Víkurfréttir - 21.09.2017, Síða 13
13fimmtudagur 21. september 2017 VÍKURFRÉTTIR
■ Heilsu og forvarnarvikan fer fram á öllum Suðurnesjunum vikuna 2.–8.
október. Öll bæjarfélögin á Suðurnesjunum taka þátt í vikunni en Reykja-
nesbær hefur staðið fyrir henni undanfarin tíu ár. Markmiðið með heilsu og
forvarnarvikunni er að draga úr þeim áhættuþáttum sem einstaklingar geta
staðið fyrir á lífsleiðinni og hlúa að verndandi þáttum, því er leitað til bæjar-
búa, stofnanna og fyrirtækja og allir hvattir til þess að taka þátt.
Allir taki höndum saman
Guðbrandur Stefánsson íþrótta og
æskulýðsfulltrúi í Garði segir að
vikan snúist um það að fyrirtæki og
stofananir taki höndum saman og
efli starfsfólk sitt til þess að hreyfa sig
ásamt fjölskyldum sínum „Við von-
umst einnig til þess að fyrirtæki og
stofnanir kynni starf sitt og bjóði upp
á afslætti, skólar setji upp viðburði
ásamt íþróttafélögunum. Reykjanes-
bær er til dæmis heilsueflandi sam-
félag og það væri frábært ef öll bæjar-
félögin á Suðurnesjunum myndu
verða það líka.“
Vildu fá alla með
„Þetta er í tíunda skipti sem Reykja-
nesbær heldur þessa viku og við
vildum fá öll sveitarfélög á Suður-
nesjum til þess að taka þátt í þessu
með okkur“, segir Hafþór Birgisson
íþrótta og tómstundafulltrúi í Reykja-
nesbæ. „Það er svo mikilvægt að fá
sem flesta til að taka þátt, tosa alla inn
í þetta og allir ættu að sjá tækifæri til
þess að gera eitthvað. Að sjálfsögðu
ætti eitthvað að vera um að vera allt
árið en það er ágætt að hefja veturinn
með krafti og setja svona viku af stað.“
Heilsa og forvarnir eru mjög vítt hug-
tak og flestir ef ekki allir eru farnir
að átta sig á því hvað heilsan skiptir
miklu máli. „Við erum svo heppin
að vera eitt stórt svæði hér á Suður-
nesjunum og ættum í raun og veru að
vinna meira saman, það er frábært að
allir séu að taka þátt í ár og heilsa og
forvarnir koma öllum við, óháð aldri
eða öðru“, segir Hafþór.
Reykjanesbær er heilsueflandi sam-
félag og hefur það verkefni gengið vel.
„Við viljum fá fleiri sveitarfélög inn
í þetta, hér í Reykjanesbæ eru leik-
skólarnir til dæmis heilsueflandi og
fóru nýlega að vinna með verkefnið
hugarfrelsi.“
Forvarnarvinnan skilar árangri
Hafþór segir að það sé alltaf verið að
vinna góða forvarnarvinnu en hún
sé ekki alltaf sýnileg, það sé mikil-
vægt að leyfa öllum að fylgjast með
því góða forvarnarstarfi sem fer fram
því sú vinna skili sér alltaf. Nú er
til dæmis stórt verkefni framundan
ekki bara hér á Íslandi heldur í öllum
heiminum, það er að sinna forvarnar-
starfi eldri borgara. „Við erum að
eldast eins og allur heimurinn og því
er mikilvægt að hlúa að heilsu og for-
vörnum eldri borgara.“
„Árangurinn sem hefur náðst í for-
varnarmálum á Suðurnesjum er mjög
góður, það er ekki hægt að líkja niður-
stöðum kannana saman núna og fyrir
nokkrum árum síðan, drykkja hefur
minnkað ásamt reykingum. Það er þó
stórt verkefni framundan því „veipið“
er orðið ansi vinsælt og við höfum
miklar áhyggjur af því hvernig sú
þróun er. Munntóbaksnotkun hefur
minnkað hjá ungu fólki sem er já-
kvætt og sýnir okkur hvað forvarnar-
starf hefur góð áhrif.“
Samstarf er mikilvægt
Björg Erlingsdóttir sviðsstjóri frí-
stunda- og menningarsviðs Grinda-
víkur segist vera mjög ánægð með
samstarf bæjarfélaganna í heilsu
og forvarnarvikunni. „Allt sem við
getum gert saman gerir hlutinn
stærri og veigameiri. Grindavík er
sterkur íþróttabær og þetta verður
mjög flott þegar allt kemur til alls.
Það er mikilvægt að fjölskyldur geri
eitthvað saman og verður það leiðar-
ljósið okkar, viljum að fólk njóti þess
að gera eitthvað saman. Handbókin
okkar kemur út bráðlega og í henni
verður margt fróðlegt að sjá.
Okkur lýst líka mjög vel á hugmynd-
ina um heilsueflandi samfélag eins og
Reykjanesbær er að gera, reynum að
gera þessa viku í þeim anda. Svona
dagar og vikur geta orðið spennandi
þegar við tökum okkur öll saman.“
Viljum fá sem flesta til að taka þátt
Fulltrúar sveitarfélaganna hittust til að
ræða málin fyrir Heilsu- og forvarnarvikuna
í Sandgerði á dögunum.
Frá vinstri: Guðbrandur, Stefán, Hafþór, Gunnhildur, Rut og Jóhann.
Heilsu- og forvarnarvika framundan á öllum Suðurnesjunum
Fimmtán árum síðar er drauma-
starfið orðið að veruleika
Kolbrún Garðarsdóttir birtist í 3. tölublaði Víkurfrétta þann 17. janúar 2002.
Þá hafði hún hafið störf sem afgreiðslustjóri ferðaskrifstofunnar SBK. Kolbrún
var þá valin „Maður vikunnar“ af Víkurfréttum og svaraði spurningalista fyrir
blaðið. Víkurfréttir höfðu samband við Kolbrúnu, nú 15 árum síðar, og báðu
hana að svara sama spurningalistanum. Í dag starfar Kolbrún sem héraðs-
dómslögmaður á lögmannsstofunni Völvu en ýmislegt fleira hefur breyst í lífi
hennar síðustu 15 árin.
Kolbrún 2002:
Nafn: Kolbrún Garðarsdóttir.
Fædd hvar og hvenær: 9. janúar
1967 í Keflavík.
Atvinna: Sölumaður hjá SBK travel.
Maki: Eyþór Eiðsson.
Börn: Arndís 13 ára, Sóldís 4 ára,
fósturbörn: Guðrún 17 ára,
Sigurður 10 ára.
Hvernig býrð þú?
Mjög vel.
Hvaða bækur
ertu að lesa
núna? L í fs-
gleði njóttu
e f t i r D a l e
Carnegie.
Hvaða mynd
er á músam-
ottunni? Grá
motta.
Uppáhalds spil:
Actionary.
Uppáhalds tímarit:
Gestgjafinn.
Uppáhalds ilmur: Blue Marine.
Uppáhalds hljóð: Hlátur.
Hræðilegasta tilfinning í heimi:
Óöryggi.
Hvað er það fyrsta sem þér kemur í
hug þegar þú vaknar á morgnana?
Að vekja hina fjölskyldumeðlimina.
Er rússíbani hræðilegur eða
spennandi? Hræðilegur.
Hvað hringir síminn oft? Misjafnt.
Uppáhalds matur: Sjávarfang hvers
konar.
Súkkulaði eða vanillu? Súkkulaði.
Finnst þér gaman að keyra hratt?
Já, stundum.
Sefur þú með tuskudýr? Nei.
Finnst þér óveður spennandi eða
hræðilegt? Spennandi.
Hver var fyrsti bíllinn þinn? Fiat
1982 árgerð.
Ef þú gætir hitt hvern sem er, hver
væri það? Njörð bróður.
Áfengur drykkur: Hvítvín.
Stjörnumerki: Steingeit.
Borðar þú stönglana af brokkolí?
Já.
Ef þú gætir unnið við hvað sem er,
hvað væri það? Lögfræði.
Ef þú mættir velja hárlit, hver væri
hann? Ljós.
Hvort er glasið hálftómt eða hálf-
fullt? Hálffullt.
Uppáhalds bíómyndir: Ítalskar.
Notar þú fingrasetningu á lykla-
borð? Já.
Hvað er undir rúminu þínu?
Verndarenglar mínir.
Uppáhalds talan: 9.
Kolbrún 2017:
Atvinna: Lögmaður á Valva lög-
menn.
Maki: Fráskilin.
Börn: Arndís 29 ára, Sóldís 20 ára,
stjúpbörn: Guðrún 32 ára og Sig-
urður 26 ára.
Hvernig býrð þú? Ennþá mjög
vel.
Hvaða bækur ertu að
lesa núna? Náðar-
stund eftir Hön-
nuh Kent.
Hvaða mynd er
á músamott-
u n n i ? R au ð
motta.
U p p á h a l d s
spil: Guillotine.
U p p á h a l d s
tímarit: Tímarit
lögfræðinga.
Uppáhalds ilmur:
Patchouli.
Uppáhalds hljóð: Hlátur.
Hræðilegasta tilfinning í heimi:
Vanmáttur.
Hvað er það fyrsta sem þér kemur í
hug þegar þú vaknar á morgnana?
Kaffi.
Finnst þér rússíbani hræðilegur
eða spennandi? Spennandi.
Hvað hringir síminn oft? Misjafnt.
Uppáhalds matur? Sjávarfang hvers
konar.
Súkkulaði eða vanillu? Súkkulaði.
Finnst þér gaman að keyra hratt?
Já, aðeins of gaman.
Sefur þú með tuskudýr? Nei.
Finnst þér óveður spennandi eða
hræðilegt? Spennandi.
Ef þú gætir hitt hvern sem er, hver
væri það? Njörð bróður.
Áfengur drykkur: Hendriks gin.
Borðar þú stönglana af brokkolí?
Já.
Ef þú gætir unnið við hvað sem er,
hvað væri það? Það sem ég sagði
fyrir fimmtán árum, lögmennsku.
Ef þú mættir velja hárlit, hver væri
hann? Ljós.
Er glasið hálftómt eða hálffullt?
Hálffullt.
Uppáhalds bíómyndir: Ævintýra-
myndir.
Notar þú fingrasetningu á lykla-
borð? Já.
Hvað er undir rúminu þínu?
Verndarenglarnir mínir. Þeir hafa
blessunarlega fylgt mér í gegnum
lífið.
Uppáhalds talan? 9.
Heillaður af Reykjanesinu
Iñigo Pedrueza Carranza heimsótti
Ísland í vor og ferðaðist meðal ann-
ars um Reykjanesið, fór í Bláa Lónið,
gekk Hópsneshringinn í Grindavík
og skoðaði Garðskagavita. Hann tók
margar fallegar myndir í ferðinni
og virðist hafa heillast af náttúru Ís-
lands og Bláa Lóninu.
Hann lýsir ferðinni sinni um Reykja-
nesið á einstakan hátt en þar segir
hann meðal annars að það hafi verið
ótrúleg tilfinning að finna kraftinn
í jörðinni og hvernig hún öskraði á
hann. Honum fannst líka sjóðandi
vatnið í jörðinni ótrúlegt sjónarspil.
Hann mælir með því að ferðamenn
skoði Reykjanesskagann áður en þeir
fara í Lónið til þess að undirbúa sig
betur fyrir Lónið sjálft.
Svona lýsir hann hluta af heimsókn
sinni í Bláa Lónið: „Tíminn stöðv-
ast og manni líður eins og maður
sé staddur í öðrum heimi. Þegar
maður lítur í kringum sig er þoka
búin að umlykja mann og steikjandi
hiti.“ Meðfylgjandi myndir eru frá
Facebook-síðu Iñigo.