Víkurfréttir - 21.09.2017, Qupperneq 18
„Það er frábær tilfinning að verða meistari en Njarðvík hefur
ekki unnið Íslandsmeistaratitil frá árinu 1981,“ sagði Rafn
Vilbergsson, þjálfari Njarðvíkur, eftir að Njarðvíkingar gull-
tryggðu sér Íslandsmeistaratitilinn síðastliðinn laugardag.
Njarðvík er komið í Inkasso-deildina í knattspyrnu karla en
liðið er sem stendur í efsta sæti 2. deildar með 47 stig þegar
einn leikur er eftir í deildinni. Næsta lið er átta stigum á eftir
þeim í öðru sæti. Guðni Bergsson, formaður KSÍ, afhenti Njarð-
víkingum bikarinn í lok leiks Njarðvíkur og KV í ekta íslenskum
aðstæðum, roki og rigningu.
Hverju eigið þið þennan árangur að
þakka?
„Markmiðasetningin okkar var á
hreinu frá upphafi. Við ætluðum að
komast upp og þá var næst á dag-
skrá að setja saman góðan hóp og
það hafðist. Kjarninn var til staðar
frá því á síðustu leiktíð og mikið af
sömu leikmönnunum. Við fengum
líka góða styrkingu inn í liðið, allt
hefur gengið upp og við endum á því
að vera lang efstir í deildinni sem er
frábært.“
Gekk allt upp í sumar?
„Við byrjuðum á því að gera tvö jafnt-
efli en eftir það höfum við verið á
góðu skriði. Núna erum við komnir
með tólf leiki í röð án þess að tapa,
það er nokkuð gott.“
Inkasso-deildin er verulega sterk eins
og við höfum séð í sumar. Hvernig
ætlið þið að takast á við nýja verk-
efnið?
„Við höfum séð það síðustu ár að lið
sem komast upp um deild hafa lent
í veseni en við þurfum bara að vera
klárir í það verkefni. Stemningin í
hópnum okkar er mjög góð, liðið
hefur beðið eftir því í mörg ár að
komst upp og í ár tókst okkur það.“
Heldur þú að þú þurfir
að styrkja hópinn eitt-
hvað fyrir næsta sumar
og kemur þú til með að
þjálfa liðið á næsta ári?
„Já, við Snorri verðum
áfram með l iðið og
munum v inna með
þennan hóp. Ég býst
ekki við öðru en að
flestir verði áfram. Við
þurfum kannski aðeins
að bæta við þann hóp
sem við erum með nú
þegar og þá verðum við
í toppmálum.“
VF-myndir/pket.
Íþróttir á Suðurnesjum fimmtudagur 21. september 2017
Sigurjón og Björn Lúkas
sigursælir í MMA í Skotlandi
Björn Lúkas Haraldsson og Sigur-
jón Rúnar Vikarsson, bardaga-
menn frá Mjölni, unnu báðir bar-
daga sína í MMA á Headhunters
bardagakvöldinu í Skotlandi sem
fram fór síðastliðinn laugardag.
Sigurjón keppti sinn fyrsta MMA-
bardaga, en hann keppti við Ross
Mcintosh. Bardagann sigraði Sigur-
jón eftir klofna dómaraákvörðun.
Sigurjón byrjaði að æfa með Mjölni
árið 2015, en fyrir það hafði hann
æft box og varð Íslandsmeistari í
boxi árið 2011. Þar að auki er hann
með blátt belti í brasilísku jiu-jitsu.
Björn Lúkas keppti sinn annan
MMA-bardaga og sigraði hann
Georgio Christofi með uppgjafar-
taki í 1. lotu. Þess má geta að Björn
hefur sigrað báða andstæðinga sína
í fyrstu lotu. Björn hefur mikla
keppnisreynslu úr júdó, taekwondo
og jiu-jitsu.
Sigurjón Rúnar fagnar sigri.
Björn Lúkas í búrinu.
■ Anita Lind Daníelsdóttir leikmaður Keflavíkur, var fimmta markahæst í
1. deild kvenna í knattspyrnu í sumar. Hún spilaði með U-19 landsliðinu í
sumar og skoraði meðal annars mark á móti Svartfjallalandi. Við spurðum
Anitu um fótboltasumarið og hver framtíðarplön hennar séu.
Hvernig fannst þér sumarið ganga
hjá ykkur?
„Mér fannst sumarið ganga vel. Við
áttum góða leiki og börðumst en það
eru sumir leikir sem við hefðum geta
gert betur en þannig er bara fótbolt-
inn, það gengur ekki alltaf allt upp.“
Var hópurinn þéttur í sumar?
„Það er alltaf stemning hjá okkur.
Liðsheildin eykst alltaf eftir það sem
líður á sumarið svo við erum allar
góðar vinkonur og styðjum hvor aðra
út í eitt.“
Þú skoraðir mark með U-19 lands-
liði Íslands gegn Svartfjallalandi,
hvernig tilfinning var það?
„Það er alltaf gaman að skora og sér-
staklega fyrir landsliðið. Það er alltaf
heiður að fá að taka þátt í landsliðs-
verkefnum.“
Hvað ert þú að fara að gera í vetur?
„Í vetur mun ég halda áfram að bæta
mig sem leikmann og setja mér ný
markmið fyrir næsta tímabil.“
Ertu með einhver framtíðarplön í
sambandi við fótboltann?
„Já, ég ætla að halda áfram í boltanum
og halda stöðunni minni með U-19
ára landsliðinu. Ég stefni líka á það
að fara í háskóla til Bandaríkjanna til
þess að spila fótbolta og stunda nám.“
Ertu með einhverja skemmtilega
fótboltasögu frá því í sumar fyrir
okkur?
„Þegar við áttum útileik á móti
Hömrunum lögðum við eldsnemma
af stað og á Borgarnesi bilaði rútan
um kl. 8 um morguninn. Við þurftum
að bíða eftir nýrri rútu sem var frá
árinu 1970 en Sveindís tók karíókí
fyrir okkur í hljóðkerfinu sem vakti
mikla lukku. Þetta lið er það besta
sem ég veit um. Við hlæjum endalaust
saman og það er alltaf mikið fjör hjá
okkur á æfingum og á leiðinni í leiki.“
Ætla að halda áfram að bæta mig
●● segir●Anita●Lind●leikmaður●Keflavíkur●í●1.●deild●kvenna
Anita Lind og liðsfélagar
leggja á ráðin í leik í sumar.
-Njarðvík komst upp í Inkasso-deild karla í knattspyrnu
Fyrsti Íslandsmeistaratitillinn síðan 1981
Andri Fannar hampar 2. deildar bikarnum,
félagar hans fagna fyrir aftan hann.
Meistaralið Njarðvík
ur í 2. deild
Íslandsmótsins í kna
ttspyrnu.
Allt í kringum félagið fór á annað stig
■ Andri Fannar Freysson, fyrirliði Njarðvíkur, segir að þetta sé ansi
skemmtilegt og góð tilfinning að hafa náð að komast upp í Inkasso-
deildina.
Hvernig er sumarið búið að vera
hjá ykkur?
„Allt í kringum félagið fór á annað
stig og stemningin er búin að vera
frábær, nema kannski fyrir utan
nokkur skakkaföll í ferðalögum,“
sagði fyrirliðinn kátur.
Hvernig leggst Inkasso-deildin í
þig?
„Ég hef spilað þarna einu sinni áður
og það er stórt stökk að fara þangað
en það verður bara meiri áskorun
fyrir okkur að leggja harðar að
okkur, fá kannski einhverja nýja inn
og koma tilbúnir á næsta ári. Það
er allavega mikil spenna í mann-
skapnum eftir sigurinn og vera
komnir upp.“