Víkurfréttir


Víkurfréttir - 21.09.2017, Blaðsíða 19

Víkurfréttir - 21.09.2017, Blaðsíða 19
Íþróttir á Suðurnesjum fimmtudagur 21. september 2017 fimmtudagur 21. september 2017 Knattspyrnudeild Keflavíkur hefur sett upp svokallaðan Heiðursleik fyrir kynslóð leikmanna sem fæddir eru á árunum 1977 til 1983 og hafa skilið eftir sig stór spor bæði í sögu keflvískrar knattspyrnu, sem og í hjörtum stuðn- ingsmanna á undanförnum áratugum. Aldursforsetinn, Jóhann Birnir Guðmundsson, lék sinn fyrsta leik árið 1994, eða fyrir tuttugu og þremur árum. Á árunum sem fylgdu týndust hinir smátt og smátt inn í liðið og eru síðan orðnir þaulkunnugir öllum áhangendum, eftir margra ára framlag í þágu félagsins. Sjaldgæft er að upp komi jafn stór hópur svo metnaðarfullra leikmanna á jafn litlu aldursbili, sem fær tæki- færi í meistaraflokki á unga aldri, auk þess að endast jafn lengi í boltanum og raun ber vitni. Hópurinn fór í gegnum súrt og sætt á sögulegu tíma- bili sem innihélt meðal annars þrjá bikarmeistaratitla, spennuþrungna baráttu um Íslandsmeistaratitil, fall um deild, upprisu og nokkur Evrópu- ævintýri. Hver einasti leikmannanna á leiki með yngri landsliðum Íslands og sex af þeim ellefu sem heiðraðir verða, náðu þeim árangri að leika með A-landsliðinu, auk þess sem níu þeirra léku á einhverjum tímapunkti í atvinnumennsku erlendis. Jóhann Birnir spilaði sinn fyrsta leik árið 1994, þá 16 ára gamall undir stjórn Péturs Péturssonar. Árið eftir fékk Haukur Ingi sitt fyrsta tæki- færi, stuttu fyrir 17 ára afmælisdag sinn, en þá voru Þorsteinn Bjarnason og Þórir Sigfússon við stjórnvölinn. Guðmundur Steinarsson var 17 ára og Þórarinn Kristjánsson aðeins 15 ára þegar þeir fengu sín fyrstu tækifæri, árið 1996, undir stjórn Kjartans Más- sonar. Magnús Sverrir Þorsteinsson var 17 ára þegar hann fór fyrst inn á völl í meistaraflokksbúningi en þá voru Gunnar Oddsson og Sigurður Björgvinsson þjálfarar. Haraldur Guðmundsson kom svo á átjánda ári inn í sinn fyrsta leik á sama sumri en á þeim tímapunkti var Kjartan Más- son tekinn við liðinu. Hólmar Örn Rúnarsson bættist svo við með sinn fyrsta leik árið 2000, þá 19 ára, þegar Páll Guðlaugsson þjálfaði. Leiktíma- bilið 2002 komu svo þeir Jónas Guðni Sævarsson, Hörður Sveinsson og Guðjón Árni Antoníusson inn í sína fyrstu leiki, allir 19 ára, auk Ómars Jóhannssonar sem þá setti upp mark- mannshanskana, rétt rúmlega tví- tugur. Kjartan Másson var þá þjálfari liðsins. Allir eiga leikmennirnir það sam- eiginlegt að hafa farið og reynt fyrir sér annars staðar, erlendis sem innanlands en eins hafa þeir líka allir snúið heim til félagsins sem ól þá upp og gaf þeim sitt fyrsta tæki- færi. Níu leikmannanna hafa leikið fleiri en tíu tímabil með félaginu og Magnús Þorsteinsson, allra flest eða hvorki fleiri né færri en sautján leiktíðir. Allir leikmennirnir léku öll yngri flokka ár sín með Kefla- vík með tilheyrandi boltastráka- og stuðningsmannahlutverkum á leikjum meistaraflokks, utan Óm- ars, sem fór til Svíþjóðar á unglings- aldri og Guðjóns, sem er uppalinn í Garðinum. Leikmennirnir, sem sumir leika enn með liðinu, munu spila gegn Úrvalsliði Baldurs Sigurðssonar á Nettóvellinum og hefst leikurinn kl. 18, sunnudaginn 24. september. Tekið verður við frjálsum fram- lögum á vellinum og rennur af- rakstur þeirrar söfnunar til kaupa á æfingabúnaði fyrir yngri iðkendur félagsins. Mikið verður um dýrðir þennan dag, þar sem lokahóf yngri flokka félagsins fer fram fyrr um daginn, auk þess sem Keflvíkingar fagna um þessar mundir sæti kar- laliðsins í Pepsi-deildinni árið 2018. Það er Knattspyrnudeild Kefla- víkur hjartans mál að sem flestir áhorfendur mæti á völlinn og þakki þessum leikmönnum fyrir áralanga samveru á Keflavíkurvelli og leggi um leið framtíðinni lið með því að styrkja yngri flokka starf félagsins með frjálsu framlagi. Með þeim sem á að heiðra í liði spila nokkrar goðsagnir úr keflvískri knatt- spyrnusögu, sem flestir voru sam- herjar þeirra á árum áður, undir stjórn Kjartans Mássonar og Sigurðar Björgvinssonar. Mótherjarnir, Úr- valslið Baldurs Sigurðssonar verður skipað vel völdum leynigestum úr ýmsum áttum. Bikarinn á loft í Njarðvík ■ Njarðvíkingar fengu afhentan Íslandsbikarinn í 2. deild karla í leikslok um síðastliðna helgi. Njarðvík lék gegn KV á heima- velli og urðu lokaniðurstöður leiksins 3-1 fyrir Njarðvík. Mörk Njarðvíkur skoruðu Ken- neth Hogg á 52. mínútu, Arnór Björnsson á 81. mínútu og gest- irnir skoruðu sjálfsmark á 58. mínútu. Keflavík í góðri stöðu ■ Keflavík sigraði Fram 1-0 á heimavelli síðastliðinn laugar- dag í Inkasso-deild karla en sigurinn dugði ekki til að Kefla- vík fengi afhentan Íslandsbikar- inn. Mark Keflavíkur skoraði Adam Árni Róbertsson á 4. mínútu. Keflavík verður að sigra næsta leik gegn HK í Kópavogi til þess að þurfa ekki að treysta á úrslit í leik Fylkis og ÍR til að verða Íslandsmeistarar í 1. deild- inni. Andri Rúnar skorar enn ■ Grindvíkingar spiluðu tvo leiki í síðustu viku í Pepsi-deild karla. Fyrri leikur liðsins var á útivelli gegn ÍBV og endaði leikurinn með 2-1 sigri ÍBV. Andri Rúnar skoraði mark Grindvíkinga á 75. mínútu og setti smá spennu í leikinn en þeim tókst ekki að jafna leikinn þrátt fyrir nokkur góð mark- tækifæri. Grindavík átti einnig heima- leik síðastliðinn sunnudag og var Andri Rúnar enn og aftur á skotskónum. Breiðablik komu í heimsókn til Grindavíkur og voru samtals sjö mörk skoruð í leiknum. Mörk Grindavíkur skor- uðu Gunnar Þorsteinsson á 15. mínútu, Andri Rúnar Bjarnason skoraði tvö mörk á 30. og 43. mín- útu leiksins og lokamark Grind- víkinga var sjálfsmark gestanna. Andri Rúnar er núna aðeins marki frá markameti deildarinnar þegar tveir leikir eru eftir í Pepsi-deild karla. Stórt tap Víðismanna ■ Víðir tapaði 5-1 fyrir Aftur- eldingu í 2. deild karla. Mark Víðis skoraði Patrik Snær Atla- son á 58. mínútu. Víðir á því ekki von um að leika í Inkasso-deild- inni að ári eftir tapið og leika því áfram í 2. deild. Stórsigur Þróttara - Reynir Sandgerði niður í 4. deild ■ Þróttur Vogum og Reynir Sandgerði áttust við í lokaleik 3. deild karla á Vogabæjarvelli síðastliðinn laugardag. Loka- tölur leiksins voru 5-0 í sigri heimamanna. Mörk Þróttara skoruðu Marteinn Pétur Urban- cic á 4. mínútu, Shane Haley á 11. mínútu, Garðar Benedikts- son á 72. mínútu, Tómas Ingi Urbanic á 88. mínútu og Anton Ingi Sigurðarson á 90. mínútu. Þróttur endaði í öðru sæti 3. deildarinnar og spila því í fyrsta sinn í 2. deild í sögu félagsins. Reynir Sandgerði endaði í 9. og næst síðasta sæti deildarinnar og eru því fallnir úr 3. deildinni og leika í 4. deildinni á næsta ári. Knattspyrnusamantekt Kynslóð heiðruð ■ Keflvíkingar heiðra ellefu knattspyrnumenn sem hafa lagt skóna á hilluna Leikmennirnir sem á að heiðra að þessu sinni eru (fæðingarár fylgir): Magnús Sverrir Þorsteinsson (1982). 277 leikir á 17 tímabilum. Bikarmeistari 2004, Bikarmeistari 2006, 7 Evrópuleikir. Lék á sínum tíma leiki með öllum yngri landsliðum Íslands. Guðmundur Steinarsson (1979). 275 leikir á 15 tíma- bilum. Bikarmeistari 1997, Bikarmeistari 2004, Bikar- meistari 2006, 10 Evrópuleikir, 3 A-landsleikir. Marka- hæsti leikmaður í sögu félagsins með 102 mörk í Íslands- móti, bikar- og Evrópukeppnum. Haraldur Freyr Guðmundsson (1981). 225 leikir á 14 tímabilum. Bikarmeistari 2004, 2 leikir með A-landsliði. Jóhann Birnir Guðmundsson (1977). 203 leikir á 14 tíma- bilum. Bikarmeistari 1997, 8 Evrópuleikir, 8 A landsleikir. Hólmar Örn Rúnarsson (1981). 225 leikir á 13 tíma- bilum. Bikarmeistari 2004, Bikarmeistari 2006. 8 Evrópu- leikir. Lék með U21 landsliði. Guðjón Árni Antoníusson (1983). 233 leikir á 13 tíma- bilum. Bikarmeistari 2004, Bikarmeistari 2006, 11 Evr- ópuleikir, 1 A-landsleikur. Þórarinn Brynjar Kristjánsson (1980). 189 leikir á 12 tímabilum. Fagnaði tvítugsafmæli sínu með 55 leiki og lék sinn síðasta leik aðeins 28 ára gamall. Bikarmeistari 1997, Bikarmeistari 2004, Bikarmeistari 2006, 6 Evrópu- leikir. Lék með öllum yngri landsliðum Íslands. Hörður Sveinsson (1983). 214 leikir á 12 tímabilum. Bikarmeistari 2004, 6 Evrópuleikir, Markahæsti leik- maður í Evrópukeppnum í sögu Keflavíkur með 5 mörk. Lék með U21 árs landsliði Íslands. Ómar Jóhannsson (1981). 195 leikir á 11 tímabilum. Bikarmeistari 2006, 9 Evrópuleikir, fjölmargir U21 lands- leikir. Jónas Guðni Sævarsson (1983). 143 leikir á 8 tíma- bilum. Bikarmeistari 2004, Bikarmeistari 2006. 10 Evr- ópuleikir, 7 A-landsleikir. Haukur Ingi Guðnason (1978). 94 leikir á 6 tímabilum, auk 16 leikja sem þjálfari. Bikarmeistari 1997, 4 Evrópu- leikir, 8 A-landsleikir. Jóhann Birnir Guðmundsson Magnús Sverrir Þorsteinsson Þórarinn Brynjar Kristjánsson Guðmundur Steinarsson Hörður Sveinsson Haraldur Freyr Guðmundsson Ómar Jóhannsson Hólmar Örn Rúnarsson Jónas Guðni Sævarsson Guðjón Árni Antoníusson Haukur Ingi Guðnason

x

Víkurfréttir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.