Víkurfréttir - 21.09.2017, Page 17
17fimmtudagur 21. september 2017 VÍKURFRÉTTIR
RÁÐNINGARÞJÓNUSTA
Ráðningarþjónusta
HH Ráðgjöf • Fjarðargata 13 - 15 • 220 Hafnarörður • Sími: 561 5900 • Fax: 561 5909 • hhr@hhr.is • www.hhr.is
Nánari upplýsingar um starð er að nna á heimasíðu HH Ráðgjafar
www.hhr.is og eru áhugasamir beðnir um að sækja um starð þar.
Starfs- og ábyrgðarsvið
Gæðafulltrúi
· Ábyrgð á daglegri vinnu við gæðaker
· Ábyrgð á ýmsum sérverkefnum
· Frumkvæði að nýjungum og úrbótum
· Þátttaka í frjóvgunarteymi
· Aeysing gæðastjóra í arveru hans
· Vinna í samræmi við gæðaker
Starfsstöð gæðafulltrúa er í Vogum og frekari upplýsingar
um Stofnsk má nálgast á heimasíðu fyrirtækisins www.stofnskur.is.
Umsóknarfrestur er til og með 29. september næstkomandi.
Stofnskur hf. óskar eftir að ráða gæðafulltrúa til starfa. Í boði er spennandi starf hjá
framsæknu fyrirtæki í örum vexti sem hefur á að skipa metnaðarfullu og samhentu starfsfólki.
· Menntun sem nýtist í star
· Þekking á gæðamálum og gæðastöðlum
· Góð kunnátta á skjalavinnslu í Word og Excel
· Frumkvæði og hæfni til að vinna í ölbreyttu umhver
· Jákvæðni og lipurð í samskiptum
· Sjálfstæði í vinnubrögðum sem og geta til að vinna í hóp
Menntunar- og hæfniskröfur
Rótgróið byggingafyrirtæki óskar eftir
duglegum og stundvísum smiðum eða
mönnum vönum byggingarvinnu.
Mikil og örugg vinna.
Erum staðsett í Þorlákshöfn.
Allar nánari upplýsingar veita
Heimir í síma 892 3742 og Gestur í síma 899 5443
Verið velkomin
á samkomu
alla sunnudaga
kl. 11.00
Hvítasunnu-
kirkjan í Keflavík,
Hafnargötu 84
Bílaviðgerðir
Smurþjónusta
Varahlutir
Brekkustíg 38 - 260 Njarðvík
sími 421 7979
www.bilarogpartar.is
FRÉTTAVAKT
ALLAN SÓLAR-
HRINGINN
Í SÍMA 898 2222
Sara Hrund leikmaður Grindavíkur í Pepsi-deild kvenna
hlaut sitt sjötta höfuðhögg á átta árum í leik liðsins gegn
ÍBV í Vestmannaeyjum þann 17. ágúst síðastliðinn. Líf
Söru hefur meira og minna snúist um fótbolta undan-
farin tuttugu ár og hefur hún spilað yfir hundrað leiki
með Grindavík. Sara hefur ekkert látið stoppa sig í
gegnum árin þrátt fyrir meiðsli og spilaði meðal annars
knattspyrnu í Bandaríkjunum þar sem hún stundaði
nám með fótboltanum og lét þar með draum sinn ræt-
ast. Hún spilaði einnig með unglingalandsliðum Íslands og hefur gengt
fyrirliðastöðu innan vallarins. Í dag eru strembnir mánuðir framundan í
endurhæfingu og leggur Sara því takkaskóna tímabundið á hilluna. Hún
vonar að hún verði öðrum víti til varnaðar og að fleiri fari að líta höfuð-
högg alvarlegri augum. Við ræddum við Söru Hrund um hvaða áhrif höfuð-
höggin undanfarin ár hafa á hana í dag.
Hvernig hefur þú það í dag?
„Ég er að kljást við mörg einkenni
af „Post-concussion syndrome” eða
„eftir heilahristings heilkenni” og
hefur mitt daglega líf raskast töluvert.
Það einkennist af slæmum höfuð-
verkjum og miklum svima. Ég er
byrjuð í endurhæfingu og er spennt
að takast á við það að koma heilsunni
aftur í rétt horf. Það er erfitt fyrir mig
að vera róleg og gera lítið en það þýðir
ekkert annað en að taka slaka á og
jafna sig að fullu.“
Þú settir inn nokkrar línur á Fa-
cebook þar sem þú lýstir stöðunni
hjá þér núna, hvernig hafa við-
brögðin við því verið?
„Ég bjóst ekki við miklum við-
brögðum. Ég vildi láta vini mína og
fólkið í kringum mig vita hvað ég væri
að kljást við og að ég þyrfti
að stíga til hliðar í
fótboltanum. Því
voru þær viðtökur
sem ég fékk ótrú-
legar og komu mér
í opna skjöldu. Ég
fékk margar hlýjar
kveðjur sem var
gaman að fá þegar
þegar maður stendur
í erfiðleikum sem
þessum.“
F i n n u r þ ú f y r i r
miklum stuðning al-
mennt eftir atvikið?
„Ég er einstaklega
heppin með fólkið í
kringum mig og hafa þau sýnt mér
mikinn stuðning eftir atvikið. Ég er
ekki að byrja að glíma við þetta núna
því árið 2009 lenti ég í fyrsta alvar-
lega höfuðhögginu tengdu fótbolt-
anum. Fjölskyldan mín og kærasti
hafa alltaf verið mér innan handar og
verið ótrúlega skilningsrík, það hefur
hjálpað mér verulega.“
Er mikilvægt að umræðan um
höfuðhögg og heilahristinga opnist
betur?
„Það er svo sannarlega mikilvægt og
umræðan hefur því miður hefur verið
lítil hér á Íslandi. Ég spilaði knatt-
spyrnu í Bandaríkjunum og fékk eitt
höfuðhögg. Viðbrögðin þar voru mun
betri en viðbrögðin sem ég fékk hér
á Íslandi. Ég trúi því að verkferlar í
kjölfar höfuðhögga eigi eftir að lagast
og að við bregðumst betur við þeim
og sýnum meiri skilning. Eins og ég
nefndi í færslunni minni á Facebook
er auðvelt að bregðast við sýnilegum
meiðslum líkt og beinbrotum eða
krossbandsslitum og fólk sem lendir
í því fær mikinn skilning. Höfuðhögg
eru ekki sýnileg en mjög hættuleg og
afleiðingarnar geta verið slæmar ef
ekki er brugðist rétt við. Því eru við-
brögð vegna höfuðhögga mikilvæg
og ég get ekki ítrekað það nóg að þeir
sem standa að íþróttaliðum kynni sér
einkenni og rétt viðbrögð.“
Viltu spá í spilin fyrir síðustu leiki
Grindavíkur?
„Ég hef fulla trú á að stelpurnar haldi
áfram að spila vel og safna stigum
á lokasprettinum og eftir jafnteflið
við FH tryggði Grindavík sér veru
í Pepsi-deild kvenna að ári sem er
frábært afrek fyrir nýliða í þessari
sterku deild. Við erum með gott lið
og gaman að sjá ungu stelpurnar stíga
upp og standa sig frábærlega eftir að
meiðsli hafa herjað á mannskapinn.“
Hvað er svo næst á dagkrá hjá þér?
„Það er að læra að vera þolinmóð og
stunda endurhæfingu til að ná krafti
til og ná mér. En eins og sagt er, þegar
einar dyr lokast opnast aðrar og ætla
ég að lifa eftir því á næstunni.“
Sara varð regional meistari með UWF.
Sara í leik með Grindavík.
Sara spilaði með University of West
Florida í Bandaríkjunum þar sem hún
stundaði nám í sálfræði.