Víkurfréttir - 21.09.2017, Side 6
6 fimmtudagur 21. september 2017VÍKURFRÉTTIR
Þátttakendur lenda strax í happdrættispotti
Verkalýðs- og sjómannafélag Keflavíkur og nágrennis
Kæru félagsmenn
Tökum vel í
kjarakönnun VSFK
Búið er að opna fyrir umsóknir um dvöl í íbúð Verkalýðs-
félags Grindavíkur á Tenerife um páskana 27. mars 2018
til 10. apríl 2018. Umsóknarfrestur er til 9. október.
Leigan er 80 þúsund og 36 punktar.
Hægt er að sækja um á sjóðsfélagavef félagsins sem er að
finna inná www.VLFGRV.is undir orlofshús
PÁSKAR 2018
UMSÓKN UM DVÖL Í ORLOFSHÚS
■ Dagný Maggýjar hitti Sólmund
einn sólríkan sunnudag til þess að
ræða tónlistina og draumana sem
hafa verið lengi í fæðingu.
„Þetta er búin að vera ansi löng fæð-
ing,” segir Sólmundur sposkur á svip.
„Ég var kominn með efni í plötu í
kringum 2005 en var ekki að gera
neitt með það. Ég held það séu örugg-
lega komin meira en þrjú ár síðan ég
gerði fyrsta „demó-ið“ með tveimur
góðum vinum, Eiríki Hilmissyni sem
spilaði með mér með Geirmundi Val-
týssyni á sínum tíma, og svo Arnóri
Vilbergssyni. Svo fengum við Þor-
vald Halldórsson slagverksleikara
með okkur og byrjuðum að prófa að
útsetja og æfa. Pælingin var að taka
efnið að mestu upp „live" og hafa
vinnsluna eins einfalda og ódýra og
hægt væri. Við ætluðum að byrja að
taka upp í vor en þá var Eiki bundinn
í öðru og fékk ég þá Davíð Sigurgeirs-
son gítarsnilling til að taka verkið að
sér.“
Sólmundur ætlaði upphaflega að gefa
sér plötuna í fertugsafmælisgjöf en
þegar að gekk ekki eftir var markið
sett á 45 ára aldurinn.
„Ég er að ná þessu núna á fimm-
tugsafmælinu - allt er þá þrennt er,“
segir Sólmundur og hlær. „Alveg týp-
ískt fyrir minn mann, mjög duglegur
að fá hugmyndir og láta mig dreyma
en framkvæmdahliðin ekki alveg jafn
öflug.“
Að sögn Sólmundar var það Arnór
Vilbergsson organisti sem ýtti við
honum en þeir starfa saman í Kefla-
víkurkirkju þar sem Sólmundur
syngur bæði með kirkjukórnum og
karlakvartettinum Kóngunum. „Ég
var oft að koma með lög til hans í
kirkjuna og hann var að setja á nótur
fyrir mig. Svo á endanum sagði hann
að það færi ekkert í gang hjá mér fyrr
en ég hreinlega myndi ákveða stað og
stund fyrir útgáfutónleika. Ég gerði
það og þá fór hlutirnir að gerast.“
Platan kannski svona eins og ég,
frekar á mjúku nótunum
Þegar Sólmundur er beðinn um að
lýsa plötunni verður hann hikandi.
Hann sýpur á kaffinu og hugsar sig
um.
„Mér finnst ferlega erfitt að skilgreina
mína eigin tónlist, held að sé best að
láta aðra um það. Ég held ég geti samt
fullyrt að hún sé frekar þægileg og
áreynslulítil í hlustun. Kannski svona
eins og ég sjálfur, frekar á mjúku nót-
unum,“ segir hann og brosir. „Yrkis-
efnið er mest pælingar um lífið og til-
veruna, byggt á minni reynslu, en hún
er samt ágætlega fjölbreytt myndi ég
segja.“
Að sögn Sólmundar hafa upptökur
gengið vel enda hafi verið mikil gæfa
að fá Davíð til þess að stjórna þeim.
„Hann er ekki bara galdramaður á
gítarinn heldur frábær alhliða tón-
listarmaður - eiginlega svona sjóð-
andi seiðkarl. Hann tengdi strax vel
við efnið og við höfum átt mjög gott
samstarf. Þetta er fyrsta platan okkar
beggja þannig að þetta hefur verið
mjög lærdómsríkt á báða bóga. Ég
veit ekki með mig, en hann á pott-
þétt eftir að gera frábæra hluti á þessu
sviði í framtíðinni.“
Forréttindi að fá að vinna tónlist
með börnunum sínum
Fjölskyldan tekur virkan þátt í þessu
verkefni og dæturnar eiga greinilega
ekki langt að sækja tónlistaráhugann
- hvernig er að vinna með börnunum
sínum?
„Alveg yndislegt, það eru bara forrétt-
indi að fá að vinna tónlist með börn-
unum sínum. Þær Hildur og Agnes eru
miklir hæfileikabunkar í tónlistinni,
góðar söngkonur og með þetta listræna
innsæi sem er ekki öllum gefið. Við
náum alveg einstaklega vel saman og
höfum verið að leika okkur að syngja
saman raddað sem kemur mjög vel
út. Yngsta dóttirin er líka mjög efnileg
söngkona og hefði pottþétt verið með ef
ég hefði beðið í nokkur ár með að fara í
þetta verkefni.“
Útgáfutónleikarnir verða haldnir í
Hljómahöll á afmælisdegi Sólmundur
29. september og vonast Sólmundur
eftir góðri aðsókn. Með Sólmundi
verða á sviðinu góðir vinir og sam-
starfsmenn í gegnum tíðina og að
sjálfsögðu dæturnar.
Engin ástæða til annars en að setja
stefnuna þangað sem maður vill
„Ég er svo heppinn að eiga góðan kjarna
af vinum til að spila með og er það
komið svo að öll stórsveitin sem spilað
hefur í „Blikinu“ síðustu ár á Ljósa-
nótt verður með mér á tónleikunum,
þ.e.Valdi, Arnór, Bubbi, Davíð, Sigur-
geir og svo fær kynnirinn hann Kristján
Jóhannsson líka hlutverk. Stelpurnar
mínar syngja hvor sitt lagið og radda
og svo kemur vinkona mín hún Birta
Sigurjónsdóttir og syngur eitt lag, mjög
sérstakt - án texta.“
Sólmundur segist hafa ákveðið að
stilla miðaverði á tónleikana í hóf
til þess að fá sem flesta enda sé ekki
auðvelt að vera óþekktur með stóra
drauma.
„En það eru einhverjir sem þekkja til
mín og vonandi koma bara sem flest-
ir. Það er eins með þessa tónleika og
plötuna sjálfa, engin ástæða til ann-
ars en að setja stefnuna þangað sem
maður vill. Öðruvísi kemst maður
ekki á áfangastað.“
Sólmundur Friðriksson tónlistarmaður gefur út sína fyrstu sólóplötu og heldur útgáfutónleika
Á mjúku nótunum með stóra drauma
Sólmundur Friðriksson tónlistarmaður gefur út sína
fyrstu sólóplötu um þessar mundir og mun af því til-
efni halda útgáfutónleika í Hljómahöll þann 29. sept-
ember n.k. Platan ber heitið „Söngur vonar“ og eru öll
lög og textar eftir Sólmund.