Víkurfréttir - 21.09.2017, Page 1
S T Æ R S T A F R É T T A - O G A U G L Ý S I N G A B L A Ð I Ð Á S U Ð U R N E S J U M
• fimmtudagur 21. september 2017 • 37. tölublað • 38. árgangur
Eimskip | Korngörðum 2 | 104 Reykjavík | Sími 525 7000 | www.ebox.is
auðveldar smásendingar
eBOX flytur minni sendingar frá
Evrópu til Íslands. Sendingin þín
kemur heim með fyrstu ferð.
Auðvelt og fljótlegt.
Í STÓRUM SKIPUM RÚMAST LÍKA
SMÆRRI SENDINGAR
einföld reiknivél
á ebox.is
F
ÍT
O
N
/
S
ÍA
Kynslóð
heiðruð
Á RÚM Í HVERJU
EINASTA LANDI
Í EVRÓPU Sport12
Kóngar í Suðurnesjamagasíni
fimmtudagskvöld kl. 20 og 22 á Hringbraut og vf.is
Kaflaskil í endur-
skipulagningu fjár-
mála Reykjanesbæjar
fimmtudagskvöld kl. 20 og 22
á Hringbraut og vf.is
■ S r. Fr i t z M á r
Jörgenson Bernd-
sen hefur verið val-
inn af kjörnefnd
Keflavíkurpresta-
kalls til þjónustu við
prestakallið. Biskup
mun skipa Fritz Má í embættið frá 1.
október til næstu fimm ára.
Sóknarprestur Keflavíkurkirkju er sr.
Erla Guðmundsdóttir en þrír sóttust
eftir embættinu.
■ Knattspyrnudeild Keflavíkur
óskar eftir því við íþrótta- og tóm-
stundaráð Reykjanesbæjar að horft
verði til uppbyggingar á æfingasvæði
við Reykjaneshöll og litið verði til
þess í fjárhagsáætlunarvinnu fyrir
árið 2018 að þar komi nýr gervigras-
völlur í fullri stærð.
Íþrótta- og tómstundaráð er meðvitað
um að æfingasvæði við Iðavelli er
víkjandi á skipulagi og að æfingatímar
á besta tíma í Reykjaneshöll eru full-
nýttir. Ráðið tekur undir beiðni knatt-
spyrnudeildarinnar og vonar að hægt
sé að tryggja fjármagn til hönnunar
og undirbúnings á þessu verkefni
sem muni nýtast báðum félögunum í
Reykjanesbæ til framtíðar.
■ Ólafur Eyjólfsson, formaður Ungmennafélags Njarð-
víkur, hefur sent bæjaryfirvöldum áskorun um að nýtt
íþróttahús rísi í Dalshverfi í Innri Njarðvík. Hann bendir
á í áskoruninni að íþróttahúsið í Njarðvík sé fyrir löngu
sprungið.
Hann skorar á bæjaryfirvöld að byggt verði fullvaxið
íþróttahús sem tengist við íþróttahús nýja skólans í Dals-
hverfi og að aðalsvæði UMFN verði staðsett við nýja skóla-
svæðið í Dalshverfi.
Íþrótta- og tómstundaráð Reykjanesbæjar tók við áskorun-
inni sem síðan mun hafa sína leið í bæjarkerfinu.
Nýjasti skólinn í Reykjanesbæ mun rísa í Dalshverfi í
Innri Njarðvík. Niðurstaða undirbúningshóps sem skilaði
skýrslu í júní 2016 var að byggður verði heildstæður skóli,
leikskóli, grunnskóli, tónlistarskóli, frístundaskóli og fé-
lagsmiðstöð. Skólinn sem staðsettur er í austasta hluta
bæjarins á jafnframt að geta þjónað grenndarsamfélaginu
sem eins konar menningarmiðstöð.
Skólinn á að bera þess merki að horft sé til framtíðar
um leið og kröfum samtímans er mætt. Megin einkenni
skólans verður sveigjanleiki, sveigjanleiki í kennsluháttum,
í nýtingu rýmis, í skipulagi vinnudags og skilum á milli
skólastiga.
●● Íþróttahúsið●í●Njarðvík●sprungið●og●formaðurinn●vill●„nýja●ljónagryfju“:
●● Þriggja●ára●samningavinnu●við●kröfuhafa●lokið:
Aðalsvæði UMFN verði í Dalshverfi
Sr. Fritz Már valinn
prestur í Kefla-
víkurprestakalli
Gervigras ofan
Reykjaneshallar?
■ Bæjarráð Grindavíkur samþykkti
að hafa tjaldstæði Grindavíkurbæjar
opið út nóvember og lagði til við
bæjarstjórn að samþykkja viðauka
við fjárhagsáætlun ársins 2017 að
upphæð 2.050.000 kr. sem fjármagn-
aður verður með hækkun tekna á
tjaldstæðinu.
Tjaldstæðið hefur notið mikilla vin-
sælda í sumar og talið er að met verði
sett í aðsókn á þessu ári. Ferðamenn
eru farnir að lengja tíma sinn á ferða-
lögum með tjöld og í húsbílum hvort
sem það er að vori til eða hausti.
Tjaldstæðið opið
út nóvember
Réttir í Grindavík
Víkurfréttamynd: Rannveig Jónína Guðmundsdóttir
■ „Loksins, loksins“, sögðu bæjar-
fulltrúar Reykjanesbæjar á bæjar-
stjórnarfundi í gær en þá samþykkti
bæjarstjórn samhljóða aðgerðir
vegna endurskipulagningar efna-
hags bæjarins og Reykjaneshafnar.
Hér er um að ræða endalokin á vinnu
við endurreisn fjármála Reykjanes-
bæjar sem staðið hafa yfir með við-
ræðum við kröfuhafa undanfarin
þrjú ár.
„Við erum að tala um kaflaskil í
endurskipulagningu fjármála Reykja-
nesbæjar. Áður hafði verið lögð
fram aðgerðaráætlun og nú er búið
að tryggja sátt um forsendur hennar.
Síðan verður það verkefni komandi
bæjarstjórna að fylgja henni og tryggja
þannig að bæjarfélagið sé undir lög-
boðnum skuldaviðmiðum,“ sagði
Kjartan Már Kjartansson, bæjarstjóri.
Heildarskuldir Reykjanesbæjar eru
um 44 milljarðar og verkefnið var
að lækka þær um rúma 6 milljarða.
Það er gert með ýmsum hætti, m.a.
með eftirgjöf á vöxtum og tilfærslu
í félagslegu húsnæðiskerfi bæjarins.
Reykjanesbær hefur fengið lánslof-
orð frá Lánasjóði sveitarfélaga að fjár-
hæð um 3,6 milljarða króna sem gerir
bæjarfélaginu kleift að endurfjár-
magna m.a. skuldir Reykjaneshafnar.
Lánsloforðinu er sett það skilyrði að
endurskipulagning fjárhags samstæðu
Reykjanesbæjar leiði til þess að mark-
miðum aðlögunaráætlunar fyrir árin
2017-2022, sem bæjarstjórn Reykja-
nesbæjar samþykkti þann 18. apríl
2017, verði náð.
Þá verður Eignarhaldsfélaginu Fast-
eign skipt upp í tvö félög, annars
vegar félag sem heldur utan um eignir
sem tengjast grunnþjónustu sveitar-
félagsins (EFF1) og hins vegar félag
sem heldur utan um eignir sem ekki
tengjast grunnþjónustu sveitarfélags-
ins (EFF2). Skuldir félaganna verða
endurfjármagnaðar og gerðir við þau
nýir leigusamningar til langs tíma.
Reykjanesbær mun nýta sér lánafyrir-
greiðslu frá Lánasjóði sveitarfélaga
og taka lán sem verður endurlánað
til Reykjaneshafnar. Reykjaneshöfn
mun nýta lánið til þess greiða upp
hluta skulda hafnarinnar. Nú liggur
fyrir vilji mikils meirihluta kröfuhafa
Reykjaneshafnar fyrir því að fallast
á uppgreiðslu og skilmálabreytingar
sem lagðar hafa verið til.
Með þessum aðgerðum, og ýmsum
öðrum, gerir aðlögunaráætlun
Reykjanesbæjar ráð fyrir að sveitar-
félagið nái undir lögboðið 150%
skuldaviðmið fyrir árslok 2022. Það
veltur þó á því að helstu forsendur
aðlögunaráætlunar gangi eftir og að
mikils aðhalds verði gætt í rekstri
Reykjanesbæjar næstu ár.