Víkurfréttir - 21.12.2017, Blaðsíða 40
40 MANNLÍF Á SUÐURNESJUM f immtudagur 21. desember 2017 // 50. tbl. // 38. árg.
Björg er á leiðinni í háloftin.
Hólmfríður Guðmundsdóttir, fyrrverandi heimilisfræðikennari í Holta-
skóla í Keflavík var með heppnina með sér þegar Jólalukku-skafmiði
með nafni hennar var dreginn úr kassanum í þriðja úrdrætti Jólalukku
Víkurfrétta. Hólmfríður fékk stærsta vinninginn, iPhone X.
Það var ekkert jafnrétti í úrdrætti vikunnar því aðeins komu upp nöfn kvenna.
Ella Hlöðversdóttir í Sandgerði fékk næst stærsta vinninginn, 120 þús. kr.
gjafabréf í Nettó í Njarðvík.
Þriðji vinningurinn, Icelandair gjafabré,f kom í hlut Særúnar Ólafsdóttur,
Vatnsnesvegi 29 í Keflavík. Fimmtán þús. kr. gjafabréf í Nettó komu á nöfn
þeirra Elínar Þorsteinsdóttur, Skipastíg 10 og Albínu Unndórsdóttur, Hreiðar-
hrauni 8 í Grindavík.
Lokaúrdrátturinn verður á Aðfangadagsmorgun og þar verður dregið um
annan iPhone X, 120 þús. kr. gjafabréf, Icelandair ferðavinning, tvo 15 þús.
Kr. gjafabréf í Nettó, Grindavík auk tuttugu konfektkassa.
Vinningshafar í údráttum 1-3 í Jólalukku VF 2017:
iPhone X frá Nettó í Njarðvík:
Hólmfríður Guðmundsdóttir, Skólavegi 46, Keflavík
120 þús. Kr. gjafabréf í Nettó í Njarðvík:
Ella Hlöðversdóttir, Breiðhóli 27 í Sandgerði
Icelandair gjafabréf frá VF
Særún Ólafsdóttir, Vatnsnesvegi 29, Keflavík
Halldóra Kristinsdóttir, Mávabraut 1a, Keflavík
Geirdís B. Oddsdóttir, Kjólalandi 5, Garður
15.000 kr. gjafabréf frá NETTÓ Grindavík :
Elín Þorsteinsdóttir, Skipastíg 10, Grindavík
Albína Unndórsdóttir, Heiðarhrauni 8, Grindavík
Sigríður Jónsdóttir, Laut 26. Grindavík
Álfheiður H. Guðmundsdóttir, Arnarhraun 18 Grindavík
Ásta Kristín Davíðsdóttir, Goðasalir 27, Kópavogur
Margrét Karlsdóttir, Heiðarhrauni 18, Grindavík
Eyrún B Eyjólfsdóttir, Norðurvör 2, Grindavík
Torfey Hafliðadóttir, Leynisbraut 12, Grindavík
15.000 kr. gjafabréf frá NETTÓ Njarðvík :
Ísak Örn Þórðarson, Kirkjuvegi 10, Keflavík
Gunnhildur Pétursdóttir, Skógarbraut 922a, Ásbrú
Fanney Halldórsdóttir, Holtsgötu 39, Sandgerði
Sævar Þór Egilsson, Lindartúni 7, Garði.
OPNUNARTÍMAR UM
JÓL OG ÁRAMÓT
Starfstöðvar Kölku í Helguvík, Grindavík og Vogum verða lokaðar á aðfangadag,
jóladag, annan í jólum, gamlársdag og nýársdag.
Að öðru leyti verða starfstöðvar fyrirtækisins opnar eins og venjulega.
Sjá nánar á heimasíðu fyrirtækisins: www.kalka.is
Við óskum Suðurnesjamönnum gleðilegra jóla og farsældar á nýju ári.
Þökkum ánægjuleg samskipti á árinu sem er að líða!
Jón Björn Ólafsson er fæddur og uppalinn Njarð-
víkingur, en hann starfar hjá íþróttasambandi
fatlaðra og heldur fast í gamlar jólahefðir.
Hann bakar ekki smákökur fyrir jól og klárar
ekki jólagjafirnar fyrr en á Þorláksmessu.
Jón Björn er kvæntur Hilmu Hólmfríði Sig-
urðardóttur og saman eiga þau þrjár dætur.
Ertu mikið jólabarn? Í saman-
burði við alvöru jólabörn þá næ
ég rétt svo upp í meðalhófið.
Annars hef ég mjög gaman
af þessum árstíma og skreyti
svona líka ágætlega, ekkert of
mikið en nóg samt.
Heldur þú fast í gamlar jóla-
hefðir? Íhaldið er sterkt í mér
á jólunum, held fremur fast í
það sem ég kann vel við og við
fjölskyldan. Nokkru fyrir jól
eigum alltaf stóran og flottan
dag við að skera út og steikja
laufabrauð. Þú heldur ekkert
jól án laufabrauðsins. Í seinni
tíð eftir að menn lögðu það á sig
að kunna ölgerð hér á landi þá
hefur jólabjórsmökkun komið
inn, sú iðja er í miklu uppáhaldi
hjá mér. Gaman að setja á sig
dómarahatt og upplifa bragðið
af striti annarra.
Hvað er ómissandi á jólunum?
Umburðarlyndi.
Hvað finnst þér skemmti-
legast um jólahátíðina? Ég
sakna þess að vera ekki á jóla-
kortarúntinum með afa mín-
um og nafna á aðfangadag en
besti og skemmtilegasti hluti
hátíðarinnar er auðvitað þessi
tími sem maður fær með ást-
vinum sínum.
Bakar þú smákökur fyrir jólin?
Nei, get ekki stært mig af því.
Eiginkona mín bakar alltaf lag-
tertu fyrir jólin, sú lagterta er
í mikilsvirtum auðhringum og
stöku bókaklúbb talin ein allra
besta hátíðarkræsing sem völ
er á í sýslunni.
Hvenær klárar þú að kaupa
jólagjafirnar? Verkinu lýkur
eiginlega aldrei fyrr en á Þor-
láksmessu, hvort sem það er
að yfirlögðu ráði til að kom-
ast niður í bæ á röltið eða illu
heilli sökum tímastjórnunar-
vanda. Hvort sem er þá er alltaf
gaman að fara á röltið niður í
bæ á Þorláksmessu.
Hvenær setur þú upp jólatréð?
Við fjölskyldan höfum verið
að koma því haganlega fyrir
um það bil tveimur til þremur
vikum fyrir jól.
Eftirminnilegasta jólagjöf sem
þú hefur fengið? Það er æðislegt
að fá jólagjafir, get eiginlega
ekki gert upp á milli þeirra.
Nintendo-leikjatölva hér í denn
skoraði mjög hátt.
Hvenær eru jólin komin fyrir
þér? Þegar hún Hilma mín
dregur fram einhverja lífseig-
ustu fjárfestingu okkar hjóna
og setur jólageisladiskinn í
gang þar sem Kenny Rogers
og Dolly Parton fara mikinn.
Umburðarlyndi
ómissandi á jólunum
Alþjóðlega listahátíðin Ferskir
vindar er nú haldin í Garðinum í
fimmta sinn en hátíðin er hafin
og mun standa frá laugardeginum
16. desember til sunnudagsins
14. janúar. Þema hátíðarinnar er
Draumar.
Þessa dagana eru listamennirnir,
hvaðanæva úr
heiminum, að
koma í Garðinn
og munu dvelja
þar, skapa list
og auðga mann-
líf bæjarins.
Að hátíðinni,
eins og fyrri hátíðum, stendur Mi-
reya Samper, listrænn stjórnandi og
eigandi Ferskra vinda, í samstarfi
við Sveitarfélagið Garð og fjölda
styrktaraðila.
Listamenn hátíðarinnar verða fjöru-
tíu talsins og má finna upplýsingar
um hvern listamann á heimasíðu
Ferskra vinda, http://fresh-winds.
com/.
Í hópnum eru fimm íslenskir lista-
menn en þau eru Brynhildur Þorgeirs-
dóttir myndhöggvari, Bjarni Sigur-
björnsson málari, Ragnheiður Guð-
mundsdóttir þráðlistakona (textíl),
Arna Valsdóttir kvikmyndalistakona
(video) og Hrafn A. Harðarson ljóð-
skáld og íbúi í Garði.
Listamennirnir verða um allan bæ
að skapa listaverk sín sem verða svo
hluti af sýningu hátíðarinnar, en sum
þeirra munu væntanlega standa um
ókomna tíð í Garði. Fjöldi listaverka
frá fyrri hátíðum Ferskra vinda
skreyta nú Sveitarfélagið Garð og
fjölgar þeim væntanlega enn á þess-
ari hátíð, segir á heimasíðu Sveitar-
félagsins Garðs.
Opnunarhátíð sýninga verður laugar-
daginn 6. janúar í sýningarsal á bæjar-
skrifstofu Garðs, að Sunnubraut 4, og
helgarnar 6. til 7. og 13. til 14. janúar
verða í boði rútuferðir á milli lista-
verka og sýninga hátíðarinnar, þar
sem listamenn taka á móti gestum
og segja frá verkum sínum.
Listunnendur og allir þeir sem að-
hyllast hugmyndaríki, sköpun og
opinn huga eru hvattir til að koma
og fylgjast með, taka þátt og njóta
skemmtilegs viðburðar.
Ferskir vindar blása
í fimmta sinn í Garði
Ebba
Jóhannsdóttir
og Birna systir
hennar voru
ánægðar með
vinninginn.
Sautján heppnir Suðurnesjamenn hafa haft heppnina með sér
Heimilisfræðikennarinn fékk iPhone í Jólalukkunni
Ungur peyi dró
vinningshafa í þriðja
úrdrætti í Jólalukkunni
með aðstoð Erlu
Valgeirsdóttur,
aðstoðarverslunar-
stjóra.
VF-mynd/rannveig.