Víkurfréttir - 21.09.2017, Side 8
8 fimmtudagur 21. september 2017VÍKURFRÉTTIR
Ástkær eiginkona mín og besti vinur, móðir okkar,
tengdamóðir og amma,
Björg Valtýsdóttir,
aðstoðaryfirtollvörður,
Njarðvíkurbraut 28, Innri Njarðvík,
lést í faðmi fjölskyldunnar á Heilbrigðisstofnun Suðurnesja
17. september. Blóm og kransar vinsamlega afþakkaðir en þeir
sem vilja minnast hennar er bent á Ljósið og Krabbameinsfélag
Suðurnesja. Útförin fer fram frá Innri-Njarðvíkurkirkju föstudaginn
22. september klukkan 13.
Kristinn Pálsson
Sigrún Eva Kristinsdóttir Martin Hernandez
Ásdís Björk Kristinsdóttir Jóhann Axel Thorarensen
Páll Kristinsson Pálína Gunnarsdóttir
og barnabörn.
Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma,
Guðríður Elíasdóttir,
Suðurgötu 17, Sandgerði,
Lést á Heilbrigðisstofnun Suðurnesja, laugardaginn 9. september.
Útförin fer fram frá Safnaðarheimilinu í Sandgerði,
föstudaginn 22. september kl.13.
Ellý Björnsdóttir Magnús Þorgeirsson,
Halldóra Svava Sigvarðardóttir Viðar Ólafsson,
Vigdís Sigvarðardóttir Sigurður Tryggvason,
Jens Snævar Sigvarðarson
Elías Sigvarðarson Kristjana Magnúsdóttir,
Guðmundur Sigvarðarson
barnabörn og barnabarnabörn.
Starfsmaður í eftirskólaúrræði kl. 13-16
Hlutastarf við ræstingar
Starfsfólk á heimili fatlaðra barna
Þjónustufulltrúi
Fagmanneskja í starf með fötluðum
LAUS STÖRF
Umsóknum í öll ofangreind störf skal skilað á vef Reykjanes-
bæjar undir Stjórnsýsla: Laus störf. Þar eru jafnframt
nánari upplýsingar um auglýst störf og á Facebook síðunni
Reykjanesbær - laus störf.
FJÖRHEIMAR
HÆFINGARSTÖÐ
VELFERÐARSVIÐ
STJÓRNSÝSLUSVIÐ
HÆFINGARSTÖÐ
Hægt er að leggja inn almenna umsókn á sama stað. Þeim er komið til
stofnana sem eru í leit að starfsfólki.
Almennar umsóknir eru geymdar í gagnagrunni okkar í sex mánuði.
VIÐBURÐIR
HEILSU- OG FORVARNARVIKA 2. - 8. OKTÓBER
Sunnudaginn 24. september kl. 15:00 verður Helgi Hjaltalín Eyjólfsson
með leiðsögn um sýningu sína Horfur í Duus Safnahúsum.
Allir velkomnir og aðgangur ókeypis.
LISTASAFN REYKJANESBÆJAR - LISTAMANNALEIÐSÖGN
Fimmtudaginn 21. september kl. 11.00 kemur Margrét Knútsdóttir ljósmóðir
á Foreldramorgunn og fjallar um andlega og líkamlega líðan eftir barnsburð.
Þriðjudaginn 26. september kl. 17.00 verður Draugaleg Uppskeruhátíð
Sumarlesturs. Halla Karen les draugasögur og börn eru hvött til að fara á
draugaveiðar í safninu. Allir hjartanlega velkomnir.
BÓKASAFN REYKJANESBÆJAR
Ætlar þitt fyrirtæki að taka þátt í heilsu- og forvarnarviku með því að
bjóða upp á heilsubætandi dagskrá?
Tilkynna þarf þátttöku í síðasta lagi 22. september í netfangið
hafthor.birgisson@reykjanesbaer.is
Harpa Rakel Hallgrímsdóttir
er jógakennari og búsett í
Grindavík. Að eigin sögn ætl-
aði hún aldrei að kenna jóga,
hvað þá stunda það þar sem
henni fannst hún ekki hafa
eirð í sér til að njóta þess að
vera í núinu. Draumur Hörpu
er að opna jógasetur og mun
það gerast þegar það á að ger-
ast. Í haust ætlar Harpa hins
vegar að leyfa sér að njóta og
rækta líkama og sál.
Hvenær byrjaðir þú að stunda jóga
og hvenær ákvaðst þú að gerast
jógakennari?
„Áður en ég byrjaði að stunda jóga
hafði ég prófað einn og einn tíma.
Mér fannst það spennandi en samt
ekki fyrir mig, mér fannst ég ekki hafa
þessa eirð í mér. Ég byrjaði að stunda
jóga af alvöru í byrjun árs 2014 að
mig minnir. Það var eiginlega bara til-
viljun því ég var að skúra leikskólann
og þar var lokaður jóga hópur og á
meðan þær stunduðu skrapp ég heim.
Halldóra Halldórs jógakennari var
alltaf að benda mér á að prófa í stað
þess að hoppa heim á meðan. Þann-
ig ég prófaði og bæði ég og Halldóra
getum sagt að ég hafi ekkert slakað á,
ekki í eina sekúndu. Erfiðasta æfingin
var slökunin þar sem ég var búin að
telja allar línur og skrúfur í loftinu. En
eftir tímann vissi ég að þetta væri eitt-
hvað sem ég þyrfti þannig ég ákvað að
mæta aftur og hef aldrei séð eftir því.
Ég fór svo í fyrsta jóganámið sum-
arið eftir það en það skondna var að
ég ætlaði aldrei að kenna. Ég hafði
prófað Aerial jóga í Reykjavík og
orðið ástfangin af því en ég var mjög
feimin, kvíðin og hrædd við að vera
með of miklu fólki og var alltaf í
hræðslukasti fyrir utan áður en ég fór
í tíma. Ég keypti mér því sjálf Aerial
búnað og fór í námið til þess eins að
þurfa ekki að mæta aftur heldur ætl-
aði ég bara að stunda það ein heima í
friði. Eftir námið plataði kennarinn
sem átti Byoga, þar sem ég stundaði
námið mig í að vera með námskeið og
þá var ekki aftur snúið.“
Prana jógasetur, hvaðan kemur
hugmyndin af því?
„Ég get ekki sagt að ég eigi hug-
myndina alveg sjálf. Ég og Margrét
Kristín, sem er annar jóga-
kennari hér í Grindavík,
keyrðum eitthvern
tímann á milli í
jóga og töluðum
um hvað það
þyrfti jógasetur
í Grindavík og
þá keyrir bíll
fram hjá með
merkinu Prana
og við litum á
það sem tákn að
ef við myndum
stof na jógas e tur
myndi það vera nafnið.
Prana er úr jógafræðunum
og er lífsorkan okkar.“
Stefnir þú enn að því að opna jóga-
setur í Grindavík?
„Já klárlega, en plönin hafa örlítið
breyst því á lóðinni sem ég keypti má
ég ekki byggja íbúðarhús. Planið var
að byggja saman íbúð og jógasetur
því fáir í þessu samfélagi hafa efni á
tveimur íbúðum, ég ætlaði að búa í
annarri íbúðinni og hafa jógasetur í
hinni. Núna er lóðin farin á sölu og
ég finn nýja leið. Ég trúi því að þegar
það eigi að koma og tíminn er réttur
þá komi það. Allt er eins og það á að
vera. Þangað til hef ég tekið allt úr
stofunni heima hjá mér og gerði lítið
pláss fyrir um átta manns þar sem ég
og aðrir getum haldið áfram stunda
jóga, þroskast og vaxa saman.“
Þú ert með Aerial jóga fyrir ungl-
inga. Er ekki gott fyrir þá að komast
í jóga og gleyma aðeins stund og
stað í hraða samfélagsins í dag?
„Alveg nauðsynlegt. Það er endalaust
áreiti á unga fólkið í dag og margar
freistingar sem kalla. Börn og ungl-
ingar þurfa að læra að það sé í lagi að
vera maður sjálfur, að tilfinningar séu
eitthvað sem allir upplifa og að það sé
í lagi að finna til. Ég tel að ein besta
forvörn fyrir börn og unglinga sé trú
á eigin getu og samskiptahæfni sem
gott er að styrkja í nánum hóp eins og
jóga. Þar finna þau tæki og tól til að
komast í gegnum þær reynslur sem
munu móta líf þeirra. Það er líka alltaf
nóg að gera og mikið álag á þeim svo
það er yndislegt að gefa sér smá tíma
og sleppa því að hugsa um hvað þau
þurfi að gera og vera bara í núinu að
njóta.“
Þú hefur einnig verið með jóga
fyrir börn á leikskólaaldri. Er
ekki skemmtilegt að kenna svona
ungum einstaklingum?
„Ég elska að vera með
þennan hóp. Það er
aldrei hægt að vita
hvernig tíminn
fer. Til að byrja
með var ég með
jógastundirnar
skipulagðar fá
a-ö og barði
mig niður fyrir
að ná ekki að
fylgja því eftir en
núna er planið sí-
breytilegt. Það er svo
misjafnt hvað hentar
hverjum hóp og hvernig þau
mæta. Eina sem er alltaf fast er öndun
í byrjun og slökun í lokin. Börn elska
slökunina, en fyrir okkur eldri er
oft erfitt að tileinka sér slökun þar
sem við fáum samviskubit yfir því
að eyða tíma í ekki neitt og hugsum
um allt sem við eigum eftir að gera.
Börn fæðast með hæfileikann að vera
í núinu en við fullorðna fólkið erum
alltaf að kippa þeim frá því og því
eiga þau til að gleyma hvernig það er.
Þess vegna er svo mikilvægt að byrja
ung að stunda jóga og núvitund til
að viðhalda því sem er börnunum
eðlislægt.“
Geta allir stundað jóga?
„Ekki spurning. Jóga er fyrir alla.
Konur, karlar, krakkar, ung börn,
unglingar og aldraðir geta fundið
tíma við sitt hæfi. Jóga snýst ekki um
að vera góður í jóga eða keppa um
að geta farið í erfiðar stöður. Margir
halda að þeir verði að vera í góðu
formi líkamlega og andlega þannig
að þeir geti róað hugann og haldið
honum rólegum í langan tíma en
aðalatriðið er að mæta, njóta og koma
fram við sig af vinsemd og án dóm-
hörku þrátt fyrir að hugurinn fari á
flakk því hann gerir það hjá öllum.
Í jóga og núvitund æfum við okkur
að staldra við, auka meðvitund okkar
og horfa á okkur sjálf og heiminn án
dómhörku.“
Hvað er á döfinni hjá þér á næst-
unni?
„Það er sitt lítið af hverju. Það er nóg
að gera en ég er með fjóra jógatíma á
viku heima í stofu eins og er og svo
mun ég hjálpa til við að efla núvitund
í skólasamfélaginu í Grindavík ásamt
Halldóru Halldórsdóttur. Einnig var
ég að hefja nám í heilsunuddi og þrái
að tvinna þetta saman í framtíðinni.
Annars er markmiðið í haust aðalega
að leyfa mér að njóta og rækta líkama
og sál. Ég get ekki gefið af mér ef ég
sinni mér ekki. Við þurfum alltaf að
byrja á okkur sjálfum, eins í neyðar-
ástandi í flugvélum, fyrst setjum við
grímuna á okkur sjálf, svo á aðra.
Þannig núna er tími til að læra að lifa
við breyttar aðstæður og rækta fjöl-
skyldu- og vinasambönd.“
Besta forvörnin
er að hafa trú á
eigin getu
Jóga snýst ekki um að
vera góður í jóga eða
keppa um að geta farið
í erfiðar stöður.
FRÉTTAVAKT ALLAN SÓLARHRINGINN
Í SÍMA 898 2222