Víkurfréttir - 21.09.2017, Síða 12
12 fimmtudagur 21. september 2017VÍKURFRÉTTIR
-Elva Dögg Sigurðardóttir
hefur minnkað pressuna á
sjálfa sig og ferðast um heim-
inn án samfélagsmiðla
„Það er svo ótrúlega gaman að ferðast
og upplifa nýja hluti. Ísland er svo lítill
partur af heiminum,“ segir Elva Dögg
Sigurðardóttir, en síðustu ár hefur
hún flakkað á milli staða í útlöndum
og elt draumana sína. Fyrir þremur
árum síðan ákvað hún að prófa eitt-
hvað nýtt og skráði sig á tungumála-
námskeið í Sevilla á Spáni. Síðan þá
hefur hún meðal annars búið í Cá-
diz og Granada á Spáni, ásamt því að
ferðast um Mið-Ameríku og starfa á
Lanzarote.
„Fyrsta daginn í Sevilla var ótrú-
lega heitt og algjört myrkur. Mér var
skutlað að húsinu sem ég átti að gista í,
konan var ekki heima, ég kunni varla
spænsku og þurfti að bjarga mér. Ég
man ég hugsaði þegar ég var komin
upp í rúm hvað ég væri eiginlega búin
að koma mér út í. En svo varð þetta
strax betra daginn eftir,“ segir Elva
en síðan þá hefur hún flakkað á milli
staða á Spáni og kynnst fólki frá öllum
heimshornum. Hún segist orðin
nokkuð góð í spænsku í dag, en þegar
Spánverjarnir hafi ekki talað ensku
átti hún ekki annarra kosta völ. „Ég
lærði meira á því að vera í daglegum
samskiptum við Spánverja heldur en
í tungumálaskólanum. Maður þarf
bara að vera óhræddur við að reyna,“
segir hún. Eftir tungumálaskólann
fór hún til Cádiz þar sem hún vann
á veitingastað í smábænum Conil.
„Hótelið var alveg við ströndina og ég
nýtti hverja lausa stund til þess að sóla
mig. Núna myndi ég aldrei nenna að
liggja svona lengi í sólbaði,“ segir hún.
Sumarið 2016 fór Elva í ferðalag
ásamt vinkonu sinni Unu, þar sem
þær ferðuðust um Mið-Ameríku.
„Þar sá maður hvað við höfum það
virkilega gott hérna á Íslandi. Einu
sinni keyrðum við inn í eina stór-
borgina að næturlagi og ég sá mann
liggja á götunni í blóði sínu afskipta-
lausan, það var mjög óhugnaleg sjón.“
Elva ákvað svo að skrá sig í spænsk-
unám ásamt því að æfa Crossfit síð-
astliðið haust og flutti til Granada á
Spáni. „Þar deildi ég íbúð með fólki frá
fimm mismunandi löndum. Lengst af
bjó ég með yndislegri franskri konu
ásamt dásamlegum manni frá Þýska-
landi, sem hafði ekki notað skó
í yfir fimm ár. Magnaður kar-
akter sem mér þykir ótrúlega
vænt um. Ég fór einu sinni með
honum í fjallgöngu en ég lagði
samt ekki í það að vera berfætt.
Það var magnað að fylgjast með
honum,“ segir Elva.
Starfar sem skemmtikraftur
á Spáni
Frá því Elva var lítil hafði hana
langað að prófa að starfa sem
skemmtikraftur á hóteli. „Ég
var búin að sækja um vinnu á
skemmtiferðskipum en það gekk ekk-
ert, svo ég ákvað að leita á Google. Þar
fann ég fyrirtæki sem auglýsti eftir
skemmtikrafti og umsóknarfrestur-
inn rann út daginn eftir. Ég fékk viðtal
strax daginn eftir og fór á námskeið á
netinu.“ Elva fékk svo starf hjá þeim
flutti þá til Lanzarote. „Þar vann ég
á rosalega flottu hóteli, en á því er
stærsti barnaklúbbur í Evrópu. Ég
vann oftast með krökkum frá 9 til 12
ára, ásamt því að starfa í móttökunni
og taka á móti nýju fólki. Þarna tók
ég meðal annars þátt í Mamma Mia
og We Will Rock you, sem voru sýn-
ingar á kvöldin. Þessi reynsla er mér
ótrúlega dýrmæt og ég lærði ótrúlega
mikið.“
Elva flutti svo aftur heim til Íslands
fyrir nokkrum vikum síðan en hún
hóf nám í haust við Háskóla Íslands
þar sem hún lærir tómstunda- og fé-
lagsmálafræði. „Þetta nám er ótrú-
lega skemmtilegt. Ég ákvað að byrja
í staðnámi hérna heima en svo getur
maður farið út í skiptinám eftir ár og
ég geri það pottþétt.“
Lögð inn á BUGL
Þegar Elva var á öðru ári í fram-
haldsskóla sótti hún um skiptinám
til Bandaríkjanna, en umsókninni
var hafnað vegna þess að hún hafði
áður glímt við andleg veikindi. „Þegar
ég var í 9. bekk var ég
lögð inn á BUGL, sem
er Barna- og unglinga-
geðdeild Landspítalans.
Þetta byrjaði þegar ég
fékk einhverja flensu
og var rúmliggjandi
í nokkra daga. Þegar
flensan lagaðist varð
eftir einhver ónota tilfinning og
þyngsli innra með mér. Mig langaði
ekki að hitta neinn og skildi ekkert
hvað var að gerast. Ég hitti sálfræðing
sem vildi senda mig á BUGL vegna
sjálfsvígshugsana. Þar fékk ég mikla
hjálp en eftir á að hyggja var ég ekki
nógu þroskuð til að taka á móti
hlutunum og læra. Ég var að glíma
við ótrúlega mikinn kvíða og full-
komnunaráráttu. Ég hef alltaf reynt
að standa mig svo vel í hverju einasta
verkefni sem ég tek mér fyrir hendur,
hvort sem það er í námi, vinnu eða
íþróttum,“ segir Elva Dögg en í mörg
ár á eftir átti hún í erfiðleikum með
pressuna sem hún setti á sig sjálfa.
„Ég skildi ekki af hverju mér leið
svona illa, ég á svo góða fjölskyldu,
ótrúlega góða vini og var að standa
mig vel. Manni finnst maður ekki
eiga að geta liðið svona illa því maður
hefur allt. Ég setti óraunhæfar kröfur
á sjálfa mig og síðustu tvö ár hef ég
lært að setja miklu minni kröfur. Það
hefur tekið á og ég á það til að
fara fram úr mér, en mér líður
mun betur núna. Ég þarf ekki að vera
best í öllu,“ segir Elva Dögg.
Hætti á Snapchat og Instagram
Fyrir tveimur árum síðan ákvað hún
að hætta að nota Instagram og Snapc-
hat fylgdi svo með í kjölfarið ári síðar.
„Það var mjög mikill léttir að hætta
á þessum miðlum. Ég fæ núna ekki
jafn mikið af óþarfa upplýsingum. Ég
þarf ekkert að vita hvað hver einasta
manneskja á Snapchat er að gera,
það gagnast mér ekkert. Svo er ótrú-
lega gaman að heyra vinkonur sínar
segja frá því sem þær hafa verið að
brasa, án þess að vera búin að sjá það
sjálf á netinu. Kannski byrja ég samt
aftur einhvern tímann seinna, en þá á
öðrum forsendum.“
Hún segist aldrei fá heimþrá og líði
vel úti, en hún fái þó stundum leið á
stöðunum og langi til að skipta um
umhverfi. „Mamma saknar mín þó
alltaf mest af öllum, en hún er sú sem
hvetur mig mest áfram. Eftir tvo daga
á Íslandi langar mig strax að fara aftur
út,“ segir hún.
Eyðir minna og nýtir
meira
Eftir að hafa búið þennan
tíma á Spáni er Elva farin
að nýta hlutina meira, eyðir
minni pening og er orðin
miki l l umhverf iss inni .
„Launin á Spáni eru náttúru-
lega mun lægri en á Íslandi
en það er ódýrt að halda sér
uppi. Ég hef alltaf verið spar-
söm og hef frá því ég var lítil
passað vel upp á peninginn
minn. Ég eyði ekki pening í óþarfa
hluti.“ Hún segir standardinn sinn
einnig hafa lækkað rosalega mikið
eftir að hafa búið á Spáni. „Þegar ég
mætti á hótelið sem ég vann á var
mér sýnt herbergið mitt. Í því var
ekkert nema rúm. Sturtuhengið var
í henglum, ekkert náttborð og ekkert
leirtau. Þá minnti ég sjálfa mig á fyrsta
daginn í Sevilla. Ég reddaði þessu svo
auðvitað bara, skreytti veggina með
myndum og þetta blessaðist allt.“
Hún segist hiklaust ætla aftur út en
hvenær það verður veit hún ekki.
„Það sem stendur klárlega upp úr
eru vinirnir sem maður eignast. Ég
á orðið rúm í hverju einasta landi í
Evrópu núna sem ég get gist frítt í,
þetta kemur bara í ljós.“
Á rúm í hverju einasta landi í Evrópu
Í River-rafting á Costa Rica.
Elva klædd sem Elsa í Frozen, ásamt föður sínum, Sigurði Skarphéðins-syni, móður sinni, Lindu Hrönn Birgis-dóttur, og litlu systur sinni Agnesi Perlu.
Helgarferð til Portúgal.
Á La Graciosa, lítilli eyju sem er hluti af Lanzarote.