Víkurfréttir


Víkurfréttir - 21.09.2017, Blaðsíða 6

Víkurfréttir - 21.09.2017, Blaðsíða 6
6 fimmtudagur 21. september 2017VÍKURFRÉTTIR Þátttakendur lenda strax í happdrættispotti Verkalýðs- og sjómannafélag Keflavíkur og nágrennis Kæru félagsmenn Tökum vel í kjarakönnun VSFK Búið er að opna fyrir umsóknir um dvöl í íbúð Verkalýðs- félags Grindavíkur á Tenerife um páskana 27. mars 2018 til 10. apríl 2018. Umsóknarfrestur er til 9. október. Leigan er 80 þúsund og 36 punktar. Hægt er að sækja um á sjóðsfélagavef félagsins sem er að finna inná www.VLFGRV.is undir orlofshús PÁSKAR 2018 UMSÓKN UM DVÖL Í ORLOFSHÚS ■ Dagný Maggýjar hitti Sólmund einn sólríkan sunnudag til þess að ræða tónlistina og draumana sem hafa verið lengi í fæðingu. „Þetta er búin að vera ansi löng fæð- ing,” segir Sólmundur sposkur á svip. „Ég var kominn með efni í plötu í kringum 2005 en var ekki að gera neitt með það. Ég held það séu örugg- lega komin meira en þrjú ár síðan ég gerði fyrsta „demó-ið“ með tveimur góðum vinum, Eiríki Hilmissyni sem spilaði með mér með Geirmundi Val- týssyni á sínum tíma, og svo Arnóri Vilbergssyni. Svo fengum við Þor- vald Halldórsson slagverksleikara með okkur og byrjuðum að prófa að útsetja og æfa. Pælingin var að taka efnið að mestu upp „live" og hafa vinnsluna eins einfalda og ódýra og hægt væri. Við ætluðum að byrja að taka upp í vor en þá var Eiki bundinn í öðru og fékk ég þá Davíð Sigurgeirs- son gítarsnilling til að taka verkið að sér.“ Sólmundur ætlaði upphaflega að gefa sér plötuna í fertugsafmælisgjöf en þegar að gekk ekki eftir var markið sett á 45 ára aldurinn. „Ég er að ná þessu núna á fimm- tugsafmælinu - allt er þá þrennt er,“ segir Sólmundur og hlær. „Alveg týp- ískt fyrir minn mann, mjög duglegur að fá hugmyndir og láta mig dreyma en framkvæmdahliðin ekki alveg jafn öflug.“ Að sögn Sólmundar var það Arnór Vilbergsson organisti sem ýtti við honum en þeir starfa saman í Kefla- víkurkirkju þar sem Sólmundur syngur bæði með kirkjukórnum og karlakvartettinum Kóngunum. „Ég var oft að koma með lög til hans í kirkjuna og hann var að setja á nótur fyrir mig. Svo á endanum sagði hann að það færi ekkert í gang hjá mér fyrr en ég hreinlega myndi ákveða stað og stund fyrir útgáfutónleika. Ég gerði það og þá fór hlutirnir að gerast.“ Platan kannski svona eins og ég, frekar á mjúku nótunum Þegar Sólmundur er beðinn um að lýsa plötunni verður hann hikandi. Hann sýpur á kaffinu og hugsar sig um. „Mér finnst ferlega erfitt að skilgreina mína eigin tónlist, held að sé best að láta aðra um það. Ég held ég geti samt fullyrt að hún sé frekar þægileg og áreynslulítil í hlustun. Kannski svona eins og ég sjálfur, frekar á mjúku nót- unum,“ segir hann og brosir. „Yrkis- efnið er mest pælingar um lífið og til- veruna, byggt á minni reynslu, en hún er samt ágætlega fjölbreytt myndi ég segja.“ Að sögn Sólmundar hafa upptökur gengið vel enda hafi verið mikil gæfa að fá Davíð til þess að stjórna þeim. „Hann er ekki bara galdramaður á gítarinn heldur frábær alhliða tón- listarmaður - eiginlega svona sjóð- andi seiðkarl. Hann tengdi strax vel við efnið og við höfum átt mjög gott samstarf. Þetta er fyrsta platan okkar beggja þannig að þetta hefur verið mjög lærdómsríkt á báða bóga. Ég veit ekki með mig, en hann á pott- þétt eftir að gera frábæra hluti á þessu sviði í framtíðinni.“ Forréttindi að fá að vinna tónlist með börnunum sínum Fjölskyldan tekur virkan þátt í þessu verkefni og dæturnar eiga greinilega ekki langt að sækja tónlistaráhugann - hvernig er að vinna með börnunum sínum? „Alveg yndislegt, það eru bara forrétt- indi að fá að vinna tónlist með börn- unum sínum. Þær Hildur og Agnes eru miklir hæfileikabunkar í tónlistinni, góðar söngkonur og með þetta listræna innsæi sem er ekki öllum gefið. Við náum alveg einstaklega vel saman og höfum verið að leika okkur að syngja saman raddað sem kemur mjög vel út. Yngsta dóttirin er líka mjög efnileg söngkona og hefði pottþétt verið með ef ég hefði beðið í nokkur ár með að fara í þetta verkefni.“ Útgáfutónleikarnir verða haldnir í Hljómahöll á afmælisdegi Sólmundur 29. september og vonast Sólmundur eftir góðri aðsókn. Með Sólmundi verða á sviðinu góðir vinir og sam- starfsmenn í gegnum tíðina og að sjálfsögðu dæturnar. Engin ástæða til annars en að setja stefnuna þangað sem maður vill „Ég er svo heppinn að eiga góðan kjarna af vinum til að spila með og er það komið svo að öll stórsveitin sem spilað hefur í „Blikinu“ síðustu ár á Ljósa- nótt verður með mér á tónleikunum, þ.e.Valdi, Arnór, Bubbi, Davíð, Sigur- geir og svo fær kynnirinn hann Kristján Jóhannsson líka hlutverk. Stelpurnar mínar syngja hvor sitt lagið og radda og svo kemur vinkona mín hún Birta Sigurjónsdóttir og syngur eitt lag, mjög sérstakt - án texta.“ Sólmundur segist hafa ákveðið að stilla miðaverði á tónleikana í hóf til þess að fá sem flesta enda sé ekki auðvelt að vera óþekktur með stóra drauma. „En það eru einhverjir sem þekkja til mín og vonandi koma bara sem flest- ir. Það er eins með þessa tónleika og plötuna sjálfa, engin ástæða til ann- ars en að setja stefnuna þangað sem maður vill. Öðruvísi kemst maður ekki á áfangastað.“ Sólmundur Friðriksson tónlistarmaður gefur út sína fyrstu sólóplötu og heldur útgáfutónleika Á mjúku nótunum með stóra drauma Sólmundur Friðriksson tónlistarmaður gefur út sína fyrstu sólóplötu um þessar mundir og mun af því til- efni halda útgáfutónleika í Hljómahöll þann 29. sept- ember n.k. Platan ber heitið „Söngur vonar“ og eru öll lög og textar eftir Sólmund.

x

Víkurfréttir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.