Víkurfréttir - 21.09.2017, Qupperneq 2
2 fimmtudagur 21. september 2017VÍKURFRÉTTIR
ALLTAF PLÁSS
Í B Í L N U M
FINNDU OKKUR Á FACEBOOK
DAGLEGAR FERÐIR ALLA VIRKA DAGA, TVISVAR Á DAG.
S U Ð U R N E S - R E Y K J A V Í K
SÍMI: 845 0900
Útgefandi: Víkurfréttir ehf., kt. 710183-0319 // Afgreiðsla og ritstjórn: Krossmóa 4a, 4. hæð, 260 Reykjanesbæ, sími 421 0000 // Ritstjóri og ábm.: Páll Ketilsson, sími
421 0004, pket@vf.is // Fréttastjóri: Hilmar Bragi Bárðarson, sími 421 0002, hilmar@vf.is // Blaðamenn: Rannveig Jónína Guðmundsdóttir, sími 421 0002, rannveig@
vf.is // Sólborg Guðbrandsdóttir, sími 421 0002, solborg@vf.is // Auglýsingastjóri: Sigfús Aðalsteinsson, sími 421 0001, fusi@vf.is // Umbrot: Jóhann Páll Kristbjörnsson,
johann@vf.is // Afgreiðsla: Aldís Jónsdóttir, sími 421 0000, aldis@vf.is, Dóróthea Jónsdóttir, dora@vf.is // Prentun: Landsprent // Upplag: 9000 eintök // Dreifing: Ís-
landspóstur // Dagleg stafræn útgáfa: vf.is og kylfingur.is
Tekið er á móti auglýsingum á póstfangið fusi@vf.is. Auglýsingar berist fyrir kl. 17:00 á þriðjudegi fyrir útgáfudag, sem er almennt á fimmtudögum. Móttaka smáauglýsinga
er á vf.is. Smáauglýsingar berist fyrir kl. 15:00 á þriðjudögum. Sé fimmtudagur frídagur þá kemur blaðið út á miðvikudögum og skilafrestur auglýsinga færist fram um einn
sólarhring. Dreifing blaðsins tekur að jafnaði tvo daga. Blað sem kemur út á fimmtudegi er dreift á þeim degi og föstudegi inn á öll heimili á Suðurnesjum.
Efni til Víkurfrétta skal berast á póstfangið vf@vf.is. Aðsendar greinar birtast á vef Víkurfrétta, vf.is. Það er mat ritstjórnar hvaða greinar birtast í prentaðri útgáfu Víkurfrétta.
Ekki er greitt fyrir aðsent efni, texta eða myndir, hvort sem það birtist í blaðinu eða á vefsíðum Víkurfrétta.
Barstemning
Dúettinn Vigga og Sjonni
spila á laugardagskvöldið 23. september
Mánudagur - föstudagur 12:00 - 22:00
Laugardagur 12:00 - 3:00
Sunnudagur 12:00 - 20:00
Eldhúsið lokar 22:00.
Fish House Bar & Grill Hafnargata 6 240 Grindavík S: 426-9999
■ Tæknistigið í íslenskum fisk-
vinnslum er að aukast með tilkomu
nýrrar tækni sem byggist á tölvu-
stýrðum tækjum og línum. Það er
því aukin þörf á sérhæfðu starfs-
fólki í fiskvinnslu með góðan bak-
grunn í tækni og hugbúnaði. Til að
mæta þessari þörf hafa Marel og
Fisktækniskóli Íslands í sameiningu
boðið upp á tveggja anna nám síð-
astliðin þrjú ár sem kallast Marel
vinnslutæknibraut.
Hlutverk Marel vinnslutæknis er að
sjá til þess að Marel tæki og hugbún-
aður í vinnslunni séu að vinna á sem
skilvirkastan máta og þannig skapa
aukin verðmæti. Marel vinnslutæknir
á að geta allt sem tengist vinnslu á
staðnum s.s. þrifið tækin, greint helstu
bilanir og takmarkað umhverfisað-
stæður sem hafa áhrif á virkni tækj-
anna.
Námið er hugsað jafnt fyrir fólk sem
kemur beint úr tveggja ára grunnnámi
Fisktækniskólans sem og fyrir þá sem
stunda atvinnu, búa utan skólasvæðis
og hafa staðist raunhæfnimat á vegum
Fisktækniskólans. Samstarfsverkefnið
byggist á að þróa og reka eins árs
framhaldsnám við skólann sem hefur
það að markmiði að útskrifa Marel
vinnslutækna.
Framlag Marel felst í að sjá Fisktækni-
skólanum fyrir kennurum í þeim
greinum sem lúta að Marel tækjum og
hugbúnaði. Marel útvegar kennsluað-
stöðu og aðgengi að tækjum. Fram-
lag Fisktækniskólans felst í kennslu
undirstöðuáfanga, umsýslu námsins,
skipulagningu og fleira sem tengist
rekstri skólans. Í því felst einnig í mat
á umsækjendum í námið og sértæk
námsaðstoð. Námsefnið er í sífelldri
þróun og í takt við nýjungar í fisk-
vinnslu hverju sinni.
Báðir aðilar lýsa yfir mikilli ánægju
með samstarfið síðastliðin þrjú ár.
Myndin er frá undirritun sam-
komulagsins á sjávarútvegs-
sýningunni um síðustu helgi.
■ Arion banki og fimm lífeyris-
sjóðir hafa tekið yfir 98,13% hlut
í United Silicon. Hluthafafundur
United Silicon hf. fór fram 19. sept-
ember síðastliðinn. Þetta staðfestir
Karen Kjartansdóttir, upplýsinga-
fulltrúi United Silicon, í samtali við
Víkurfréttir.
Þórður Ólafur Þórðarsson var kjörinn
nýr stjórnarmaður en auk hans skipa
þau Sigrún Ragna Ólafsdóttir og Jak-
ob Bjarnason stjórn United Silicon.
Samkvæmt Vísi eru þeir fimm líf-
eyrissjóðir sem um ræðir Frjálsi líf-
eyrissjóðurinn, Festa lífeyrissjóður,
Eftirlaunasjóður atvinnuflugmanna,
Lífeyrissjóður starfsmanna Búnaðar-
banka Íslands og Eftirlaunasjóður
Reykjanesbæjar.
Fyrr í mánuðinum veitti Héraðsdóm-
ur Reykja ness félaginu framlengingu
á heimild til greiðslu stöðvunar til
þriggja mánaða, eða til 4. des em-
ber. Stjórn félagsins vinnur nú áfram
að endurskipulagningu félagsins og
hefur stuðning hluthafa til að leita
nýrra fjárfesta og leiða viðræður við
þá.
Arion banki og lífeyris-
sjóðir eignast kísilverið
Kvenfélag Keflavíkur
Starfsár Kvenfélags Keflavíkur er að hefjast
Fyrsti fundur er 2. október kl. 20 að Smiðjuvöllum 11,
Rauðakrosshúsinu.
Almenn fundarstörf,
gestur kvöldsins er Jórunn Símonardóttir Bowentæknir.
Aðrir fundir eru í nóvember, desember, febrúar, mars
og maí og eru haldnir fyrsta mánudag hvers mánaðar.
Stjórnin býður allar konur velkomnar á fundi.
Marel og Fisktækniskólinn áfram í samstarfi
fimmtudagskvöld kl. 20 og 22 á Hringbraut og vf.is