnesjum Norðurlandamót U17 drengja í knattspyrnu stendur nú yfir en annar riðill- inn er leikinn á Suðurnesjum. Riðillinn stendur til 5. ágúst næstkomandi en átta lið munu taka þátt á mótinu. Á Suðurnesjum er riðill A spilaður þar sem Ísland, Pólland, Norður-Írland og Noregur leika, en frítt er á alla leiki. Pólland lék gegn Noregi síðasta sunnudag en leikurinn endaði 0:1 fyrir Noregi. Þá keppti Ísland við Norður-Írland og sigruðu Íslendingar örugglega 3:0. Báðir leikirnir fóru fram á Sandgerðisvelli. Næstu leikir fóru svo fram á þriðju- dag á Vogabæjarvelli. Pólland lék gegn Norður-Írlandi þar sem Pól- verjar unnu nokkuð sannfærandi, 4:1. Þá mættust Ísland og Noregur en sá leikur endaði 1:1. Ísland vann svo vítaspyrnukeppnina í lok leiks, 6:5, en hafni liðin með jafn mörg stig í riðlinum verður Ísland ofar vegna sig- ursins í vítaspyrnukeppninni. Suður- nesjamaðurinn Davíð Snær Jóhanns- son leikur með liði Íslands en hann stóð sig afar vel í leiknum. Síðustu leikirnir fara svo fram í dag, fimmtudag. Njarðvíkingar sigur- sælir á „Hvítur á leik“ ■ Góður árangur náðist hjá júdódeild Njarðvíkur/Sleipni um helgina á bardagamótinu „Hvítur á leik“ en mótið fór fram í fjórða sinn. Keppt var í brasil- ísku jiu-jitsu í galla þar sem tæp- lega 50 keppendur voru skráðir til leiks frá fimm félögum. Sex keppendur frá Júdódeild Njarðvíkur/Sleipni fengu sjö verð- laun. Í -88 kg flokki varð Hrafn- kell Þór í þriðja sæti og Einar Örlygsson varð annar. Ali Raza varð þriðji í +100 kg flokki sem og opnum flokki karla en í þeim flokki sigraði Davíð James Ro- bertsson. Rihard Jansons sigraði -94kg flokkinn og gerði ser lítið fyrir og vann einnig opinn flokk karla. Því varð uppskeran eitt silfur, þrjú brons og þrjú gull. Mótið er hugsað fyrir byrjendur og fór fram í húsakynnum VBC í Kópavogi. Óbreytt á toppnum í Inkasso eftir fjörugt jafntefli ■ Keflavík og Fylkir mættust í toppslag Inkassodeildarinnar á Ís- landsmótinu í knattspyrnu síðasta fimmtudag. Jafntefli var niður- staðan í miklum markaleik, 3:3. Staðan eftir leikinn er því óbreytt á toppi deildarinnar þar sem Fylkir leiðir með tveggja stiga forystu. Heilladísirnar hafa yfirgefið Grindavík ■ Svo virðist sem heilladísirnar hafi yfirgefið Grindavík, sem tapaði þriðja leik sínum í röð á mánudaginn í Pepsi-deild karla á Íslandsmótinu í knattspyrnu. Grindvíkingar tóku á móti Víkingi Reykjavík. Gestirnir fóru með 1:2 sigur af hólmi. Rene Joensen til Grindvíkinga Færeyski landsliðsmaðurinn Rene Joensen staðfestir við færeyska fjöl- miðla að hann hafi skrifað undir samning við Grindavík. Samningur- inn er út tímabilið. Fotbolti.net greinir frá þessu. Rene, sem er 24 ára, getur spilað á báðum köntunum, í bakverði og á miðjunni, en hann var í yngri liðum Bröndby á sínum tíma og lék síðan með HB í heimalandinu 2014 og 2015. Undanfarin tvö ár hefur hann verið hjá Vendsyssel í dönsku B-deildinni. Rene hefur leikið með öllum yngri landsliðum Færeyja en hann tíu A-landsleiki að baki. Hann kom inn á sem varamaður þegar Færeyingar töpuðu gegn Sviss í undankeppni HM í síðasta mánuði. Grindvíkingar hafa styrkt leikmanna- hópinn í júlí en auk Rene hafa þeir Simon Smidt og Edu Cruz komið til félagsins. Víðismenn lögðu Fjarðabyggð ■ Víðismenn lögðu Fjarðabyggð með 3 mörkum gegn 2 þegar liðin mættust í 14. umferð Íslandsmóts- ins í knattspyrnu karla í 2. deild. Leikurinn fór fram á Eskjuvelli austur á fjörðum. Víðismenn eru í 4. sæti 2. deildar með 22 stig, 8 stigum frá toppsætinu. Suðurnesjatöp í 3. deildinni ■ Suðurnesjaliðin í 3. deildinni á Ís- landsmótinu í knattspyrnu töpuðu bæði í síðustu umferð. Reynismenn úr Sandgerði fóru norður á Dalvík þar sem þeir hittu fyrir nafna sína í Dalvík/Reyni. Viðureignin endaði með 3:0 sigri norðanmanna. Á Vogabæjarvelli í Vogum mættust heimamenn í Þrótti og Kári. Þróttur tapaði leiknum með 1:2. Þess má geta að heimamenn höfðu sett leik- inn upp sem ágóðaleik til styrktar Héðins Mána, sem er ungur Voga- maður sem berst við krabbamein í höfði. Allir sem komu að leiknum tóku þátt í styrktarsöfnunni og borg- uðu leikmennirnir sig inn á leikinn. Hægt er að styrkja Héðin Mána með frjálsum framlögum á kennitölu: 150558-3019 og reikningsnúmer: 0142-05-006602 Njarðvík á toppnum í 2. deild ■ Njarðvíkingar eru á toppi 2. deildar Íslandsmótsins í knatt- spyrnu karla þegar 14 umferðir hafa verið leiknar. Njarðvíkingar eru með 30 stig á toppnum eins og Magni. Baráttan um toppsætið gæti ekki verið meira spennandi en eitt mark tryggir Njarðvík toppinn. Njarðvíkingar unnu Tindastól í síðasta leik sínum, sem fram fór á Njarðtaksvellinum í Njarðvík á föstudaginn síðastliðinn. Úrslit leiks- ins voru 2:0 sigur Njarðvíkur. Alexander heim til Njarðvíkur Alexander Magnússon mun aftur spila með liði Njarðvíkur, en hann gekk til liðs Keflavíkur sumarið 2015. Alexander er uppalinn í Njarðvík og spilaði þar til 2009, en þá fór hann til Grindavíkur. Undanfarin ár hefur hann lítið spilað vegna meiðsla. Hann spilaði nokkra leiki með Þrótti Vogum síðasta sumar, en hann hefur ekkert spilað þetta sumarið. Hann mun nú klára tímabilið með Njarð- vík í 2. deild karla. Knattspyrnusamantekt Frábært að fara holu í höggi í fyrsta sigrinum -segir Karen Guðnadóttir úr Golfklúbbi Suðurnesja sem vann Hvaleyrarbikarinn á Eimskipsmótaröðinni. „Það var ólýsanlegt að sjá boltann fara í holu og ég var lengi að melta það en átti hins vegar mjög auðvelt með að gleyma því og halda áfram hringinn,“ sagði Kar- en Guðnadóttir, afrek- skylfingur úr Golfkúbbi Suðurnesja, en hún vann sinn fyrsta sigur á Eimskipsmóta- röðinni í Borgunarmótinu á Hval- eyrarvelli í Hafnarfirði um síðustu helgi. Karen var sex höggum á eftir hinni ungu og bráðefnilegu Kingu Korpak þegar einn hringur af þremur var eftir. Kinga náði sér ekki á strik í lokahringnum og endaði í 3. sæti en Karen hins vegar var í stuði og sigraði á mótinu. Karen náði draumahögginu í fyrsta sinn á ferlinum þegar hún fór holu í höggi á 6. braut. Hún hitti boltann vel með 8-járni og hann endaði í holunni. Karen var í Danmörku frá ágúst í fyrra fram í júní á þessu ári. Hún mun taka þátt í næta móti á Eimskipsmóta- röðinni í Grafarholti aðra helgina í ágúst en fara svo aftur utan. „Ég er mjög ánægð með að hafa unnið Hvaleyrarbikarinn sem er flott mót. Maður fær nafnið sitt á Hvaleyrar- bikarinn en það er ekki venja á stiga- mótunum á Eimskipsmótaröðinni. Ég er þokkalega sátt með sumarið. Ég hef náð að leika nokkuð stöðugt golf. Helstu vonbrigðin voru í Eyjum á Íslandsmótinu í holukeppni þar sem ég komst ekki upp úr riðlinum. Nú er bara að fylgja eftir sigri með góðri frammistöðu í Grafarholtinu,“ sagði Karen sem varð í 4. sæti á Íslandsmót- inu í höggleik á Hvaleyrinni, helgina á undan Borgunarbikarmótinu.

x

Víkurfréttir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.