Víkurfréttir - 21.09.2017, Page 14
14 fimmtudagur 21. september 2017VÍKURFRÉTTIR
Nafn: Helga Guðrún Sigurðardóttir.
Hver eru áhugamálin þín? Fótbolti.
Í hvaða skóla ertu? Holtaskóla.
Í hvaða bekk ertu og hvað ertu gömul? Ég er í 10. bekk og er 14
ára.
Hvað finnst þér best við það að vera í Holtaskóla? Líklegast
bekkurinn og vinir.
Ertu búin að ákveða hvað þú ætlar að gera þegar þú útskrifast
úr skólanum? Ég er búin að ákveða að fara í framhaldsskóla, en
ekkert sérstakt svo sem, bara að klára hann.
Ertu að æfa eitthvað? Ég er að æfa fótbolta.
Hvað finnst þér skemmtilegast að gera? Mér finnst lang skemmti-
legast að spila fótbolta.
Hvað finnst þér leiðinlegast að gera? Örugglega að
bíða því ég er svo óþolinmóð.
Hvað er skemmtilegasta fagið? En leiðinlegasta?
Skemmtilegasta fagið er íþróttir eða stærðfræði og
leiðinlegasta er danska.
Án hvaða hlutar geturðu ekki verið? Ég gæti ekki
lifað án fótbolta, símans míns og bolta.
„Ég vil láta eitthvað gott af mér leiða.
Ef ég get hjálpað einhverjum ungl-
ingum með það að líða betur þá er
ég rosaleg glöð,“ segir Gunnhildur
Gunnarsdóttir, en í byrjun sumars
var hún ráðin sem forstöðumaður
88 hússins og Fjörheima.
Gunnhildur, sem útskrifaðist fyrr
á árinu sem uppeldis- og mennt-
unarfræðingur, hefur alltaf sóst
í það að vinna með börnum. „Ég
var búin að vinna í fjögur ár sem
starfsmaður í Fjörheimum. Þegar
ég sá þetta starf svo auglýst fannst
mér það mjög spennandi, að fá að
vera sú sem skipuleggur og heldur
utan um starfsemina. Ég var búin að
fá smá reynslu sem forstöðumaður
frístundaheimilisins í Myllubakka-
skóla. Þar áttaði ég mig á því að ég
væri til í að vera yfirmaður og að fá
aðeins að koma inn með mínar hug-
myndir, hafa áhrif og bera ábyrgð,“
segir Gunnhildur.
Hún segir uppeldis- og menntunar-
fræðina hjálpa sér mikið í sínu starfi
og að það nám hafi kennt henni
mikið um það hvernig hún gæti bætt
sig sem einstakling. „Í þessu námi
var mikið val og ég tók það eiginlega
allt í tómstunda- og félagsmálafræði
og lærðu þar af leiðandi mikið um
félagsmiðstöðvar og ungmennahús.
Námið kenndi mér svo rosalega
mikið um samskipti við fólk og í
rauninni bara hvernig maður á að ná
árangri í daglegu lífi.“
Vilja að unglingarnir hafi gaman
Mikil og fjölbreytt starfssemi á sér
stað, bæði í 88 húsinu, sem er ung-
mennahúsið, og einnig í félagsmið-
stöðinni Fjörheimum. „Við hugsum
fyrst og fremst um skemmtana-
gildi. Við viljum að unglingarnir
komi hingað til að hafa gaman.
Svo leggjum við mikla áherslu á
forvarnir og í því samhengi finnst
mér mjög mikilvægt að við starfs-
mennirnir séum góðar fyrirmyndir.“
Gunnhildur sjálf vill leggja áherslu á
fræðslu um andlega líðan ungmenna
og fá skólanna í bænum í samstarf.
„Mig langar mjög mikið að tala um
þessa andlegu líðan, út af öllum
þessum fréttum um kvíða unglinga.“
Unglingarnir reka félagsmið-
stöðina
Hún segir mikilvægt fyrir unglinga
í nútímasamfélagi að gera eitt-
hvað uppbyggjandi þegar tæknin
sé svona mikil. „Unglingar hanga
rosalega mikið heima og tala saman
á netinu. Hér bjóðum við þeim að
nýta frítíma sinn á uppbyggilegan
hátt. Frístundir eru mikilvægar sem
forvarnir og í átt að því að lifa heil-
brigðum lífstíl.“
Í Fjörheimum er starfandi ungling-
aráð með 40 meðlimum, en þau sjá
mikið um það að skipuleggja starf
félagsmiðstöðvarinnar. „Við leggjum
mikla áherslu á lýðræði í starfinu.
Unglingarnir reka félagsmiðstöðina
og við starfsmennirnir erum í raun-
inni bara þeirra hjálparhönd. Út á
það gengur starfið hérna.“
Um það bil 40 ungmenni taka þátt í
starfinu á hverju kvöldi, þrátt fyrir að
stutt sé síðan starfið fór aftur af stað
eftir sumarið. Gunnhildur segir það
mikla bætingu og vill þakka starfs-
fólkinu sínu fyrir. „Við værum ekki
að ná svona góðum árangri án
þeirra. Þau eru rosalega dugleg
og áhugasöm.“
Markmið Gunnhildar sem for-
stöðumanns er að ná að virkja
krakkana og fræða þá um ýmis
málefni. „Svo lengi sem ég næ
góðri virkni í starfinu og finn að ég
er að hafa jákvæð áhrif þá er ég sátt.
Þetta er klárlega mitt svið, að vinna
með börnum og unglingum. Ég hef
gaman að því að eiga samskipti við
þau og starfa með þeim, fyrir mér er
það einhvers konar lífsfylling.“
Hægt er að kynna sér starfsemi
88 hússins og Fjörheima á Fa-
cebook.
-Gunnhildur Gunnarsdóttir er nýr forstöðu-
maður 88 hússins og Fjörheima
„Ef ég get hjálpað unglingum
að líða betur er ég glöð“
Uppáhalds matur: Lax.Uppáhalds tónlistarmaður: Shawn Mendes.
Uppáhalds app: Ekkert uppáhalds en nota
mest Snapchat og Instagram.Uppáhalds hlutur: Líklega bikar sem ég
vann í fótboltanum.Uppáhalds þáttur: Riverdale og Skam.
Gæti ekki lifað án fótbolta
FS-ingur: Elva Rún Æv-
arsdóttir.
Á hvaða braut ertu?
Fjölgreinabraut.
Hvaðan ertu og aldur?
Úr Keflavík og er 19
ára.
Helsti kostur FS? Það
er stutt að fara í skól-
ann.
Áhugamál? Ferðast.
Hvað hræðistu mest? Svona lítil
skordýr og að fljúga.
Hvaða FS-ingur er líklegur til þess
að verða frægur og hvers vegna? Páll
Orri sem stjórnmálamaður.
Hver er fyndnastur í skólanum?
Lilja Ösp.
Hvað sástu síðast í bíó? IT.
Hvað finnst þér vanta í mötuneytið?
Tyggjó og coke.
Hver er þinn helsti galli?
Ég get verið frek.
Hvaða þrjú öpp eru mest
notuð í símanum hjá þér?
Instagram, Snapchat og Mes-
senger.
Hverju myndir þú breyta ef
þú værir skólameistari FS?
Ég myndi hafa frjálsa mæt-
ingu.
Hvaða frasa eða orð notar þú
oftast? „Án djóks“ og „skilurðu“.
Hvernig finnst þér félagslífið í skól-
anum? Ágætt bara.
Hvert er stefnan tekin í framtíðinni?
Eftir FS ætla ég allavega að byrja á því
að vinna og svo kannski í snyrtifræði.
Hver er best klædd/ur í FS? Helgi
Líndal og Rósmarý Kristín.
Elva Rún er FS-ingur vikunnar
Eftirlætis-
Kennari: Anna Taylor, hún er „fave“.
Fag í skólanum: Spænska.
Sjónvarpsþættir: Friends.
Kvikmynd: The conjuring.
Hljómsveit/tónlistarmaður: The
Weekend.
Leikari: Tom Hanks.
Vefsíður: Netflix.
Flíkin: Kápa frá 66°norður.
Skyndibiti: Villi.
Hvaða tónlist/lag fílarðu í laumi
(gulity pleasure)? Ég á ekkert guilty
pleasure, mér er skítsama að fólk viti
á hvað ég hlusta.
Orri Guðjónsson, 19 ára:Það er gott að chilla á Studio 16 og hlusta á tónlist þar. Svo eru beikonborgararnir mjög góðir bæði á Olsen Olsen og Lang-best. Bernaise sósan á Langbest er líka geggjuð. Cafe Petite er líka mjög kósý staður.
FS-ingar mæla með…
Dagný Halla
Sigrún Birta
Orri Guðjóns
Sigrún Birta Eckard, 17 ára:
Chai Latte á Kaffi Keflavík er
geggjað, það besta í heimi.
Ég mæli með því að fara á
rúntinn á Hafnargötunni og
kaupa sér ís á Ungó. Svo
er kjúklingasalatið á Lang-
best mjög gott.
Dagný Halla Ágústsdóttir, 17 ára:
Ég mæli algjörlega með hár-
greiðslustofunni Háráttu. Þær
sem vinna þar eru algjörir snill-
ingar og það er svo heimilislegt
að vera þar. Þegar ég fer á Ráð-
húskaffi fæ ég mér alltaf kaffi og
kleinuhring, svo er besti bröns í
heimi á Kaffi Keflavík. Ég mæli
með því að kaupa sér
ís í Ungó og
l a b b a s v o
strandlengj-
una.
PI
PA
R\
TB
W
A
-S
ÍA
Stærð: 391 m2
Byggt: 1960
Tegund: Atvinnuhúsnæði
Húsinu fylgir 2.626 m2 lóð
Fasteignamat: 9.450.000 kr.
Fasteignir til sölu á Ásbrú
Á innan við áratug hefur byggst upp á Ásbrú, fyrrum varnarsvæðinu við Keflavíkurflugvöll, þróttmikið og litríkt
samfélag með öfluga menntastofnun, fjölda spennandi fyrirtækja, gróskumikla nýsköpun og blómstrandi mannlíf.
Hröð uppbygging í gagnaveraiðnaði og örþörungarækt, ásamt nálægð við Keflavíkurflugvöll gera Ásbrú að góðu
vaxtarsvæði til framtíðar. Þú getur skoðað allar eignir sem félagið hefur til sölu á kadeco.is
AÐALTRÖÐ 4
Þróunarfélag Keflavíkurflugvallar | Sími 425 2100 | www.kadeco.is
Eignin verður til sýnis mánudaginn 25. september næstkomandi milli kl. 13–15. Tilboð óskast
eigi síðar en kl. 11 föstudaginn 29. september. Nánari upplýsingar á kadeco.is