Víkurfréttir - 21.12.2017, Síða 4
4 FRÉTTIR Á SUÐURNESJUM f immtudagur 21. desember 2017 // 50. tbl. // 38. árg.
Niðurstöður á sýnatöku í jarðvegi við Flugvelli sýndu að ekki var um verulega
mengaðan jarðveg að ræða og engin þrávirk efni fundust. Samanburður
var m.a. gerður á öðrum jarðvegi innan og utan bæjarmarka. Áfram verður
fylgst með jarðveginum á svæðinu, fyrstu umsóknir um framkvæmdir á
svæðinu liggja nú þegar hjá byggingafulltrúa Reykjanesbæjar.
Þegar vinna hófst við gerð bygginga-
lóða og gatna á Flugvöllum í Reykja-
nesbæ, hverfi ofan Iðavallar sem ætlað
er verslun og þjónustu kom í ljós mikið
magn af úrgangi á svæðinu. Tjara fannst
í litlu mæli á afmörkuðum stað ásamt
því að stór hluti úrgangs á svæðinu
tengdist sjósókn og byggingarfram-
kvæmdum frá því Eyjahverfið var að
byggjast upp. Verkfræðistofan VERKÍS
sá um að hafa umsjón með mælingum
á svæðinu og voru jarðvegssýni tekin
á mörgum stöðum. Heilbrigðiseftirlit
Suðurnesja (HES) er einnig í samstarfi
en HES hefur eftirlit með mengunar-
svæðum á Suðurnesjum.
Bakgrunnsýni voru tekin ásamt jarð-
vegssýnum á Flugvöllum til að meta
náttúrulegan styrk málma í jarðveg-
inum á öðrum svæðum innan bæjar-
félagsins og einnig á öðrum stöðum
til samanburðar, tekin voru sýni á
Miðnesheiðinni og Vatnsleysuströnd.
Niðurstöður sýndu að jarðvegurinn
á svæðinu var ekki verulega meng-
aður og engin þrávirk efni fundust
á svæðinu sem skiptir mestu máli.
Skipulagsstofnun staðfesti að flutn-
ingur á uppúrtekt væri ekki háð mati
á umhverfisáhrifum eftir að niður-
stöður rannsókna lágu fyrir og gaf
HES heimild til flutnings af efninu.
Áfram verður fylgst með þegar jarð-
vegur verður numinn af svæðinu og
þegar lóðarframkvæmdir hefjast
mun verða stíft eftirlit með fram-
kvæmdum. Vitað er hvar tjara gæti
leynst og verður það svæði sérstaklega
vaktað þegar framkvæmdir hefjast á
því svæði. Lokaúttekt hefur farið fram
á Flugvöllum og er nú svæðið klárt til
byggingarframkvæmda.
FLUGVELLIR TILBÚNIR TIL BYGGINGAFRAMKVÆMDA
- byggingafulltrúi kominn með nokkrar umsóknir á borð til sín
orft yrir Aðalgötu og Flugvelli. Gatan Flugvellir nær
frá Aðalgötu og yfir á Þjóðbraut. Svæðið er skipulagt
fyrir verslun og þjónustu en þarna mun einnir rísa
ný slökkvistöð. Fremst er ný bensínstöð ÓB við
Aðaltorg.
Nýr Páll Jónsson GK 7 til Vísis hf í Grindavík
Útgerðarfyrirtækið Vísir hf í Grinda-
vík skrifaði á dögunum undir samn-
ing við skipasmíðastöðina Alkor í
Gdansk í Póllandi vegna smíðar á
nýju línuskipi fyrir fyrirtækið. Nýja
skipið verður 45 metra langt og 10,5
metrar að breidd, þrjú þilför verða
á því og verður það búið Catepillar
aðalvél. Skipið tekur um 420 kör
í lest og verða fjórtán eins manns
klefar í skipinu. Smíði þess hefst í
janúar á næsta ári og áætlað er að
smíðum ljúki um mitt ár 2019.
Flugvallarbraut 701 | 235 Reykjanesbæ | 421-8070 | www.sporthusid.is
GLEÐILEGA
HÁTÍÐ
HITTUMST HRESS Á NÝJU ÁRI
FORRÉTTIR
Síldarsalöt, þrjár tegundir
Reyktur lax með piparótarsósu
Grafinn lax með sinnepssósu
Sjávarréttasalat
Heitreyktur lax með kornasinnepshjúp
Villibráðarpaté
AÐALRÉTTIR
Kæst skata og tindabikkja
Skötustappa
Siginn fiskur
Plokkfiskur
Saltfiskur
Hangikjöt með uppstúf
MEÐLÆTI
Hnoðmör, hamsatólg, lauksmjör,
hrásalat, laufabrauð, rúgbrauð,
kartöflusalat, grænar baunir, rauðkál
EFTIRRÉTTUR
Ris a la mande
SKÖTUHLAÐBORÐ
Í Officeraklúbbnum 23. desember frá 11.30 til 14.00
Verð kr. 3.950,-
Allir velkomnir
Borðapantanir í síma 421-4797