Víkurfréttir - 21.09.2017, Síða 15
15fimmtudagur 21. september 2017 VÍKURFRÉTTIR
Reykjanesbær:
- Alla virka daga frá 20. september til 6. október
frá kl. 08:30 til 15:00.
- Alla virka daga frá 9. október til 27. október
frá kl. 08:30 til 19:00.
- Laugardaginn 14. október frá kl. 10:00 til
12:00, laugardaginn 21. október og á
- kjördag 28. október, frá kl. 10:00 til 14:00
Grindavík:
- Alla virka daga frá 20. september til 20.
október frá kl. 08:30 til 13:00.
Þó verður lokað á skrifstofunni dagana
27. september til 6. október.
- Dagana 23. til 27. október frá kl. 08:30 til
18:00.
Á sama tíma fer fram atkvæðagreiðsla utan
kjörfundar um tillögu sveitarfélaganna Garðs
og Sandgerðisbæjar um sameiningu sveitar-
félaganna sem fram fer 11. nóvember 2017.
Eftir 28. október verður þó einungis unnt að
greiða atkvæði utan kjörfundar á opnunartíma.
Kjósendur skulu framvísa gildum skilríkjum
við kosninguna.
Atkvæðagreiðsla á sjúkrahúsum og hjúkrunar-
og dvalarheimilum aldraðra fer fram 23. til 27.
október nk. skv. nánari auglýsingu á viðkomandi
stofnunum.
Kjósanda, sem ekki getur sótt kjörfund á kjör-
degi vegna sjúkdóms, fötlunar eða barnsburðar,
er heimilt að greiða atkvæði í heimahúsi nema
hann eigi kost á að greiða atkvæði á stofnun.
Ósk um að greiða atkvæði í heimahúsi skal vera
skrifleg og studd vottorði lögráða manns um
hagi kjósandans og hafa borist kjörstjóra eigi
síðar en kl 16:00 þriðjudaginn 24. október 2017.
Slík atkvæðagreiðsla má ekki fara fram fyrr en
þremur vikum fyrir kjördag.
AUGLÝSING UM ATKVÆÐA-
GREIÐSLU UTAN KJÖRFUNDAR
Sýslumaðurinn á Suðurnesjum
20. september 2017
Ásdís Ármannsdóttir
Utankjörfundaratkvæðagreiðsla vegna alþingiskosninga, sem fram eiga að fara 28. október 2017, er
hafin á skrifstofum sýslumannsins á Suðurnesjum að Vatnsnesvegi 33, Reykjanesbæ og Víkurbraut
25, Grindavík og verður sem hér segir:
■ Kaupfélag Suðurnesja og Heklan, atvinnuþróunarfélag Suðurnesja hafa
gert með sér samkomulag um sameiginlega fræðsludagskrá í vetur sem
miðar að því að auka þekkingu og samkeppnisfærni á Suðurnesjum.
Boðið verður upp á fjölbreyttar kynn-
ingar, námskeið og vinnustofur sem
henta jafnt frumkvöðlum, fyrirtækjum
í nýsköpun, fyrirtækjum í ferðaþjón-
ustu, samtökum og almenningi sem
vill bæta við sig þekkingu.
„Eitt af markmiðum Kaupfélags
Suðurnesja er að vera hreyfiafl fram-
fara. Með fjölbreyttu fræðslustarfi
fyrir almenning, samtök og atvinnulíf
stuðlum við að sterkara samfélagi.
Verum minnug þess að góðir hlutir
gerast vegna skipulags en slæmir
hlutir yfirleitt af sjálfu sér,“ segir Skúli
Skúlason, formaður Kaupfélagsins.
Undir þetta tekur Dagný Gísladóttir
verkefnastjóri hjá Heklunni og bætir
við að kynningarnar skapi jafnframt
tækifæri á samtali og tengslamyndun
sem sé ekki síður mikilvægt.
Enginn aðgangseyrir er á fræðslu-
fundina sem haldnir verða í hádeg-
inu á þriðjudögum í fundarsal Kross-
móa og boðið verður upp á léttar
veitingar.
Hægt verður að nálgast upplýsingar
um dagskrána á heklan.is og ksk.is og
á samfélagsmiðlum.
Sameiginleg fræðsla og kynning hjá Kaupfélaginu og Heklunni
Skúli Skúlason og Dagný Gísladóttir. VF-mynd/pket.
Stofna félag með ódýrt leiguhúsnæði
Stofnfundur húsnæðissamvinnufélagsins „Íbúðafélag Suðurnesja hsf.“,
sem er óhagnaðardrifið leigufélag, var haldinn í síðustu viku. Félags-
menn leigufélagsins munu geta leigt húsnæði á lægra verði en gengur og
gerist á almennum markaði. Um er að ræða langtíma leiguréttaríbúðir en
á hinum Norðurlöndunum eru þær ca. 20% af húsnæðismarkaði.
Þórólfur Júlían Dagsson, einn af
aðalmönnum leigufélagsins, sagði
á fundinum að drifkraftur félags-
ins væri húsnæðisskortur í Reykja-
nesbæ þar sem fjölskyldur séu eða
eigi von á að missa húsnæði og hafi
ekkert húsnæðisöryggi, sem séu
mannréttindi. Þá fór Hólmsteinn
A. Brekkan yfir stöðuna í löndum
í kringum okkur þar sem um 20%
húsnæðismarkaðsins eru svipuð,
svokölluð „non profit félög“ eða fé-
lög sem eru rekin með engum hagn-
aðarsjónarmiðum.
Aðalmenn félagsins eru þau Einar
M. Atlason, Jóhann Már Sigur-
björnsson, Margrét Sigrún Þórólfs-
dóttir, Ragnhildur L. Guðmunds-
dóttir og Þórólfur Júlían Dagsson,
en varamenn þau Eiríkur Barkarson,
Eyrún Sif Rögnvaldsdóttir, Hrafn-
kell Brimar Hallmundsson, Sigríður
Karólína Hrannardóttir og Sigrún
Dóra Jónsdóttir.
Rekstur sveitarfélagsins í góðu samræmi þrátt fyrir fólksfjölgun
■ Ágætis jafnvægi er á rekstri bæjarsjóðs sveitarfélagsins Voga að sögn Ás-
geirs Eiríkssonar, bæjarstjóra, en hann segir reksturinn í góðu samræmi við
fjárhagsáætlun ársins í pistli sínum á heimasíðu Voga.
„Segja má að á tekjuhliðinni hafi ríkt
óvissa um útsvars tekjurnar, ekki síst í
ljósi þess að íbúum hefur farið fjölg-
andi og talsverðar kjarabætur verið á
vinnumarkaði. Fjárhagsáætlun ársins
stenst í öllum megin dráttum, enn
sem komið er,“ segir Ásgeir en síðustu
þrjú ár hefur íbúum sveitarfélagsins
Voga fjölgað um 12%.
Leikfélagið leitar að þátttak-
endum fyrir Dýrin í Hálsaskógi
■ Leikfélag Keflavíkur mun í vetur setja upp sýninguna Dýrin í Hálsa-
skógi en stefnt er að því að frumsýna í byrjun nóvember. Leikfélagið leitar
að börnum sem fædd eru 2005 til 2008 sem hafa mikinn áhuga á söng,
dansi og leiklist til að taka þátt í leikritinu, en hægt er að skrá sig hér.
Prufurnar fara fram þann 18. sept-
ember næstkomandi í Frumleik-
húsinu að Vesturbraut 17 en leik-
stjóri verksins er Gunnar Helgason.
Nánari upplýsingar um prufurnar
má finna á Facebook-síðu Leikfélags
Keflavíkur.
■ Helgi Hjaltalín Eyjólfsson verður
með leiðsögn um sýningu sína
Horfur sunnudaginn 24. septem-
ber næstkomandi kl. 15, en sýningin
var opnuð á Ljósanótt í sýningarsal
Listasafns Reykjanesbæjar í Duus
Safnahúsum. Aðgangur er ókeypis
og allir velkomnir.
Á þessari sýningu reynir (jaðar-
settur) miðaldra kalmaður stað-
settur í Höfnum, að útskýra fyrir sér
ástand heimsins og hverjar horfunar
séu. Í gegnum miðla myndlistarinnar
þreifar hann á og gerir tilraun til að
skilja og læra meira um þessa ver-
öld sem við byggjum. Helgi Þorgils
Friðjónsson skrifar í sýningarskrá og
segir m.a.: „Þrátt fyrir fegurðina og
drifkraftinn og framtíðarsýnina, jafn
undarlegt og það virðist, er líka undir-
liggjandi ógn. Ekki á þessum stað
sýnist mér, en í röngu samhengi, eins
og sagan sýnir, geta jafnvel fegurstu
hugmyndir orðið ógnvekjandi. Jafnvel
frelsishugmyndir er hægt að steypa
í sjálfhverft fast mót. Frelsi, jafnrétti
og bræðralag, getur verið steypt í
mót sérhópa. Þarna einhvers staðar
er gegnumgangandi þráður í verkum
Helga. Kyrrstaða milli ógnar, sögu og
fegurðar.“
Helgi er fæddur árið 1968 og eftir
nám við Myndlista- og handíðaskóla
Íslands stundaði hann nám við Kun-
stakademie Dusseldorf, AKI í Hol-
landi og San Francisco Art Institute.
Hann hefur verið virkur í sýningar-
haldi jafnt hér heima sem erlendis
síðan á námsárunum og hefur sinnt
ýmsum störfum tengdum myndlist.
Sýningin stendur til 5. nóvember og
opið er alla daga frá kl. 12 til 17.
Karlakór Keflavíkur að hefja
vetrarstarfið - opnar æfingar
■ Karlakór Keflavíkur er nú að hefja
63. starfsár kórsins. Kórinn hefur
endurráðið Jóhann Smára Sævars-
son sem stjórnanda 2017-2018 en
hann stýrði kórnum starfsárið 2016-
2017.
Margt spennandi er framundan hjá
kórnum svo sem heimsókn annarra
kóra og þátttaka í Allra heilagra messu
í Keflavíkurkirkju. Þá eru áform um
heimsókn kórsins til annarra landa á
dagkrá í vetur.
Kórinn býður áhugasömum söng-
mönnum í heimsókn á opnar æfingar
í september.
Æfingar eru á mánudögum og
fimmtudögum frá kl. 19:30 til kl.
21:30.
Horfur
- Listamannsleiðsögn á sunnudaginn í Duus Safnahúsum