Víkurfréttir


Víkurfréttir - 21.09.2017, Blaðsíða 17

Víkurfréttir - 21.09.2017, Blaðsíða 17
17fimmtudagur 21. september 2017 VÍKURFRÉTTIR RÁÐNINGARÞJÓNUSTA Ráðningarþjónusta HH Ráðgjöf • Fjarðargata 13 - 15 • 220 Hafnarörður • Sími: 561 5900 • Fax: 561 5909 • hhr@hhr.is • www.hhr.is Nánari upplýsingar um starð er að nna á heimasíðu HH Ráðgjafar www.hhr.is og eru áhugasamir beðnir um að sækja um starð þar. Starfs- og ábyrgðarsvið Gæðafulltrúi · Ábyrgð á daglegri vinnu við gæðaker · Ábyrgð á ýmsum sérverkefnum · Frumkvæði að nýjungum og úrbótum · Þátttaka í frjóvgunarteymi · Aeysing gæðastjóra í arveru hans · Vinna í samræmi við gæðaker Starfsstöð gæðafulltrúa er í Vogum og frekari upplýsingar um Stofnsk má nálgast á heimasíðu fyrirtækisins www.stofnskur.is. Umsóknarfrestur er til og með 29. september næstkomandi. Stofnskur hf. óskar eftir að ráða gæðafulltrúa til starfa. Í boði er spennandi starf hjá framsæknu fyrirtæki í örum vexti sem hefur á að skipa metnaðarfullu og samhentu starfsfólki. · Menntun sem nýtist í star · Þekking á gæðamálum og gæðastöðlum · Góð kunnátta á skjalavinnslu í Word og Excel · Frumkvæði og hæfni til að vinna í ölbreyttu umhver · Jákvæðni og lipurð í samskiptum · Sjálfstæði í vinnubrögðum sem og geta til að vinna í hóp Menntunar- og hæfniskröfur Rótgróið byggingafyrirtæki óskar eftir duglegum og stundvísum smiðum eða mönnum vönum byggingarvinnu. Mikil og örugg vinna. Erum staðsett í Þorlákshöfn. Allar nánari upplýsingar veita Heimir í síma 892 3742 og Gestur í síma 899 5443 Verið velkomin á samkomu alla sunnudaga kl. 11.00 Hvítasunnu- kirkjan í Keflavík, Hafnargötu 84   Bílaviðgerðir Smurþjónusta    Varahlutir Brekkustíg 38 - 260 Njarðvík sími 421 7979 www.bilarogpartar.is FRÉTTAVAKT ALLAN SÓLAR- HRINGINN Í SÍMA 898 2222 Sara Hrund leikmaður Grindavíkur í Pepsi-deild kvenna hlaut sitt sjötta höfuðhögg á átta árum í leik liðsins gegn ÍBV í Vestmannaeyjum þann 17. ágúst síðastliðinn. Líf Söru hefur meira og minna snúist um fótbolta undan- farin tuttugu ár og hefur hún spilað yfir hundrað leiki með Grindavík. Sara hefur ekkert látið stoppa sig í gegnum árin þrátt fyrir meiðsli og spilaði meðal annars knattspyrnu í Bandaríkjunum þar sem hún stundaði nám með fótboltanum og lét þar með draum sinn ræt- ast. Hún spilaði einnig með unglingalandsliðum Íslands og hefur gengt fyrirliðastöðu innan vallarins. Í dag eru strembnir mánuðir framundan í endurhæfingu og leggur Sara því takkaskóna tímabundið á hilluna. Hún vonar að hún verði öðrum víti til varnaðar og að fleiri fari að líta höfuð- högg alvarlegri augum. Við ræddum við Söru Hrund um hvaða áhrif höfuð- höggin undanfarin ár hafa á hana í dag. Hvernig hefur þú það í dag? „Ég er að kljást við mörg einkenni af „Post-concussion syndrome” eða „eftir heilahristings heilkenni” og hefur mitt daglega líf raskast töluvert. Það einkennist af slæmum höfuð- verkjum og miklum svima. Ég er byrjuð í endurhæfingu og er spennt að takast á við það að koma heilsunni aftur í rétt horf. Það er erfitt fyrir mig að vera róleg og gera lítið en það þýðir ekkert annað en að taka slaka á og jafna sig að fullu.“ Þú settir inn nokkrar línur á Fa- cebook þar sem þú lýstir stöðunni hjá þér núna, hvernig hafa við- brögðin við því verið? „Ég bjóst ekki við miklum við- brögðum. Ég vildi láta vini mína og fólkið í kringum mig vita hvað ég væri að kljást við og að ég þyrfti að stíga til hliðar í fótboltanum. Því voru þær viðtökur sem ég fékk ótrú- legar og komu mér í opna skjöldu. Ég fékk margar hlýjar kveðjur sem var gaman að fá þegar þegar maður stendur í erfiðleikum sem þessum.“ F i n n u r þ ú f y r i r miklum stuðning al- mennt eftir atvikið? „Ég er einstaklega heppin með fólkið í kringum mig og hafa þau sýnt mér mikinn stuðning eftir atvikið. Ég er ekki að byrja að glíma við þetta núna því árið 2009 lenti ég í fyrsta alvar- lega höfuðhögginu tengdu fótbolt- anum. Fjölskyldan mín og kærasti hafa alltaf verið mér innan handar og verið ótrúlega skilningsrík, það hefur hjálpað mér verulega.“ Er mikilvægt að umræðan um höfuðhögg og heilahristinga opnist betur? „Það er svo sannarlega mikilvægt og umræðan hefur því miður hefur verið lítil hér á Íslandi. Ég spilaði knatt- spyrnu í Bandaríkjunum og fékk eitt höfuðhögg. Viðbrögðin þar voru mun betri en viðbrögðin sem ég fékk hér á Íslandi. Ég trúi því að verkferlar í kjölfar höfuðhögga eigi eftir að lagast og að við bregðumst betur við þeim og sýnum meiri skilning. Eins og ég nefndi í færslunni minni á Facebook er auðvelt að bregðast við sýnilegum meiðslum líkt og beinbrotum eða krossbandsslitum og fólk sem lendir í því fær mikinn skilning. Höfuðhögg eru ekki sýnileg en mjög hættuleg og afleiðingarnar geta verið slæmar ef ekki er brugðist rétt við. Því eru við- brögð vegna höfuðhögga mikilvæg og ég get ekki ítrekað það nóg að þeir sem standa að íþróttaliðum kynni sér einkenni og rétt viðbrögð.“ Viltu spá í spilin fyrir síðustu leiki Grindavíkur? „Ég hef fulla trú á að stelpurnar haldi áfram að spila vel og safna stigum á lokasprettinum og eftir jafnteflið við FH tryggði Grindavík sér veru í Pepsi-deild kvenna að ári sem er frábært afrek fyrir nýliða í þessari sterku deild. Við erum með gott lið og gaman að sjá ungu stelpurnar stíga upp og standa sig frábærlega eftir að meiðsli hafa herjað á mannskapinn.“ Hvað er svo næst á dagkrá hjá þér? „Það er að læra að vera þolinmóð og stunda endurhæfingu til að ná krafti til og ná mér. En eins og sagt er, þegar einar dyr lokast opnast aðrar og ætla ég að lifa eftir því á næstunni.“ Sara varð regional meistari með UWF. Sara í leik með Grindavík. Sara spilaði með University of West Florida í Bandaríkjunum þar sem hún stundaði nám í sálfræði.

x

Víkurfréttir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.