Víkurfréttir


Víkurfréttir - 21.12.2017, Blaðsíða 18

Víkurfréttir - 21.12.2017, Blaðsíða 18
18 MANNLÍF Á SUÐURNESJUM f immtudagur 21. desember 2017 // 50. tbl. // 38. árg. Halla Þórðardóttir eða Halla Togga býr í Grindavík ásamt Sigurjóni manninum sínum og sonum þeirra í Grindavík. Hún er annálað jólabarn og þarf maðurinn hennar oft á tíðum að stöðva hana þegar hún ætlar að setja jólaskrautið upp í október. Máni sonur þeirra fæddist í desember og segir Halla að hann sé meira jóla- barn en hún, en sjálf var hún oftast veik á Þorláksmessu eftir spennufall aðventuhátíðarinnar. Halla heldur í gamlar hefðir á jólunum en hefur prófað nýjungar við matarborðið og hefur komist að því að hamborgar- hryggurinn sé jólamaturinn þeirra. Halla svaraði nokkrum jólaspurn- ingum fyrir okkur. Hvers vegna ertu svona mikið jóla- barn? „Ég veit það bara ekki. Ég skil ekki af hverju ALLIR eru ekki svona mikil jólabörn. Ég hef bara alltaf verið svona mikið jólabarn. Þegar ég var yngri varð ég undantekningarlaust veik á Þorláks- messu/aðfangadag vegna spennufalls. En ég myndi segja að gleðin sé bara svo mikil, í dimmu amstri hversdags- leikans og rútínu lifnar allt við, ljósin, fegurðin og ilmurinn meira að segja. Gleðin og spennan var of mikið fyrir litlu mig að höndla en nú í dag er þetta hamingjusamasti tími ársins. Þegar aðrir sjá stress og geðveiki sé ég glimmer gosbrunna og hamingju.“ Hvenær byrjar þú að skreyta fyrir jólin? „Ég vil helst byrja að skreyta í októ- ber. En ég reyni að hemja mig til 1. nóvember. Ef kallinn minn er á sjó í nóvember eru útiljósin komin upp í lok október.“ Hver er uppáhalds jólahefðin þín? „Þetta er erfið spurning. Fyrir utan allt sem kemur börnunum við er það að skreyta jólatréð og að heyra kirkju- klukkurnar í útvarpinu á aðfangadag. Það var eins og að bíða eftir flugelda- sýningu hjá okkur sem barn. Ég man enn eftir því hvernig hjartað sprakk út í hamingju.“ Áttu þér uppáhalds jólaskraut? „Uppáhalds jólaskrautið er daga- talið hennar ömmu minnar. Hún saumaði það út sjálf og ég fékk það eftir hennar tíma. Jólasængurfötin frá ömmu Sigurjóns eru ómissandi á jólunum hjá okkur, hún handmálaði þau og á aðfangadag eru þau alltaf nýþvegin og fín. Það jafnast ekkert á við það að skríða upp í hreint ból á aðfangadag og matarstellið hennar er líka uppáhalds.“ Hvað ertu með í matinn á aðfanga- dag? „Ég hef prófað að breyta út frá ham- borgarhryggnum með hreindýri, önd og gæs. En humar, hamborgarhryggur og ís er minn og okkar jólamatur.“ Hvað er uppáhalds jólalagið þitt? „Ég á nokkur uppáhalds jólalög, „Þú og ég og jól“ með Svölu, „Ég hlakka svo til“, „Dansaðu vindur“ og „All i want for Christmas“, það lag á sér- stakan stað í hjarta mínu en þann 19. desember fyrir tólf árum síðan þá lágu leiðir okkar Sigurjóns saman.“ Bakar þú smákökur fyrir jólin? „Já, ég baka alltaf sörur og nóg af þeim, þeim bakstri fylgja alltaf lak- krístopparnir og svo fer það bara allt eftir því í hvernig stuði ég er. Svo sl. fjögur ár bættist við enn stærra jóla- barn í fjölskylduna svo hér er alltaf ein afmælisveisla á aðventunni.“ Ertu með einhverja skemmtilega jóla- sögu handa okkur? „Ég á þær alveg nokkrar, en held að ég eigi fleiri þýðingarmikil tímamót frá þessum tíma. Eins og ég kom að áðan hittumst við maðurinn minn fyrir tólf árum á þessum tíma og akkúrat átta árum síðar fæðist okkar yngsti drengur, hann Óskar Máni, undir gulum fallegum desember mána.“ Rannveig Jónína Guðmundsdóttir rannveig@vf.is VIÐTAL -Halla jólabarn vill helst setja jólaskrautið upp í október VARÐ ALLTAF VEIK Á ÞORLÁKSMESSU VEGNA SPENNUFALLS ÓTRÚLEGT JÓLAGJAFAÚRVAL Í DRAUMALANDI Georg Jensen og Rosendahl gjafavörur Sængurföt og rúmteppi frá Mette DietmerKerti og úrval af smávörum Tjarnargötu 3 - sími 421-3855 HÖ NN UN : V ÍK UR FR ÉT TIR
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Víkurfréttir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.