Víkurfréttir - 21.09.2017, Qupperneq 19
Íþróttir á Suðurnesjum fimmtudagur 21. september 2017
fimmtudagur 21. september 2017
Knattspyrnudeild Keflavíkur hefur sett upp svokallaðan Heiðursleik fyrir kynslóð leikmanna sem fæddir eru á
árunum 1977 til 1983 og hafa skilið eftir sig stór spor bæði í sögu keflvískrar knattspyrnu, sem og í hjörtum stuðn-
ingsmanna á undanförnum áratugum. Aldursforsetinn, Jóhann Birnir Guðmundsson, lék sinn fyrsta leik árið 1994,
eða fyrir tuttugu og þremur árum. Á árunum sem fylgdu týndust hinir smátt og smátt inn í liðið og eru síðan orðnir
þaulkunnugir öllum áhangendum, eftir margra ára framlag í þágu félagsins.
Sjaldgæft er að upp komi jafn stór
hópur svo metnaðarfullra leikmanna
á jafn litlu aldursbili, sem fær tæki-
færi í meistaraflokki á unga aldri, auk
þess að endast jafn lengi í boltanum
og raun ber vitni. Hópurinn fór í
gegnum súrt og sætt á sögulegu tíma-
bili sem innihélt meðal annars þrjá
bikarmeistaratitla, spennuþrungna
baráttu um Íslandsmeistaratitil, fall
um deild, upprisu og nokkur Evrópu-
ævintýri.
Hver einasti leikmannanna á leiki
með yngri landsliðum Íslands og sex
af þeim ellefu sem heiðraðir verða,
náðu þeim árangri að leika með
A-landsliðinu, auk þess sem níu
þeirra léku á einhverjum tímapunkti
í atvinnumennsku erlendis.
Jóhann Birnir spilaði sinn fyrsta leik
árið 1994, þá 16 ára gamall undir
stjórn Péturs Péturssonar. Árið eftir
fékk Haukur Ingi sitt fyrsta tæki-
færi, stuttu fyrir 17 ára afmælisdag
sinn, en þá voru Þorsteinn Bjarnason
og Þórir Sigfússon við stjórnvölinn.
Guðmundur Steinarsson var 17 ára og
Þórarinn Kristjánsson aðeins 15 ára
þegar þeir fengu sín fyrstu tækifæri,
árið 1996, undir stjórn Kjartans Más-
sonar. Magnús Sverrir Þorsteinsson
var 17 ára þegar hann fór fyrst inn
á völl í meistaraflokksbúningi en þá
voru Gunnar Oddsson og Sigurður
Björgvinsson þjálfarar. Haraldur
Guðmundsson kom svo á átjánda ári
inn í sinn fyrsta leik á sama sumri en
á þeim tímapunkti var Kjartan Más-
son tekinn við liðinu. Hólmar Örn
Rúnarsson bættist svo við með sinn
fyrsta leik árið 2000, þá 19 ára, þegar
Páll Guðlaugsson þjálfaði. Leiktíma-
bilið 2002 komu svo þeir Jónas Guðni
Sævarsson, Hörður Sveinsson og
Guðjón Árni Antoníusson inn í sína
fyrstu leiki, allir 19 ára, auk Ómars
Jóhannssonar sem þá setti upp mark-
mannshanskana, rétt rúmlega tví-
tugur. Kjartan Másson var þá þjálfari
liðsins.
Allir eiga leikmennirnir það sam-
eiginlegt að hafa farið og reynt
fyrir sér annars staðar, erlendis sem
innanlands en eins hafa þeir líka
allir snúið heim til félagsins sem ól
þá upp og gaf þeim sitt fyrsta tæki-
færi. Níu leikmannanna hafa leikið
fleiri en tíu tímabil með félaginu
og Magnús Þorsteinsson, allra flest
eða hvorki fleiri né færri en sautján
leiktíðir. Allir leikmennirnir léku
öll yngri flokka ár sín með Kefla-
vík með tilheyrandi boltastráka-
og stuðningsmannahlutverkum á
leikjum meistaraflokks, utan Óm-
ars, sem fór til Svíþjóðar á unglings-
aldri og Guðjóns, sem er uppalinn í
Garðinum.
Leikmennirnir, sem sumir leika
enn með liðinu, munu spila gegn
Úrvalsliði Baldurs Sigurðssonar á
Nettóvellinum og hefst leikurinn
kl. 18, sunnudaginn 24. september.
Tekið verður við frjálsum fram-
lögum á vellinum og rennur af-
rakstur þeirrar söfnunar til kaupa á
æfingabúnaði fyrir yngri iðkendur
félagsins. Mikið verður um dýrðir
þennan dag, þar sem lokahóf yngri
flokka félagsins fer fram fyrr um
daginn, auk þess sem Keflvíkingar
fagna um þessar mundir sæti kar-
laliðsins í Pepsi-deildinni árið 2018.
Það er Knattspyrnudeild Kefla-
víkur hjartans mál að sem flestir
áhorfendur mæti á völlinn og þakki
þessum leikmönnum fyrir áralanga
samveru á Keflavíkurvelli og leggi um
leið framtíðinni lið með því að styrkja
yngri flokka starf félagsins með frjálsu
framlagi.
Með þeim sem á að heiðra í liði spila
nokkrar goðsagnir úr keflvískri knatt-
spyrnusögu, sem flestir voru sam-
herjar þeirra á árum áður, undir
stjórn Kjartans Mássonar og Sigurðar
Björgvinssonar. Mótherjarnir, Úr-
valslið Baldurs Sigurðssonar verður
skipað vel völdum leynigestum úr
ýmsum áttum.
Bikarinn á loft í Njarðvík
■ Njarðvíkingar fengu afhentan
Íslandsbikarinn í 2. deild karla
í leikslok um síðastliðna helgi.
Njarðvík lék gegn KV á heima-
velli og urðu lokaniðurstöður
leiksins 3-1 fyrir Njarðvík.
Mörk Njarðvíkur skoruðu Ken-
neth Hogg á 52. mínútu, Arnór
Björnsson á 81. mínútu og gest-
irnir skoruðu sjálfsmark á 58.
mínútu.
Keflavík í góðri stöðu
■ Keflavík sigraði Fram 1-0 á
heimavelli síðastliðinn laugar-
dag í Inkasso-deild karla en
sigurinn dugði ekki til að Kefla-
vík fengi afhentan Íslandsbikar-
inn. Mark Keflavíkur skoraði
Adam Árni Róbertsson á 4.
mínútu. Keflavík verður að sigra
næsta leik gegn HK í Kópavogi
til þess að þurfa ekki að treysta
á úrslit í leik Fylkis og ÍR til að
verða Íslandsmeistarar í 1. deild-
inni.
Andri Rúnar skorar enn
■ Grindvíkingar spiluðu tvo
leiki í síðustu viku í Pepsi-deild
karla. Fyrri leikur liðsins var
á útivelli gegn ÍBV og endaði
leikurinn með 2-1 sigri ÍBV.
Andri Rúnar skoraði mark
Grindvíkinga á 75. mínútu og
setti smá spennu í leikinn en
þeim tókst ekki að jafna leikinn
þrátt fyrir nokkur góð mark-
tækifæri.
Grindavík átti einnig heima-
leik síðastliðinn sunnudag og
var Andri Rúnar enn og aftur á
skotskónum. Breiðablik komu í
heimsókn til Grindavíkur og
voru samtals sjö mörk skoruð í
leiknum. Mörk Grindavíkur skor-
uðu Gunnar Þorsteinsson á 15.
mínútu, Andri Rúnar Bjarnason
skoraði tvö mörk á 30. og 43. mín-
útu leiksins og lokamark Grind-
víkinga var sjálfsmark gestanna.
Andri Rúnar er núna aðeins marki
frá markameti deildarinnar þegar
tveir leikir eru eftir í Pepsi-deild
karla.
Stórt tap Víðismanna
■ Víðir tapaði 5-1 fyrir Aftur-
eldingu í 2. deild karla. Mark
Víðis skoraði Patrik Snær Atla-
son á 58. mínútu. Víðir á því ekki
von um að leika í Inkasso-deild-
inni að ári eftir tapið og leika því
áfram í 2. deild.
Stórsigur Þróttara - Reynir
Sandgerði niður í 4. deild
■ Þróttur Vogum og Reynir
Sandgerði áttust við í lokaleik
3. deild karla á Vogabæjarvelli
síðastliðinn laugardag. Loka-
tölur leiksins voru 5-0 í sigri
heimamanna. Mörk Þróttara
skoruðu Marteinn Pétur Urban-
cic á 4. mínútu, Shane Haley á
11. mínútu, Garðar Benedikts-
son á 72. mínútu, Tómas Ingi
Urbanic á 88. mínútu og Anton
Ingi Sigurðarson á 90. mínútu.
Þróttur endaði í öðru sæti 3.
deildarinnar og spila því í fyrsta
sinn í 2. deild í sögu félagsins.
Reynir Sandgerði endaði í 9. og
næst síðasta sæti deildarinnar og
eru því fallnir úr 3. deildinni og
leika í 4. deildinni á næsta ári.
Knattspyrnusamantekt
Kynslóð
heiðruð
■ Keflvíkingar heiðra ellefu
knattspyrnumenn sem hafa
lagt skóna á hilluna
Leikmennirnir sem á að heiðra að þessu sinni eru (fæðingarár fylgir):
Magnús Sverrir Þorsteinsson (1982). 277 leikir á 17
tímabilum. Bikarmeistari 2004, Bikarmeistari 2006, 7
Evrópuleikir. Lék á sínum tíma leiki með öllum yngri
landsliðum Íslands.
Guðmundur Steinarsson (1979). 275 leikir á 15 tíma-
bilum. Bikarmeistari 1997, Bikarmeistari 2004, Bikar-
meistari 2006, 10 Evrópuleikir, 3 A-landsleikir. Marka-
hæsti leikmaður í sögu félagsins með 102 mörk í Íslands-
móti, bikar- og Evrópukeppnum.
Haraldur Freyr Guðmundsson (1981). 225 leikir á 14
tímabilum. Bikarmeistari 2004, 2 leikir með A-landsliði.
Jóhann Birnir Guðmundsson (1977). 203 leikir á 14 tíma-
bilum. Bikarmeistari 1997, 8 Evrópuleikir, 8 A landsleikir.
Hólmar Örn Rúnarsson (1981). 225 leikir á 13 tíma-
bilum. Bikarmeistari 2004, Bikarmeistari 2006. 8 Evrópu-
leikir. Lék með U21 landsliði.
Guðjón Árni Antoníusson (1983). 233 leikir á 13 tíma-
bilum. Bikarmeistari 2004, Bikarmeistari 2006, 11 Evr-
ópuleikir, 1 A-landsleikur.
Þórarinn Brynjar Kristjánsson (1980). 189 leikir á 12
tímabilum. Fagnaði tvítugsafmæli sínu með 55 leiki og
lék sinn síðasta leik aðeins 28 ára gamall. Bikarmeistari
1997, Bikarmeistari 2004, Bikarmeistari 2006, 6 Evrópu-
leikir. Lék með öllum yngri landsliðum Íslands.
Hörður Sveinsson (1983). 214 leikir á 12 tímabilum.
Bikarmeistari 2004, 6 Evrópuleikir, Markahæsti leik-
maður í Evrópukeppnum í sögu Keflavíkur með 5 mörk.
Lék með U21 árs landsliði Íslands.
Ómar Jóhannsson (1981). 195 leikir á 11 tímabilum.
Bikarmeistari 2006, 9 Evrópuleikir, fjölmargir U21 lands-
leikir.
Jónas Guðni Sævarsson (1983). 143 leikir á 8 tíma-
bilum. Bikarmeistari 2004, Bikarmeistari 2006. 10 Evr-
ópuleikir, 7 A-landsleikir.
Haukur Ingi Guðnason (1978). 94 leikir á 6 tímabilum,
auk 16 leikja sem þjálfari. Bikarmeistari 1997, 4 Evrópu-
leikir, 8 A-landsleikir.
Jóhann Birnir Guðmundsson
Magnús Sverrir
Þorsteinsson
Þórarinn Brynjar
Kristjánsson
Guðmundur
Steinarsson
Hörður
Sveinsson
Haraldur Freyr
Guðmundsson
Ómar
Jóhannsson
Hólmar Örn
Rúnarsson
Jónas Guðni
Sævarsson
Guðjón Árni
Antoníusson
Haukur Ingi
Guðnason